Tíminn - 20.04.1980, Blaðsíða 8
8
Sunnudagur 20. aprfl 1980
//Vélstjórinn frá Aberdeen#/ er f ræg persóna á
landi hér. Samt er hæpið, að nokkrum Islend-
ingi hafi verið kunnugt um tilvist hans fyrr en
hann var dauður. Leitun mun á þeim manni/
sem minnist þess/ að hann hét raunar John
Stephenson. Hérlendis hefur hann aldrei verið
nefndur annað en vélstjórinn frá Aberdeen,
enda nægirsú nafngiftfullkomlega.Jafnskjótt
kemur upp í hugann sagan um drauginn, sem
flaugst á við hálfnakinn bæjarfógetann á
Seyðisfirði/ Axel Túliníus/ á tunglskinsbjartri
nóttu á efri hæð húss Ernst lyfsala haustið
1894. Það voru fremur óskemmtileg fang-
brögð/ því að allt hold var horfið af hauskúpu
og hálsliðum vélstjórans og handleggirnir
berar beinapípur og vantaði framan á.
V élsti órinn
frá
Aberdeen
Vélstjérinn frá Aberdeen dó
meb voveiflegum hætti, og
varö mikill málarekstur út af
dauöa hans, bæöi i Skotlandi
og hérlendis, og veröur aö
telja sannaö aö hann hafi veriö
drepinn, þótt eftir föngum
væri reynt aö dylja þaö. Likiö
kom i leitirnar eftir nokkra
mánuöi og var jaröaö I kirkju-
garöinum á Seyöisfiröi, þar
sem bein þessa nafntogaöa
manns hafa fúnaö i áttatiu og
sex ár — þaö er aö segja þau
þeirra, er ekki vantaöi á
skrokkinn, þegar hann var
dreginn úr sjó.
Á þessum árum var á Seyö-
isfiröi ágætur Ijósmyndari,
Eyjólfur Jónsson, sem siöar
varö þar bankastjóri, og tók
hann mynd af Ifkinu. Þessi
mynd hefur aldrei komiö fyrir
almenningssjónir. Eigi aö
slöur hefur hún varöveitzt, og i
siöustu viku fékk Timinn hana
til birtingar meö viöeigandi
skýringum.
Vélstjórinn frá Aberdeen
var á skozkum togara, M.A.
Dodds, sem kom inn á Seyöis-
fjörö i byrjun maimánnöar
1894. Skipverjar munu ekki
hafa veriö nein englahjörö, og
voru drykkjur miklar á skip-
inu, og var aö minnsta kosti
einn tslendingur eitthvaö i
slagtogi meö þeim. Þaö var
Páll jökull, er alþekktur er af
för sinni yfir Vatnajökul. Þeg-
ar skipiö létti akkerum og hélt
út Seyöisfjörö, logaöi þaö
stafna á milli I slagsmálum.
Þaö voru eftirhreytur drykkj-
unnar, sem þreytt haföi verib
á meban þaö lá á Seyöisfiröi.
Viö komuna heim til Aber-
deen vantaöi einn skipverj-
ann. Þaö var yfirvélstjórinn. í
sjóréttinum sagöist skipstjór-
anum svo frá, aö hann heföi
falliö útbyröis utariega á
Sudie Fjord laugardaginn S.
mai. Heföi skipiö samstundis
veriö stöövaö og þvl rennt
aftur á bak á þann staö, er vél-
stjórinn flaut I sjólokunum, og
björgunarhring kastaö til
hans. Þegar hann heföi ekki
gripiö til björgunarhringsins
heföi báti veriö skotiö út, en þá
var maöurinn sokkinn.
Fleiri skipverjar voru yfir-
heyröir, og kom þá upp úr kaf-
inu, aö ekki sögöu allir frá á
einn veg. Þaö leiddi til grun-
semda um dauba vélstjórans,
og bárust böndin einkum aö
einum skipverjanna. Þetta
varö til þess, aö brezk yfirvöld
sneru sér til landshöföingjans
á islandi og báöu hann aö hlut-
ast til um, aö rannsókn á at-
buröum á togaranum á meöan
hann lá á Seyöisfiröi, væri lát-
in fram fara.
