Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 28
„Ætlarðu ekki að koma með okkur
að kjósa?“ spurði ég litlu Sól í morg-
un.
„Kjósa Össur?“ spurði hún á móti.
Það segir mér tvennt, að hún hefur
greinilega stjórnmálahæfileika úr
því að hún kann að svara einfaldri
spurningu með annarri spurningu,
og sömuleiðis að hún er frændræk-
in vel.
Ég var að hugsa um að benda
henni á að Geir Haarde er líka
fjarskyldur ættingi hennar og er í
framboði í Reykjavík rétt eins og
Össur frændi. En ég fór ekki út í
að útskýra kjördæmaskiptingu og
reglurnar um úthlutun fyrir henni.
Ekki vegna þess að barnið er bara
þriggja ára, heldur vegna þess
að þetta kosningakerfi er ofvaxið
mínum skilningi.
Á leið minni á kjörstað var ég að
hugsa um að stjórnmálaumræðan
síðustu daga fyrir kosningar ætti að
snúast um kosningamál – ekki skoð-
anakannanir.
Nú ættum við að taka skynsam-
lega á hlutunum og banna skoð-
anakannanir síðustu vikuna fyrir
kjördag og tryggja að samtöl við
stjórnmálamenn rétt fyrir kosning-
ar snúist um stjórnmálastefnur en
ekki um viðbrögð við nýjustu niður-
stöðum skoðanakannana.
Það hlýtur að vera réttur minn
sem einstaklings að biðja samfélag-
ið að vernda mig síðustu daga fyrir
kosningar fyrir sífelldu áreiti fólks
sem hefur tekjur af því að fram-
kvæma skoðanakannanir og vill
í sífellu troða upp á mig óþörfum
upplýsingum.
Nú byrjar fengitíminn hjá stjórn-
málaflokkunum. En áfallahjálp
hefur forgang.
Geir Haarde er með starfsfélaga
sinn Jón Sigurðsson í áfallahjálp,
strýkur honum um sveittan vang-
ann og hvíslar að honum í hugg-
unarrómi að þetta hefði allt saman
getað farið miklu verr.
„Sussubía, Nonni minn,“ segir
Geir góði. „Það hafa að vísu sviðn-
að á þér fjaðrirnar en þú ert samt
uppáhalds verndarengill okkar
Sjálfstæðismanna. Vertu bara ró-
legur. Það verður ekki kosið aftur
fyrr en eftir langan, langan tíma.“
Það er fallegt að sjá þessa hlýju
sem Geir sýnir. Best af öllu er að fá
að horfa á þetta í sjónvarpinu. Þarna
eru allir formennirnir mættir:
Það er greinilega ekki hættulaust
starf að aðstoða Sjálfstæðisflokk-
inn í ríkisstjórn. Í upphafi komu 17
þingmenn til þeirra stuðningsstarfa
frá Vinnumiðlun Framsóknar. Nú
lifa sjö. Tíu eru fallnir. Það er 60
prósent mannfall.
Aðeins Svarti dauði hefur skil-
ið eftir sig hærri dánartölur í sögu
Evrópu, um 30 prósent þar sem
hann kom mildast niður og rétt yfir
60 prósent þar sem hann var verst-
ur. Það er hluti af áfallahjálpinni hjá
Geir að segja að þetta séu rangar
tölur: „Það er gott og heilsusamlegt
að vinna með okkur,“ hvíslar hann
að Jóni og horfir á hann blíðlega.
Jón svitnar í fanginu á honum og
fær ósjálfráðar snerkjur í andlitið.
Steingrímur J. Sigfússon er
greinilega ekki jafn bjartsýnn á lífs-
líkur Jóns. Hann ávarpar sjúkling-
inn af kennivaldi og biður hann að
játa syndir sínar og iðrast fyrir
dauðann.
Sjálfur er Steingrímur hinn
sprækasti og ætlar engrar afsökun-
ar að biðjast á því að heimta „zero
Framsókn“, tala um „Framsókn og
spillingu“ og að útrýma Framsókn-
arflokknum.
Jón tók ekki tilboðinu, afþakkaði
náðarmeðulin. Sem var skynsam-
legt í ljósi íslenskrar stjórnmála-
sögu.
Í ofanverðum september árið
1264, nánar til tekið á 27. degi mán-
aðarins kom Oddaverjinn Þórður
Andrésson fyrir Gizurr Jarl Þor-
valdsson af ætt Haukdæla.
Þórður mælti þá: „Þess vil ég biðja
þig Gizurr jarl, að þú fyrirgefir mér
það er ég hef af gert við þig.“
„Það vil ég gera,“ segir Gizurr,
„þegar þú ert dauður.“
Síðan var Þórður hálshöggvinn.
Skrúfað fyrir öndunarvélina
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá sjúkrahúsvist, pólitískri fyrirgefningu og áfallahjálp. Einnig er vitnað í Sturlungu og
útskýrt hvernig breyta má Landspítalanum í hátæknisjúkrahús fyrir hundrað þúsund kall.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
ÞÚ HVÍLIST HVERGI
BETUR EN Á LANZAROTE