Tíminn - 20.04.1980, Qupperneq 9

Tíminn - 20.04.1980, Qupperneq 9
Sunnudagur 20. aprll 1980 9 Vélstjórinn frá Aberdeen á túninu á Brimnesi viaSÍpl hnjánum. Myndin er áttatiu og sex ára gömul. — Ljósm maður bera það út á túnið, þar sem Eyjólfur tók myndina af þvi. Höfðu þeir það sfðan með sér inn i kaupstaðinn, þótt ekki þætti þeim þaö skemmtilegur farangur. Þessu næst sendi sýslumað- ur eftir Jóni Jónssyni lækni á Brekku i Fljótsdai, og fékk hann til þess að kryfja likiö, þvl að héraðslæknirinn á Seyðisfirði, Guðmundur Scheving, var I siglingu um þessar mundir. Svo vildi þó til, að hann kom heim, áður en Jón hófst handa um krufning- una, og unnu þeir þess vegna báðir að henni. Fullyrtu lækn- arnir, að maðurinn hefði kom- ið dauður i sjóinn eða að minnsta kosti meðvitunar- laus. Maðurinn var siöan jarð- settur, en fötin lét sýslumaður þvo og kvaddi til tvær konur til þess að skoða sauma og bætur, er á þeim voru, til þess að skera úr um hvort handbragð ið benti til þess, að karl eða kona hefði bætt þau. Virtist þeim eindregið, að það hefði kona gert. Nýjar yfirheyrslur fylgdu I kjölfarið, og reyndust nú þeir hinir sömu og áður höfðu litlu kunnað frá að segja, luma á talsveröri vitneskju. Skipið hafði til dæmis lengi morrað stjórnlaust á firðinum sökum ölæðis skipverja, allt logaö i á- flogum á þvi, háreystin berg- málað fjalla á milli og stór skipshundur gelt iinnuiaust á meban á þessu gekk. Þar eð útlent eimskip kom til Seyöisfjaröar einmitt þá daga, er rannsókninni lauk, hraðaði sýslumaður sér sem mest hann mátti að þýða rétt- arskjölin á ensku og koma þeim af sér. 1 Aberdeen sann- aðist siðan, að járnkeðja hafði veriö fest við framhandleggi véistjórans, áður en honum var varpaö I sjóinn. Tilgáta fiskimannanna frá Brimnesi reyndist þvl rétt. Axel Túlinlus viröist hafa verið þvl feginn, þegar hann taldi sig skilinn að skiptum við vélstjórann frá Aberdeen. En þá var þaö raunar eftir, er gert hefur manninn svo minnisstæðan islendingum og frá þvi er bezt að segja með þeim orðum sem Þórbergur Þórðarson notaði i Gráskinnu þegar hann skráði sögnina eftir frásögn Axels Túliniusar sjálfs: ,,Um kvöldið, þegar alit þetta var um garð gengiö, gekk ég snemma til náða og hugði að njóta góðrar hvildar eftir þetta rannsóknarvafstur. En nú brá svo við, að ég get með engu móti sofnað. Úti var tunglskin og bjartviðri. Ég hafði dregið tjöldin frá glugg- anum, og herbergið var allt uppljómað af tunglsljósi. Klukkan þrjú til fjögur um nóttina hafði mér ekki runnið blundur i brjóst. Lá ég glað- vakandi með opin augu og horfði til dyra. Sé ég þá allt i einu að herbergishurðin opn- ast ofurhægt og að I dyrunum stendur skozki vélstjórinn, ná- kvæmlega eins ásyndum og likið leit út. Hauskúpan var nakin og skinin, augnatóftirn- ar holar og auöar, glitti I hvit- an tanngarðinn milli skolt- anna, og skjallhvitar beina- plpurnar héngu niöur með sið- unum. Ég þóttist samt sjá, að hann væri reiður og bæri illan hug til mln. Þessi ferlega mannsmynd þokast hægt og hægt inn eftir gólfinu, stefnir beint að rúmi mlnu og star- bllnir á mig holum augnatóft- unum. Ég vildi ekki eiga á hættu að biða lengur boðanna og snarast fram úr rúminu og út á gólfið á móti ófreskjunni. Ég var að eðlisfari myrkfæl- inn, en I þetta sinn fann ég ekki til neinnar hræöslu. Ég á- varpa hann á Islenzku og spyr, hvað hann sé að gera hér, og segist ég sizt hafa búizt við þvi af honum, að hann lofaði mér ekki að vera i friöi. En hann gefur orðum mlnum engan gaum, heldur mjakar sér steinþegjandi beint framan að mér, unz við mættumst á miðju gólfi, og hann ræðst á mig með heljarafli. Slöngvar hann berum beinaplpunum yfir um handleggina á mér og utan um mig hálfnakinn. Ég tek á móti eftir föngum, og hefjast þarna milli okkar harðvitugar stimpingar. Þótt hann væri sterkur og illur viðskeytis, veitti mér samt betur, og fékk ég að lok- um hrakið hann aftur á bak og út úr herbergisdyrunum, sem þá stóðu galopnar. Smellti ég siðan hurðinni i lás, grlp eld- spýtustokk og kveiki og les, það sem eftir er nætur. Kom mér ekki dúr á auga, fyrr en fóik var komiö á stjá i húsinu um morguninn”. Við þetta er engu að bæta öðru en þvi, að Axel Tulinlus var maður afrenndur að afli, snar og fimur, jafnvel fram á efri ár. Þegar þetta geröist, var hann á bezta skeiöi. JH Electrolux Vörumarkaðurinn hf. Starf við bókhaid og kostnaðareftir/it Óskum eftir að ráða nú þegar starfskraft með viðskiptafræðimenntun eða reynslu á sviði bókhalds og kostnaðareftirlits. Umsóknum sem greini frá menntun og fyrri störfum skal skila á afgreiðslu blaðs- ins merkt „Opinber stofnun nr. 1605” fyrir 24. þ.m. Til sölu Land Rover disel árgerð 1973 m/mæli til sölu. Verð 2 milljónir. Upplýsingar í sfma 15438. Auglýsið í Tímanum ____________J Tilboð — Hjónarúm Fram til 16. mal —en þá þurfum viö að rýma fyrir sýning- unni „Sumar 80” og bera öll húsgögnin burt, bjóðum við alveg einstök greiösiukjör, svo sem birgöir okkar endast. 108.000 króna útborgun og 80.000 krónur á mánuði duga til að kaupa hvaða rúmasett sem er i verslun okkar. Um það bil 50 mismunandi rúmategundir eru á boðstólum hjá okkur. Littu inn, það borgar sig. Ársa/ir í Sýningahöllinni Bíldshöfða 20/ Ártúnshöfða. Simar: 91-81199 og 91-81410.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.