Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 32
Þ ekkist þið og hvað vitið þið um hvort annað? Katrín: Nei. En ég hef auðvitað séð Jón á röltinu með barna- vagn. Hann er náttúrulega fræg- ur maður. Ætli ég muni ekki fyrst eftir honum úr Tvíhöfða. Svo hef ég lesið skrif hans aftan á Fréttablað- inu sem og bókina sem hann gaf út síðast; Indjánann. Svo man ég eftir pistlunum hans um trúmál. Mér fannst dálítið áhugavert að fylgjast með viðbrögðum þjóðarinnar sem hélt að þeir pistlar væru grín. Jón Gnarr: Ég tengi Katrínu við pólitíkina. Og ég veit reyndar svo- lítið um hana því ég er mjög mikið á netinu. Ég er netfíkill og eyði þar örugglega um 2-3 klukkustundum á dag. Einhvern tímann rakst ég á einhverja heimasíðu um Katrínu og las þar ýmislegt um hana. Hún lærði franskar bókmenntir eftir menntaskóla í eitt ár. Stundaði svo nám í íslensku eða bókmennt- um við Háskóla Íslands. Hennar aðalhugðarefni þar voru íslenskar glæpasögur. Og mig minnir að hún hafi haft gífurlegan áhuga á foss- um. Katrín: Hvar hefurðu lesið þetta? En ég er sko með mikla fossadellu. Þegar ég var lítil gat ég enda- laust teiknað myndir af fossum og flett þeim upp í hinum og þessum bókum. Svolítið asnalegt. Jón Gnarr: Veistu af hverju þú fékkst þessa dellu? Katrín: Ég man bara að mér fannst ferðalög út á land aldrei al- mennileg nema við færum að ein- hverjum fossi. Varð miður mín ef ég uppgötvaði að það yrði enginn foss í ferðinni. Jón Gnarr: Þetta minnir mig á að Pétur Jóhann Sigfússon er einmitt með dellu fyrir kjölsogi. Þegar hann fermdist buðu foreldrar hans honum það að ferðast hvert sem var í heiminum. Hann valdi siglingu með Norrænu. Til að geta staðið úti á þilfari og horft á kjals- ogið. Katrín: Ég hef líka mjög gaman af því að standa úti í bát og horfa á kjalsogið og skoða öldurnar. Og ég verð alltaf jafn spennt yfir því hvort næsta alda verði kannski ótrúlega stór. Kannski þetta hafi allt saman eitthvað að gera með vatn. Jón: Já. Ég hef haft dellu fyrir há- körlum frá því ég var barn. Hún er reyndar aðeins að eldast af mér síðustu fimm árin. Katrín: Þetta er nú allt svolítið merkilegt því þegar bræður mínir skiptust á jólagjöfum síðustu jól var fræðibók um hákarla í öðrum pakkanum. Þeir hafa verið í ein- hverri hákarlastemningu undan- farið. Síðustu misserin hafa einkennst af því að fólk er ósammála um eitt- hvað. Enda kosningar nýafstaðn- ar og mikið argaþras gengið yfir fjölmiðla, kaffistofur og bloggsíð- ur. Fylgist þú með slíku maraþon- karpi Jón? Hver er hnyttnasti þingmaðurinn úr röðum andstæð- inga að þínu mati, Katrín? Jón Gnarr: Mér finnst umræðan fremur leiðinleg. Fyrirsjáanleg og föst í sama formi. Kosningarn- ar núna runnu eiginlega saman við Eurovison. Þetta var bara í gangi og ég vissi af því þarna en ég hafði lítinn áhuga. Þetta er svipað og með umræður um fótbolta. Ég kinka kolli með – vil ekkert vera leiðinlegur – en ég næ ekki að tengja mig við þetta. Nema ef það er eitthvert fólk sem kemur fram og mér finnst áhugavert. Ég hef yfirleitt miklu fremur kosið fólk en flokka eða málefni. En sú hlið á pólitískri umræðu að gera lítið úr fólki finnst mér mjög leiðinleg. Þegar vitsmunalegum yfirburð- um, yfirlæti eða hroka er beitt. Mér líður illa fyrir hönd þeirra sem sitja undir því. Og þar eru ýmsar lúmskar aðferðir notaðar, líkt og í trúarumræðunni, þegar gera á til dæmis lítið úr prestum, þá eru þeir kallaðir klerkar. Og bókstafstrúarmenn. Katrín: Það er hundleiðinlegt að lenda í umræðum sem snúast bara um það að grípa fram í og segja „væna mín“. Þarna eru frasar eins og: „Það er nú hálfhlægilegt að heyra þig segja þetta.