Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 90
 Valsstúlkur áttu frábært tímabil í fyrra og unnu bæði Ís- landsmótið og bikarkeppnina. Það er ekki auðvelt að sjá hvernig þær geta toppað síðasta sumar en Fréttablaðið hefur fundið krefj- andi markmið fyrir hið gríðar- sterka Valslið í sumar. Þegar Margrét Lára Viðars- dóttir yfirgaf Valsliðið í haust þá styrkti Hlíðarendaliðið sig með tveimur af betri leikmönn- um deildarinnar, öðrum marka- hæsta leikmanni hennar, Nínu Ósk Kristinsdóttur hjá Keflavík og Vanju Stefanovic sem hefur spilað með KR (2005) og Breiða- bliki (2006) síðustu ár. Auk þessa gekk sóknarmaðurinn Sif Atla- dóttir til liðs við liðið en hún hefur síðan blómstrað í stöðu hægri ba- kvarðar. Það var því ljóst að um leið og Margrét Lára sneri aftur var saman komið eitt allra sterk- asta íslenska kvennalið allra tíma enda voru átta leikmenn liðsins valdar í átján manna landsliðs- hóp á dögunum. Valsliðið er frá- bært sóknarlið sem sést ekki síst á því að tveir af öflugustu sókn- armönnum þess eru bakverðirn- ir Sif Atladóttir og Guðný Óðins- dóttir. Með besta leikmann deild- arinnar á skotskónum stendur síðan ekkert í vegi fyrir að liðið stefni á öll markametin í efstu deild kvenna. Valsstúlkur hafa ekki varið einn stóran titil af þeim fjórum sem liðið hefur unnið á þessari öld og það er því stórt markmið fyrir þær að mæta til leiks með pressuna á sér og vinna báða titl- ana sem liðið vann í fyrra. Það hefur ekkert lið unnið tvöfalt tvö ár í röð í 24 ár eða síðan Blika- stúlkur gerðu það þrjú ár í röð 1981 til 1983. Síðan þá hafa 9 lið unnið tvöfalt en engu þeirra tekist að verja báða titlana árið eftir. Valsliðið skoraði 87 mörk í 13 leikjum í fyrra og bætti marka- met KR frá 2002 um fjögur mörk. Valsliðið hefði getað bætt metið enn frekar en þar sem FH gaf síð- asta leikinn var liðið skráð hafa unnið leikinn 3-0. Markatala Vals- liðsins telst því hafa verið 90-8. Það ætti að vera spennandi fyrir Valsstúlkur að verða fyrsta liðið til þess að skora 100 deildarmörk á einu sumri en til þess þurfa þær að skora 6,3 mörk að meðaltali í leik en skoruðu 6,7 mörk að með- altali síðasta sumar. Það hafa aðeins tvö lið náð fullu húsi í efstu deild kvenna síðan hún innihélt fyrst 8 lið árið 1985, Breiðablik 1996 og KR árið eftir. Valssliðið getur bætt stigametið því liðið fær 16 leiki til þess að ná þessum 42 stigum. Vinni Valsliðið alla leiki sína fær það alls 48 stig og bætir stigametið um sex stig. Margrét Lára Viðarsdótt- ir bætti í fyrra 25 ára markamet Ástu B. Gunnlaugsdóttur um tvö mörk þrátt fyrir að leika aðeins 13 leiki á tímabilinu. Margrét Lára fær tækifæri til að bæta metið enn frekar í sumar þar sem hvert lið spilar nú 16 leiki vegna fjölgun liða í deildinni og markadrottning- in magnaða fær því þremur leikj- um fleira en síðasta sumar. Það hefur ekkert lið verið með betri markatölu en Valsstúlkur sumarið 2006 en þær skoruðu þá 82 fleiri mörk en þær fengu á sig og bættu met KR-liðsins frá sumr- inu 2002. Fyrstu mótherjar Valsliðsins er Stjarnan og fer leikurinn fram á Valbjarnarvellinum í kvöld. Landsbankadeild kvenna hefst í kvöld með