Fréttablaðið - 19.05.2007, Side 4
Nicolas Sarkozy,
nýr forseti Frakklands, skipaði í
gær nýja ríkisstjórn landsins.
Hann efndi fyrirheit sitt um að
fækka ráðherrum um helming, úr
þrjátíu í fimmtán, og að fela
konum jafnmikla ábyrgð og körl-
um. Hann sótti ráðherraefni einn-
ig út fyrir raðir eigin flokks.
Hinn hægrisinnaði Sarkozy
gerði Bernard Kouchner, vinsæl-
an sósíalista, að utanríkisráð-
herra. Að Kouchner skyldi hafa
þegið boðið er áfall fyrir Sósíal-
istaflokkinn nú í aðdraganda þing-
kosninganna sem fara fram 10. og
17. júní. Talsmenn flokksins lýstu
því strax yfir að þeir litu nú svo á
að Kouchner væri ekki lengur í
flokknum.
Athygli vekur einnig að Alain
Juppé, sem um skeið var forsæt-
isráðherra í forsetatíð Jacques
Chirac, er nú aftur sestur í ríkis-
stjórn, í þetta sinn sem umhverf-
isráðherra. Það þykir sæta tíðind-
um ekki síst í ljósi þess að hann
var árið 2004 dæmdur í skilorðs-
bundið fangelsi fyrir aðild að pól-
itísku fjármálahneyksli.
Kona af norður-afrískum upp-
runa, Rachida Dati, tekur við
dómsmálaráðuneytinu og Sarkozy
fékk náinn samherja, Brice Hort-
efeux, til að fara fyrir nýju og
umdeildu ráðuneyti innflytjenda-
og þjóðernismála.
Sarkozy, sem er stjórnmála-
maður sem skoðanir fólks eru
mjög skiptar um, hefur frá því
hann sigraði sósíalistann Ségol-
ène Royal í úrslitaumferð forseta-
kosninganna 6. maí reynt að sýna
sig sem landsföður sem leggi sig
fram við að sameina andstæðar
fylkingar. Val hans á François
Fillon, hófsömum íhaldsmanni, til
þess að fara fyrir nýju stjórninni,
er álitið liður í þessari viðleitni
hans.
Að sjö af fimmtán ráðherrum
skuli vera konur er tvímælalaust
nýr áfangi að jafnrétti í Frakk-
landi, þar sem konur fengu fyrst
kosningarétt árið 1944. Enn þann
dag í dag eru aðeins 14 prósent
þingmanna á franska þinginu
konur.
Michele Alliot-Marie, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra, mun
sem nýr innanríkisráðherra stýra
aðgerðum Frakka í hryðjuverka-
vörnum. Sarkozy gegndi því
embætti í fjögur af síðastliðnum
fimm árum.
Jean-Louis Borloo, vinsæll fyrr-
verandi atvinnumálaráðherra, er
nýr ráðherra efnahags- og fjár-
mála. Hervé Morin úr miðju-
flokknum UDF tekur við varnar-
málaráðuneytinu.
Frakkar fá straumlínu-
lagaða jafnréttisstjórn
Með vali á ráðherraefnum úr fleiri flokkum en sínum eigin og með því að fela
konum sjö af fimmtán ráðherraembættum reynir Nicolas Sarkozy, hinn nýi for-
seti Frakklands, að sýna að sér sé umhugað um sættir milli pólitískra fylkinga.
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
74
76
0
5/
07
METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM
6 námsleiðir
BA í hagfræði
BS í hagfræði
BS í fjármálum
Umsóknarfestur er til 5. júní.
Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr.
Styrktu stöðu þína og sæktu um.
Rafræn skráning og upplýsingar
um námið eru á vef viðskipta- og
hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is.
BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
BS í reikningshaldi
BS í stjórnun og forystu
Starfssamningur við
Boga Nilsson ríkissaksóknara
hefur verið framlengdur fram að
áramótum. Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra tilkynnti umsækj-
endum um þetta í gær. Starfið
verður auglýst að nýju laust til
umsóknar síðar á árinu.
