Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 1
„Það eina
sem ég get sagt á
þessu stigi er að
þetta er ekki
„boy-band“. Ef
kalla má þetta
eitthvað er þetta
strákakvartett
eða sönghópur,“
segir Einar
Bárðarson
umboðsmaður.
Um mánaðamótin næstu hyggst
Einar efna til áheyrnarprófs.
Hann er á höttunum eftir karl-
kyns söngvurum á aldrinum 18 til
35 ára. Hópinn hyggst hann láta
syngja inn á plötu sem ráðgert er
að komi út í haust og verður efni
hennar einhvers konar blanda af
klassískri, trúarlegri og dægur-
tónlist. Fyrir þremur árum boðaði
Einar til áheyrnarprófs og mættu
þá tugir ungra söngkvenna til
leiks og afraksturinn varð Nylon-
flokkurinn frægi.
Ætlar að stofna
strákakvartett
Sendinefnd háttsettra
embættismanna úr ráðuneytum
utanríkis- og varnarmála í Þýska-
landi átti í gær könnunarviðræður
við fulltrúa íslenskra stjórnvalda
um möguleika á efldu samstarfi
landanna á sviði öryggis- og varn-
armála. Sendinefndarmenn skoð-
uðu aðstæður á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli.
Einn nefndarmanna, fulltrúi úr
þýska varnarmálaráðuneytinu,
tjáði Fréttablaðinu að þýsk her-
málayfirvöld teldu að þótt friðvæn-
legt væri á Norður-Atlantshafs-
svæðinu væri það hernaðarlega
mikilvægt, vegna olíu- og gasauð-
linda í Norðurhöfum og hernaðar-
umsvifa Rússa. Þess vegna væru
þýsk yfirvöld áhugasöm um að liðs-
menn þýska hersins hlytu þjálfun í
að taka þátt í aðgerðum á svæðinu.
Nú þegar ætti þýski herinn gott
samstarf við þann norska og að
mati nefndarmannsins lægi nú
beint við, eftir að Norðmenn og
Íslendingar sömdu um eflt varnar-
málasamstarf, að Þjóðverjar víkk-
uðu varnarmálasamstarf sitt við
Norðmenn út til Íslands, að því
gefnu að Íslendingar sýndu því
einnig áhuga. Keflavíkurflugvöllur
byði upp á góða æfingaaðstöðu. Til
að byrja með myndi þó sennilega
sjóherinn verða virkastur í slíku
samstarfi við Íslendinga; þýsk her-
skip gætu til dæmis valið að leggja
í auknum mæli leið sína um íslenska
lögsögu á leið vestur um haf.
Vilja taka þátt í æfingum
„En þar sem hann er anarkisti væri samt þversögn í sjálfu
sér að hann væri þingmaður og ég sé Jón ekki í anda
starfa sem flokkspólitískur þingmaður.“
Góður andi er í stjórn-
armyndunarviðræðum formanna
Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar og líkur á því að niðurstaða náist
á næstunni, að mati Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, formanns
Samfylkingarinnar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leggja flokkarnir áherslu
á að klára einfaldan málefnasamn-
ing á næstu dögum, en reikna með
að unnið verði áfram fram á sumar
við eiginlegan málefnasamning
ríkisstjórnarinnar.
Formennirnir funduðu í Ráð-
herrabústaðnum í Tjarnargötu
seinnipart dags í gær. „Okkur mið-
aði vel áfram, það er góður andi í
þessum viðræðum og við höfum
farið yfir nokkur mál. Við teljum
að það séu góðar líkur til þess að
við náum niðurstöðu innan ekki
allt of langs tíma,“ sagði Ingibjörg
Sólrún eftir fundinn. Hún sagði
ómögulegt að segja til um hvort
ríkisstjórn yrði mynduð um helg-
ina, enda engin ástæða til að rasa
um ráð fram.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði eftir fund-
inn að þar hefði verið byrjað á að
fara yfir málefnin, en ekki væri
enn komið að því að útdeila ráðu-
neytum. „Þetta er allt á byrjunar-
stigi, en það er góður andi í mál-
inu.“
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði í pistli á vef
flokksins í gær að ekki færi á milli
mála að trúnaðarbrestur hefði
orðið milli Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins. Ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar væri óskabarn „eins
stærsta auðfélags landsins“, og ef
hún kæmist á koppinn yrði hún
trúlega kennd við foreldri sitt og
nefnd Baugsstjórnin.
Geir sagði þessi ummæli Jóns
afskaplega óviðeigandi, og ólíkt
Jóni að tala á þennan hátt. „Ég vil
ekki munnhöggvast við mína sam-
starfsmenn í ríkisstjórnini, sem
eru þar enn, og legg bara áherslu á
okkar góða starf í gegnum tíðina.“
Hann sagði alla þekkja það ferli
sem hefst eftir kosningar. „Þó að
menn séu í viðræðum eru menn
ekki bundnir, og það er ekki bann-
að að spjalla saman í því ferli. [...]
Ég hef átt mjög mörg samtöl við
mjög marga stjórnmálamenn eftir
kosningarnar.“
Áhersla á einfaldan
málefnasamning
Líkur eru á niðurstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum á næstunni. Formaður
Framsóknar talar um trúnaðarbrest og kallar verðandi stjórn Baugsstjórnina.
Opið 10-18 í dag
Finndu
réttu gjöfina
Stangveiði-
sýning um helgina
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA Opið laugard. 10–16 og sunnud. 12–16
Vopnaðir lögreglumenn í
Manchester á Bretlandi brutu sér
leið inn á heimili eiganda tölvu-
verslunar nýverið og gripu Löru
Croft, aðalsögupersónuna í
tölvuleikjum og kvikmyndum,
vopnaða og tilbúna í átök.
BBC segir frá því að lögreglan
hafi verið kölluð að íbúðinni þar
sem eigandinn hafði orðið fyrir
ítrekuðum símahrekkjum. Þegar
hún knúði dyra svaraði enginn, og
þegar lögreglumenn litu inn um
glugga sáu þeir móta fyrir
manneskju með byssu.
Lögreglumennirnir gripu síður
en svo í tómt, en í stað vopnaðrar
manneskju fundu þeir brúðu í líki
Löru Croft í fullri stærð. Þrátt
fyrir að vopn hennar hafi ekki
reynst hættuleg var húsráðandi
handtekinn og hafður í haldi í 13
klukkustundir, og hald lagt á Löru
Croft. Húsráðandinn íhugar nú að
leita réttar síns vegna ólögmætrar
handtöku.
Lögregla hand-
tók Löru Croft