þremur leikjum. Valskonur unnu tvöfalt í fyrra og hafa bætt við sig sterkum leikmönnum. Fyrir vikið ætti Valur að vera komið með eitt allra sterkasta lið allra tíma. Detroit Pistons tryggði sér sæti í úrslitum Austurdeildar NBA í fyrrinótt með 95-85 sigri á Chicago Bulls. Detroit komst í 3-0 í einvíginu. Bulls gáfust ekki upp, unnu næstu tvo leiki og því var spennan rafmögnuð í Detroit þar sem pressan á heimamönn- um var mikil. Ekkert lið í NBA hefur tapað sjö leikja viðureign eftir að hafa komist 3-0 yfir og það breyttist ekki þar sem Detroit fór með sigur af hólmi og verður nú í fimmta sinn í röð í úrslitum Austurdeildarinnar. Leikurinn var kaflaskiptur en gestirnir í Chicago leiddu allan fyrri hálfleik. Eftir að hafa verið 48-43 undir í hálfleik tóku leik- menn Detroit sig saman í andlit- inu og komust yfir í þriðja leik- hluta sem þeir unnu með tíu stig- um. Chicago náði sér síðan aldrei á strik í fjórða og síðasta leikhlut- anum og þægilegur tíu stiga sigur Detroit var staðreynd. „Það kom ekki til greina að tapa fyrir framan okkar eigin áhang- endur. Við vissum að við þyrftum að leggja okkur alla fram í þess- um leik til að ná sigri,“ sagði Ri- chard Hamilton eftir leikinn og félagi hans Tayshaun Prince tók í svipaðan streng. „Við töluðum aldrei um að það kæmi til leiks númer sjö. Við vildum virkilega sýna hvað í okkur býr í þessum leik.“ Hamilton var stigahæst- ur heimamanna með 23 stig en Chauncey Billups skoraði 21. P.J. Brown setti 20 stig fyrir Chicago og Ben Gordon skoraði 19. Detroit mætir annaðhvort New Jersey Nets eða Cleveland Cavali- ers í úrslitunum. Chicago Bulls játaði sig loks sigrað Umboðsmaður Svíans Freddies Ljungberg sagði í gær að hann væri ekki á leið frá félag- inu eins og greint hefur verið frá í vikunni. Því hefur verið hald- ið fram að Arsene Wenger ætli að losa sig við ellefu leikmenn fyrir næsta tímabil. „Ég get staðfest að upplýsing- arnar séu rangar. Freddie vill vera áfram hjá Arsenal og félagið vill halda honum,“ sagði umboðs- maðurinn. Meðal þeirra sem eru sagð- ir á förum eru Philippe Senderos, Jeremie Aliadiere, Jose Antonio Reyes og Julio Baptista. Ljungberg fer hvergi Fabio Capello hefur tíma- bilið til að bjarga starfi sínu hjá Real Madrid. Predrag Mijatovic, yfirmaður íþróttamála hjá spænska stórveldinu, neitaði að segja nokk- uð um framtíð stjórans á blaða- mannafundi í gær og rennir það frekari stoðum undir þær fregni að hann verði rekinn í sumar. Eftir dapra spilamennsku og slæm úrslit er Capello undir gríð- arlegri pressu en hann á enn mögu- leika á að halda starfinu vinni hann spænsku deildina. Real er á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir en Bernd Schuster, stjóri Getafe, er talinn líklegastur til að taka við af Capello. Enn í óvissu Alessandro Nesta hefur framlengt samning sinn við AC Milan til ársins 2011. Þessi sterki varnarmaður átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og var hann sterklega orðaður við sitt gamla félag Lazio. Nesta er 31 árs gamall og ætlar sér að vera út ferilinn hjá Mílanóliðinu. Framlengir hjá AC Milan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.