Svo stóö á, aö Axel Túlinius
haföi veriö settur sýslumaöur
i Noröur-Múlasýslu og bæjar-
fógeti á Seyöisfiröi þetta sum-
ar. Fékk hann til afnota her-
bergi uppi á lofti I öörum enda
lyfjabúöarinnar á Seyöisfiröi
og haföi I þvi skrifstofu sina,
en svefnstaö I horni, sem hann
tjaldaöi fyrir.
Meöal hinna fyrstu mála,
sem komu til hans kasta, var
rannsókn á hátterni manna á
hinum skozka togara. En um
þaö vitnaöist fátt, nema hvaö
sukksamt heföi veriö á hon-
um.
Siöan leiö fram á haust. Þá
bar svo til er tveir fiskimenn
frá Brimnesi, sem er utarlega
viö noröan veröan Seyöisfjörö,
voru aö draga linu I mynni
Seybisfjarbar, aö upp kom lik,
alklætt og meö fjaörastigvél á
fótum, en allt hár og hold skaf-
iöaf höföi og hálsliöum, svo aö
eftir voru nakin beinin, og
framhandleggir slitnir af og
beinapipur upphandleggja
berar. öll fötin voru löörandi i
feiti eöa oliu, og á buxnahnapp
stóö borgarnafniö Aberdeen.
Gizkuöu sjómennirnir á, aö
eitthvaö þungt heföi veriö fest
vib hendur eöa handleggi Ilks-
ins, svo aö þeir heföu slitnaö
af, þvi aö þeim virtist fyrst
sem linan væri föst I botni, en
svo losnaöi hún skyndilega, er
þeir höföu tosaö i hana um
stund.
Brimnesmenn höföu likiö
meö sér I bátnum til lands og
báru þaö I hjall á túninu.
Nú vikur sögunni til sýslu-
manns, sem var viö vinnu sina
i herbergi sinu snemma næt-
ur. Kemur þá Ernst lyfsali til
hans og spyr, hvort hann hafi
veriö látinn vita um lik, sem
komiö hefbi upp meö linu út
viö Brimnes. Þessu neitaöi
sýslumaöur og kvaöst ekki
leggja trúnaö á flugufregnir.
Háttaöi hann i horni sinu litlu
sibar, en varö ekki svefnsamt.
Morguninn eftir reis hann á
fætur á sjötta timanum og var
þá sannfæröur um, aö þarna
væri vélstjórinn frá Aberdeen
kominn i leitirnar. Svo viss
þóttist hann i sinni sök, aö
hann fékk léban Iltinn gufubát
hjá Ottó Wathne og kvaddi
menn til farar meö sér út aö
Brimnesi, þeirra á meöal
Eyjólf ljósmyndara.
A Brimnesi var þeim visaö á
likiö I hjallinum, og lét sýslu-
'i' n fSI J.R.J. Bifreiðasmiðjan hf.
Varmahlíð,
Skagafirði.
Simi 95-6119.
Bifreiöaréttingar (stór tjón —litil tjón) — Yfirbyggingar á
jeppa og allt aö 32ja manna bila — Bifreiöamálun og
skreytingar (Föst verötilboö) — Bifreiöaklæöningar —
Skerum öryggisgler. Viö erum eitt af sérhæföum verk-
stæöum I boddýviögeröum á Noröurlandi.
iðja -
fé/ag
verk-
smiðjufólks
fyrir félagsmenn Iðju, 65 ára og eldri,
verður haldið I Súlnasai Hótel Sögu,
sunnudaginn 27. april kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar á skrifstofu félagsins frá
kl. 1 e.h. á mánudag.
Stjórn Iðju.
Kaffiboð
BÆNDUR
Krossviður
vatnsþolinn og
vatnsheldur
Spónaplötur
vatnsþolnar og
eldvarðar.
Tilvalið í
gripahús.
Sendum í
póstkröfu.
Kaupfélag Vopnfirðinga óskar eftir að
ráða bifvélavirkja sem fyrst.
Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri i sima
97-3201.
Kaupfélag Vopnfirðinga
RAFSTOÐVAR
allar stærðir
grunnaf I
varaafl
flytjanlegar
verktakastöðvar
Garðastræti 6 ,■
Símar 1-54-01 & 1-63-41 ,vS
.VkWAWJV/mWWWV