Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 8
Enginn stjórnar- manna Varmársamtakanna hefur verið yfirheyrður af lögreglu, þrátt fyrir afdráttarlausar ásakanir verk- takans í þeirra garð. Hörður Jóhann- esson aðalvarðstjóri segir félaga í samtökunum ekki liggja undir grun, umfram annað fólk. „Við tökum enga mótaða afstöðu til þess. Maður horfir ekki alltaf á augljósustu ástæðuna í málum eins og þessum,“ segir hann. Sölvi Jónsson, eigandi Magna, verktakafyrirtækisins á svæðinu, sagði í fréttum í vikunni að hann „stimplaði beint á Varmársamtökin“ þær skemmdir sem unnar voru á vinnuvélum aðfaranótt miðviku- dagsins. Þá urðu sjö vinnuvélar fyrir skemmdarverkum og var meðal annars úðað „X-D“ á þær. Íbúum á svæðinu varð illa brugð- ið við spellvirkin og hafa keppst við að fordæma þau síðustu daga. Berg- lind Björgúlfsdóttir, formaður Varmársamtakanna, er ein þeirra. „Við vonumst til þess að lögreglan komist til botns í málinu og að þeir sem ábyrgð bera á þessu gefi sig fram. Mér finnst ekki réttmætt að verið sé að klína þessu á samtökin opinberlega, eins og gert var,“ segir hún. Jóhannes Bjarni Eðvarðsson íbúi í Kvosinni, tekur í sama streng. „Ég tel að botninum hafi verið náð með skemmdarverkunum og voru þau mikið áfall fyrir okkur. Það veldur fólki vanlíðan að liggja undir grun um að hafa gert þennan óskapnað. Jóhannes gekk á fund formanns skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar í gær, ásamt fyrr- nefndum Sölva verktaka. Í fram- haldi af því var einum verkþætti við skolplagnagerð við Álafoss frestað. Haraldur Sverrisson. formaður nefndarinnar, bað þá hönnuði lagna- gerðarinnar að rita greinargerð til að útskýra betur framkvæmdina fyrir íbúum. „Við ákváðum að fara aðeins yfir málið og setja þetta niður á blað þannig allir væru upplýstir um hvað væri um að vera,“ segir Haraldur. Hann býst við greinargerðinni um helgina. Jóhannes Bjarni er ánægður með þessa þróun og það sem hann telur „nýjan tón“ í samskiptum allra hlut- aðeigandi. „Þetta er algjörlega nýr póll í þau vinnubrögð sem hafa verið í Kvosinni. Vonandi erum við að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að ný vinnubrögð verði tekin upp hér. “ Útileguma›urinn er ný sérverslun me› allt sem flú flarft til fer›alagsins, fellih‡si, hjólh‡si, tjaldvagna, útifatna›, fylgihluti og margt fleira. Kíktu við og skoðaðu úrvalið. Fossháls 5-7 | Sími 551 5600 | utilegumadurinn.is Ný ævintýraleg verslun með allt til ferðalagsins Polar Ríkulegur staðalbúnaður, svo sem sjónvarp, DVD/CD, örbylgjuofn, ísskápur með frysti, bakkskynjari, 110 Watta sólarrafhlaða og Alde hitakerfi í gólfi og rúðum. Breiðustu og best einangruðu húsin á markaðnum. Sænsk og sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Sterkbyggðu fellihýsin sem reynst hafa frábærlega á Íslandi. Rockwood Ríkulegur staðalbúnaður, svo sem Swing eldhús, ísskápur, rafm.vifta, álfelgur, geislaspilari, rafmagns- lyftibúnaður, upphitaðar dýnur og hljóðlát miðstöð. Fortjöld Fylgihlutir Stútfull búð af frábærum fylgihlutum fyrir ferðalagið. PDQ fortjöldin pakkast í poka í rennu utan á vagninum. Fljótlegt að tjalda. Verð frá 1.299.000 kr. Fyrir fellihýsi Mini weekender: 39.900 kr. PDQ 2,5 m: 59.900 kr. PDQ 2,9 m: 79.900 kr. Hlaðið aukabúnaði Hlaðið aukabúnaði Fyrir hjólhýsi Mini weekender: 39.900 kr. PDQ 3,5 m: 69.900 kr. Corsican: Verð frá 109.900 kr. Corsican E N N E M M / S ÍA / N M 2 7 6 3 3 Opið laugardag 10-17 og sunnudag 12-16 Polar sænskir eðalvagnar - sjáðu með eigin augum Verð frá: 2.799.000 kr. Frí geymsla veturinn 2007-08 fyrir öll seld hjólhýsi og fellihýsi. Einum verk- þætti frestað Félagar í Varmársamtökunum eru ekki grunaðir um skemmdarverkin frekar en aðrir. Einum verk- þætti við skolplagnagerð var frestað í gær. Varmár- samtök fagna nýjum tóni yfirvalda og verktaka. Vorhátíðin Vorskipið kemur! er haldin á Eyrarbakka og Stokkseyri nú helgina, og hófst í gærkvöldi. Þar er sérstök áhersla lögð á aldamótin 1900 og verður þar meðal annars opnuð sérstök sýning á myndum og munum frá Konungskomunni 1907 á Byggðasafninu í Húsinu, þar sem sjá má náttpott hans hátignar, sem hann notaði á ferð sinni um landið. Þá mun leikfélagið sýna ein- þáttunginn Boðorðið eftir Chekov og veitingastaðurinn Rauða húsið á Eyrarbakka býður upp á sér- stakan aldamótamatseðil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.