“ Og þá segi ég á móti: „Þessi herramaður er náttúrulega …“ Þið skiljið. Það er lítið skemmtilegt þegar umræð- urnar fara út í þetta. Jón Gnarr: Já, það er glatað þegar það er í lagi að vera vondur og ósvífinn og sá frekasti og ósvífn- asti vinnur. Ég hef oft reynt að fara inn í pólitíkina, mætt hjá ein- hverjum pólitískum samtökum eða kynnt mér einhver ákveðin mál. En svo hef ég bara bakkað út úr því aftur. En ég hef samt mína pólitísku skoðun: Ég er anarkisti. Katrín: Það meikar alveg fullkom- inn sens. Jón Gnarr: Þegar við vorum með Tvíhöfða tókum við meðal annars pólitíkusa í viðtöl. Það kom mér verulega á óvart að sjá Steingrím J. Sigfússon og Davíð Oddsson spjalla saman um eitthvað á léttu nótunum. Ég hélt að pólitísku and- stæðingarnir töluðust ekki við. Katrín: Ef svo væri ekki held ég að maður yrði bara eitthvað galinn. Að vera á vinnustað með 62 öðrum og þar af líkar manni illa við 57. Það væri mjög galið að vera bölvandi einn úti í horni. Og það finnst mér erfiðast þegar fólk fer í haminn að tala niður til andstæðinganna. Það á sjaldnast við, við þekkjumst flest nefnilega af góðu. En af hnyttnum andstæðingum segirðu. Mér finnst Bjarni Harðarson skemmtilegur, kannski af því að hann er bókakarl eins og ég. Jón Gnarr: Já, er hann nörd- inn þarna? Já, hann er svolítið skemmtilegur og hlýlegur. En hvernig þingmaður heldurðu að Jón yrði, Kata – hvaða málaflokk- um sérðu hann beita sér fyrir? Og hvernig útvarpsþáttum myndir þú vilja sjá Kötu stýra? Katrín: Afnotagjöld ríkissjón- varpsins. Er það ekki eitthvað sem þú hefur talað dálítið um? Jón Gnarr: Jú, rétt. Katrín: Einmitt, þú ert ekki mikið hrifinn af þeim. Ég sé alveg fyrir mér að Jón myndi flytja frumvarp um einkavæðingu RÚV og niður- fellingu afnotagjaldanna. En þar sem hann er anarkisti væri samt þversögn í sjálfu sér að hann væri þingmaður og ég sé Jón ekki í anda starfa sem flokkspólitískur þing- maður. Ég held að atkvæðagreiðsl- ur gætu til dæmis orðið dálítið erf- iðar fyrir flokkinn hans, sérstak- lega ef naumur meirihluti væri fyrir hendi, því það væri engin leið að vita með hverju hann myndi greiða atkvæði. Maður sér enga sérstaka flokkslínu í skrifum hans. Jón Gnarr: Ég var á móti afnota- gjöldum ríkissjónvarpsins því mér fannst RÚV hafa brugðist hlutverki sínu. En ef ég sé það svart á hvítu að ég sé að fá eitthvað fyrir peninginn minn er ég alveg til í að borga. Að miklu leyti var þetta svo líka af eig- ingjörnum og persónulegum ástæð- um en ég fékk ekki vinnu hjá þeim. Katrín: Koma hundabeinin þar upp. Jón Gnarr: Já, ég var bitur út í RÚV. En ef ég færi á þing held ég að ég myndi beita mér fyrir kær- leik og mannvirðingu. Katrín: Við Jón gætum fyllt flokk friðarsinna. Jón Gnarr: Já, ef það væru þá bara Ekki spauga á spítölum Jón Gnarr hefur lengi haft dellu fyrir hákörlum. Katrínu Jakobsdóttur finnst það merkilegt því bræður hennar eru sömuleiðis á einhverju hákarlatímabili þessa dagana. Sjálf er hún veik fyrir fossum. Júlía Margrét Alexandersdóttir fór í gegnum fordóma, kærleik og hugmynd að nýjum útvarpsþætti með þingkonunni og grínistanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.