Fréttablaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Tvennir tónleikar Josh Groban
á þriðjudags-og miðviku-
dagskvöldinu þóttu heppn-
ast með hreinum ágætum
og féllu ófá tár yfir tilþrif-
um hans á sviðinu. Ísleif-
ur B. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Concert,
sagði það hafa verið
ótrúlega upplifun að
horfa yfir salinn og
sjá grátbólgin augu og
klúta á lofti. „Hann og
allir í kringum hann
voru alveg ótrúlega
ánægðir með ferð-
ina og ég er búin að
fá urmulinn allan af
tölvupóst frá þeim
þar sem þeir segja
þetta hafa verið yndislega dvöl,“
segir Ísleifur sem var komin
til Cannes til að skoða nýj-
ustu myndirnar fyrir Græna
ljósið.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu var haldið smá teiti
fyrir Groban og fylgdar-
lið hans á skemmti-
staðnum Rex í Aust-
urstræti á miðviku-
dagskvöldinu. Fjöldi
fólks lagði leið sína
til að samgleðj-
ast Groban yfir
góðu gengi og sam-
kvæmt heimildum
Fréttablaðsins naut
Groban ekki síður
mikillar kvenhylli
þar en í Laugardalshöllinni. Og
sneri víst ekki einn síns liðs aftur
upp á hótelherbergið.
Sjónarvottar sáu Groban yfir-
gefa Rex síðla kvölds í fylgd með
ungri ljóshærðri snót og keyrðu
þau burt í glæsilegri Lexus-
bifreið sem beið söngvar-
ans. Þá mun Groban hafa
komið við á Vegamótum
þar sem ófáar yngismeyj-
arnar létu mynda sig við
hlið stórstjörnunnar. Og
kunni hann því víst ákaf-
lega vel og brosti sínu breið-
asta. Groban lýsti því yfir
í viðtali við Fréttablaðið
ekki alls fyrir löngu
að hann væri pip-
arsveinn en hygð-
ist koma sér upp fjölskyldu fyrr
en síðar. Og hver veit nema næsti
tengdasonur Íslands verði einmitt
Groban.
Ísleifur segir að Groban hafi
þegar lýst yfir áhuga sínum
að koma aftur hingað til
lands og endurtaka leik-
inn, slík hafi ánægjan
verið með tónleikana. Og
væntanlega teitið líka.
Groban með íslenska dömu upp á arminn
„Það eina sem ég get sagt á þessu
stigi er að þetta er ekki „boy-
band“. Ef kalla má þetta eitthvað
er þetta strákakvartett eða söng-
hópur,“ segir Einar Bárðarson,
umboðsmaður Íslands.
Einar situr ekki auðum hönd-
um frekar en fyrri daginn og um
mánaðamótin næstu hyggst hann
efna til áheyrnarprófs. Hann er á
höttunum eftir karlkyns söngvur-
um á aldrinum 18 til 35 ára. Hóp-
inn hyggst hann láta syngja inn á
plötu sem ráðgert er að komi út í
haust og verður efni hennar ein-
hvers konar blanda af klassískri,
trúarlegri og dægurtónlist. Eitt-
hvað í líkingu við Il Divo hópinn
hugsanlega. Þá er hugmyndin að
þegar stofnað hefur verið til söng-
hópsins muni hann koma fram við
ýmis tækifæri. Einar ætlar með
kvartettinn eins langt og hægt er
og helst lengra.
Fastlega má gera ráð fyrir því
að menn komi í hópum til að syngja
fyrir Einar og hans fólk en þar fer
fremst í flokki Kristjana Stefáns-
dóttir söngkennari. Þau tvö leiddu
einmitt Jógvan Hansson til sig-
urs í X-Factor nú í vor. Þá vænt-
anlega spillir ekki fyrir glæsileg-
ur ferill og orðspor Einars á sviði
umboðsmennsku en skjólstæðing-
ur hans, Garðar Cortes, er nú að
gera það gott á Bretlandseyjum
sem og söngflokkurinn
Nylon. Nú eru ein-
mitt rétt liðin um
þrjú ár síðan Einar
boðaði til áheyrna-
prufa á Nordi-
ca Hótel og bauð
þangað stúlkum
á aldrinum 18
til 25 ára. Þær
komu í stór-
um hópum og
úr því varð
Nylon.
Aðspurð-
ur hvort ekki
sé þá rökrétt
að þessi kvartett heiti Bómull eða
The Cotton Boys segir Einar það
ólíklegt. „Neineinei, það er ekkert
nafn komið ennþá enda ráð fyrir
gert að ákveða allt slíkt í samráði
við þá sem verða fyrir valinu.“
Einar hefur engar áhyggjur af
því að ekki sé úr nægu að moða.
„Gríðarlega mikið er til á Íslandi
af hæfileikaríkum söngvurum.
Söngskóli Reykjavíkur, FÍH ... eru
stútfullir af efnilegum söngvur-
um.
En menn skulu ekki miða sig
eingöngu við þá sem hafa lært
söng. Þarna eru fleiri atriði sem
spila inn í. Við viljum fá sem flesta
á prufuna. Allir sem telja sig geta
sungið eiga að mæta.“
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvar áheyrnarprófin fara fram en
líklega verður það í húsakynnum
FÍH þar sem Kristjana Stefáns-
dóttir heldur til.
„Hún var alveg geggjuð kelling-
in,“ segir söngkonan Regína Ósk
Óskarsdóttir sem kom fram á
Baugsdeginum í Mónakó ásamt
stórsöngkonunni Tinu Turner.
Starfsfólk Baugs fékk óvæntan
glaðning á starfsdögum sínum
í Mónakó þegar hin aldna söng-
kona Tina Turner steig þar á svið.
Turner mætti með bakraddasöng-
konur og dansara og söng hátt í
tíu lög. Var henni ákaft fagn-
að. „Ég vil ekki vera að tjá
mig mikið um þetta en get
þó sagt að þetta var mjög
gaman. Ég söng nú ekki
með henni en fékk
að heilsa henni baksviðs,“ segir
Regína Ósk.
Fjölmörg skemmtiatriði
voru í boði á lokakvöldi Baugs-
dagsins. Breskur kynnir
sá um að halda gestum
við efnið og auk Turner
skemmti breskur búk-
talari svo eitthvað sé
nefnt. Stefán Hilm-
arsson söng
einnig fyrir
gesti.
Baugsdag-
urinn stóð í þrjá
daga, frá þriðju-
degi til fimmtudags.
Um er að ræða ár-
legan viðburð þar
sem blandað er
saman fræðslu og
skemmtun fyrir
starfsfólk Baugs á Íslandi og
hæstráðendur í fyrirtækj-
um sem Baugur á hlut í úti í
heimi. Eins og Fréttablaðið
greindi frá á miðvikudag
söng Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs,
Bubbalagið Stál og
hnífur fyrir sjálf-
an Simon Cowell í
sérstökum X-Fact-
or-þætti sem sýndur
var í Mónakó. Þá var
framleiddur sérstakur
þáttur með stjörnunum
úr Little Britain sem
kallaðist Little Baug-
ur.
Tina Turner söng á Baugsdegi
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Þórunn Sigurðardóttir
Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar
um heita vatni›
www.stillumhitann.is