Fréttablaðið - 19.05.2007, Page 6

Fréttablaðið - 19.05.2007, Page 6
 Næðingur lék um Bessastaði þegar Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gekk á fund forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Geir renndi í hlað klukkan ell- efu ásamt Bolla Þór Bollasyni, ráðuneytisstjóra forsætisráðu- neytisins. Inni biðu forseti og nánustu samstarfsmenn hans; Örnólfur Thorsson forsetaritari og Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri á forsetaskrifstofunni. Svo sem til siðs er skrifaði Geir nafn sitt í gestabók Bessastaða áður en hann hélt inn í Bessastaða- stofu þar sem forsetinn tók á móti honum. Eftir myndatökur gengu þeir til bókhlöðu Bessastaða þar sem þeir sátu í þrjá stundarfjórðunga. Geir hafði meðferðis skjalfesta tillögu um að forseti veitti ráðu- neytinu lausn. Slíkt skjal hefur ekki verið skrifað síðan 1995 þegar Davíð Oddsson óskaði eftir lausn fyrir ráðuneyti sitt í forseta- tíð Vigdísar Finnbogadóttur. Eftir fundinn skýrði forseti frá því að hann hefði fallist tillöguna og jafnframt falið Geir myndun nýrrar ríkisstjórnar er nyti meiri- hluta þingmanna. Sagðist hann jafnframt ekki sjá ástæðu til að ræða við formenn annarra stjórnmálaflokka enda hefði hann orð Geirs og upplýsing- ar úr fjölmiðlum um ríkan vilja forystu Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingarinnar til myndunar ríkis- stjórnar. Á meðan þessu fór fram hafði vindinn lægt. Sólbjartur, stilltur sumardagur mætti því Geir þegar hann gekk af fundi forseta með umboð til stjórnarmyndunar upp á vasann. „Í ljósi þess að stærsti stjórnar- andstöðuflokkur- inn, Samfylking- in, hafði lýst því yfir að hann væri tilbúinn að mynda stjórn með Sjálfstæðis- flokknum þá þykir mér ekki undarlegt að forsetinn láti sér nægja að kalla Geir einan inn,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Hann telur tómt mál að kvarta yfir því að formenn annarra flokka hafi ekki verið kallaðir til forseta. „Það er ekkert hægt að gera nema hafa annað hvort Sjálfstæð- isflokkinn eða Samfylkinguna með í ráðum. Það er bara ekki nægilegur þingmannafjöldi til að mynda stjórn. Ég er aftur á móti ekki viss um að stjórn þessara tveggja flokka sé það besta sem völ var á fyrir land og þjóð. Ég velti því fyrir mér hvað verði um málefni landbúnaðar og sjávarútvegs.“ Geir veitt umboð til stjórnarmyndunar Forseti Íslands fól formanni Sjálfstæðisflokksins myndun nýrrar meirihluta- stjórnar í gær. Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hófust strax í kjölfarið. „ Þegar forsætis- ráðherra slátrar sinni eigin ríkisstjórn og boðar þá næstu í sömu setningu þá sér maður að þetta er partur af atburðarás sem er handan við svið manns,“ segir Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. „Áhugi þeirra á að taka við sæti Framsóknar var mjög mikill. Ég er að fá upplýsingar um að jafnvel fyrir kosningar hafi þetta verið komið í kortin. Samfylkingin hefur nú afsalað sér þeirri stöðu sem flokkurinn byggði á, það er að vera mótvægi við Sjálfstæðis- flokk. Hún verður nú að sætta sig við hlutskipti flokks sem fer í stjórn undir forystu sjálfstæðis- manna.“ Það telur hann ekki heppilegt hlutskipti og bendir á að Alþýðuflokkur og Framsókn hafi misst um helming fylgis síns eftir að hafa verið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. „Trúnaðarbrest- ur varð milli Framsóknar- flokks og Sjálfstæðis- flokks þegar sjálfstæðismenn ræddu við aðra flokka á meðan formaður flokksins ræddi við Framsóknar- menn, segir Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins. Jón segir að viðræður Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar hafi greinilega verið komnar lengra en aðrir hafi gert sér grein fyrir á meðan viðræðum við Framsóknarflokkinn var haldið áfram. Hann trúi þó ekki að formaður Sjálfstæðisflokks- ins hafi staðið í þeim sjálfur. Jón sagði ekki óeðlilegt að forseti Íslands hafi ekki rætt við formenn allra flokka áður en hann fól formanni Sjálfstæðis- flokksins stjórnarmyndunarum- boð, í ljósi ummæla formanns Samfylkingarinnar í fjölmiðlum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.