Bogi ætlaði sér að hætta störf-
um 1. júlí og var staðan auglýst
laus til umsóknar eftir að Bogi til-
kynnti um áform sín. Fimm sóttu
um stöðuna í upphafi, hæstarétt-
arlögmennirnir Egill Stephensen,
Jón H.B. Snorrason, Jóhannes
Rúnar Jóhannsson, Sigríður Frið-
jónsdóttir og Brynjar Níelsson.
Jóhannes Rúnar dró umsókn sína
til baka eftir að starfsviðtöl höfðu
farið fram.
Í viðtali við Fréttablaðið sagðist
hann líta svo á að stöðunni hefði
þegar verið ráðstafað, en Björn
sjálfur þyrfti að svara því hvort
það væri til Jóns H.B. Snorrason-
ar saksóknara hjá lögreglustjór-
anum í Reykjavík. Jón var áður
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra. Björn neitaði
því alfarið að búið væri að ráð-
stafa stöðunni og sagði mikilvægt
að „vanda til verksins“.
Skýrt var tekið fram að allir
umsækjendurnir hefðu verið
hæfir til þess að gegna embættinu
en á grundvelli samkomulags milli
Björns og Boga hefði verið ákveð-
ið að Bogi hætti störfum 1. janúar
2008 og starfið auglýst að nýju
seinna á árinu.
Starfið verður auglýst að nýju
Landsþing Slysavarna-
félagsins Landsbjargar hófst í gær
og heldur áfram í dag. Um 500
manns hvaðanæva af landinu
sækja þingið sem að þessu sinni er
haldið í Reykjanesbæ. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
ávarpaði þingið í gær.
Í dag keppa björgunarsveitir í
björgunarleikum sem fram fara
víðs vegar um Reykjanesbæ og
almenningi gefst kostur á að
reyna sig í ýmsum þrautum. Þá
verður sýning á búnaði björgun-
arsveitanna við Duushús í
Keflavík.
Keppt í björg-
unarleikum
Slökkviliðsmenn á
Akureyri stóðu vaktina á svæði
Hringrásar fram undir morgun í
gær.
„Slökkvistarfi lauk formlega
klukkan þrjú eða tólf tímum eftir
að tilkynnt var um eldinn,“ segir
Þorbjörn Haraldsson slökkviliðs-
stjóri á Akureyri. Þegar eldurinn
var kulnaður var unnið að því að
tæta í sundur hjólbarðahauginn
og kæla hann niður. Slökkviliðs-
menn héldu heim klukkan tíu um
morguninn.
Þorbjörn segir að slökkvistarf-
ið hafi gengið vel og það hafi
verið mildi að vindátt var ekki
önnur. „Ef reykinn hefði lagt yfir
bæinn hefði þurft að rýma hús en
til allrar hamingju sluppum við
við það,“ segir Þorbjörn.
Slökkvistarf tók
hálfan sólarhring
Karlmaður og tvær
konur voru handtekin við húsleit
í miðborginni á miðvikudags-
kvöld. Nokkuð af fíkniefnum
fannst á staðnum en einnig
fjármunir sem taldir eru
tengjast fíkniefnasölu.
Karl Steinar Valsson, yfirmað-
ur fíkniefnadeildar lögreglunnar,
segir að efnið sé að öllum
líkindum hass og amfetamín. Það
var líkast til ekki ætlað til
dreifingar. Fólkinu hefur verið
sleppt og málið telst upplýst.
Þrír handteknir
við húsleit
Átján ára piltur hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 12. júní vegna ítrekaðra afbrota.
Maðurinn reyndi að ræna verslun
með andlit hulið nælonsokki í
október, en stökk á flótta þegar
afgreiðslukonan neitaði og sagðist
þekkja hann í gegnum sokkinn.
Í janúar stóð lögreglan hann að
því að reyna að brjóta upp
hraðbanka með kúbeini, og hann
braust inn á tannlæknastofu og stal
þaðan ýmsu. Þá braust hann inn á
verkstæði og heimili í grenndinni
skömmu síðar. Þá braust hann í
tvígang inn í búð sem selur
hjálpartæki ástarlífsins um síðustu
helgi. Hann á sakaferil að baki.
Klámunnandi í
gæsluvarðhald