Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 72

Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 72
Norðaustanvindurinn ýtir breið- um, þungum bylgjum úr Íshafinu suður. Skútan liggur á 300 faðma dýpi 60 mílur austur af Langa- nesi, og bylgjurnar velta henni með hægum, föstum takti, og það brakar í viðum hennar. Þetta er snemma morguns, og brakið í viðum skútunnar hljómar eins og hrotur. Hún veltur þyngra undan vindinum, í stjórnborða, og þá er eins og hún andi að sér; svo velt- ur hún í bakborða og andar frá sér. Skútan andar djúpt, hrýt- ur hátt, sefur fast. En stórseglið vakir. Það er barkarlitað með eina hvíta bót og slengir bómunni út í hverri veltu, kippir í tóin, rykkir í stuðtalíuna, og reynir að slíta sig laust. Jónas Árnason: Færeyingar (Veturnóttakyrrur 1957) „Þingmaðurinn og hans þingflokk- ur setur niður við slíka fram- göngu,“ segir í aðsendri grein í Mbl. 3. maí. Hvað skyldi þing- maðurinn setja niður? Kartöflur? Varla setur hann niður þolfall. Oft heyrum við tekið svo til orða, að eitthvað sé svona „á hinum Norðurlöndunum“. Það er órökrétt því að þá erum við um leið að segja að okkar land sé „þetta Norðurland“ – sbr. for- nöfnin þessi og hinn – og það dytti engum í hug. Miklu betur fer á því að segja einfaldlega „annars stað- ar á Nörðurlöndum“. er býsna einkennilegt orð. Frum- merking er að bera eitthvað í huga sér, og þannig er elsta dæmi í rit- máli, í Píslarsögu sr. Jóns Magnús- sonar frá miðri 17du öld og aftur í Árbókum Espólíns. En merkingin vitleysa, fjarstæða, ímyndun eða heilaspuni (sem er líka skemmti- legt orð) kemur fyrst fyrir í Fjölni, – og allar götur síðan. Jón Gunnar Sæmundsson bendir á notkun lo. geðveikur í Fréttablað- inu 21. apríl: „...getur maður borð- að yfir sig af geðveikum mat“. Lo. geðveikur er auðvitað haft um alvarlega sjúkdóma, sem eng- inn skyldi skopast að. Því miður hefur borið á því sem eins konar unglingaslangri að nota orðið sem sterkt atviksorð, að e-ð sé „geð- veikt skemmtilegt“ – eða kannski segja unglingarnir „kúl“ enda þykir þeim fínt að sletta ensku. En eitt er unglingatalmál og annað al- vöruskrif í dagblöðum. Því þótti mér hörmulegt að sjá í fyrirsögn í Lesbók Mbl. 5. maí: „Ja, þið eruð bara að mælast geðveikt vel.“ Hélt ég satt að segja að þar á bæ væri meiri metnaður og aðrar kröfur um málfar. Getur það stafað af einhverri innbyggðri ofbeldishneigð að nú þykir fínt að „berja e-ð augum“ í stað þess að aðgæta, gá, horfa á, líta, sjá, skima, skoða, skyggnast, virða fyrir sér? Ekki skortir orð. Ragnar Böðvarsson sendir þessa braghendu um varðandi-staglið: Varðandi hvað varðar þetta verður gaman er við losnum loks við amann af leti og heimsku að vinna saman. 67 km til Írak Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.gatur.net ÞÚ GÆTIR UNNIÐ CHAMIONS LEAGUE FYRIR PLAYSTATION 2 I I I I I LEYSTU KROSSGÁTUNA!! Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON. Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Ég endaði dvöl mína hér í Teh- eran á að flýja stórborgina og eyddi síðustu helginni minni með nokkrum vinum í Suður-Íran í rík- asta héraðinu, nefnilega Khuzest- an. Khuzestan er olíufylkið, flest- ir skýjagljúfrar í Teheran eru byggðir fyrir peninga sem koma þaðan. Samt sem áður er fólkið þar fátækt. Peningarnir fara allir til borgarinnar. Það eru flug á 20 mínútna fresti til Ahvaz og flug- vélin var full af olíubransafólki. Þegar ég labbaði út úr flug- vélinni labbaði ég á vegg. Hitinn sem var yfir 40 gráður var nánast óbærilegur en svartur síðerma- klæðnaður og slæða á höfðinu var samt ennþá skylda og svitinn rann eftir bakinu. Þegar við keyrðum í klukkutíma frá flugvellinum til Shush sem var áfangastaður okkar sáum við olíuna brenna út í loftið á staurunum sem gnæfðu upp úr jörðinni. Mjög tilkomu- mikið og ég fann næstum lyktina af peningunum í loftinu. En Khuzestan er líka ríkasta landbúnaðarhérað Íran. Þar renna þrjár stórar ár í gegn og skapa úrvalsræktunarland. Þar vinna bændur hörðum höndum á hveiti- ökrum og sykurökrum, og allir mögulegir ávextir og grænmeti eru líka ræktaðir á svæðinu. Vegna þess hversu ræktunar- land er gott á svæðinu eru þarna elstu minjar um byggð í Íran að finna og þarna settust þeir fyrst að. Shush var ein af mikilvæg- ustu borgunum í fornu Persíu. 4000 ára fornminjar liggja alltum kring. Íran hefur aldrei hætt að koma mér á óvart og það var því mjög ánægjulegt að komast að því að í miðri eyðimörk í Shush sem engir túristar hafa heyrt talað um - kannski af því að þar eru engin hótel og engir veitinga- staðir, og fólksfjöldinn nokkrar hræður - eru einhverjar merki- legustu fornminjar Írans að finna. Darius I byggði vetrar- höll þarna 521 fyrir Krist sem svipar til Persepol- is. Höllin lifði af Alex- ander mikla en eftir árás Mongólanna hvarf höllin í sand og fannst ekki fyrr en á 19. öld þegar fransk- ir fornleifafræðingar hóf- ust handa við að grafa upp höllina. Íranski hlutinn í Louvre-safninu í París kemur því allur frá þessu svæði. Þeir sem hafa séð minjarnar í Louvre geta farið til Shush og séð það sem var skilið eftir. Héraðið liggur upp við Írak og því vorum við með næturverði til að passa okkur á nóttunni. Í 67 km fjarlægð í Írak ríkir nefnilega al- gjör lögleysa og óstjórn. Banda- ríkjaher þykist vera á staðnum en er aðallega í Baghdad þannig að restin af Írak er frekar afskipta- laust. Íbúarnir í Khuzestan eru af arabískum uppruna og þó að pers- neska sé opinbera tungumálið þá er arabíska aðaltungumálið. Inn- fæddir gera ekki greinarmun á fólkinu hinum megin við landa- mærin. Þetta er sama fólkið, sama jörðin og í hugum þeirra eru engin landamæri. Frændur og frænk- ur búa hinum megin við línuna og þau ferðast á milli. Saddam Hussein reyndi mikið að kom- ast yfir fylkið í stríðinu við Íran 1980-1988 vegna auðlindanna sem finn- ast hér; olía og ræktun- arland. Fylkið varð því verst úti í stríðinu og um hálf milljón Írana lét hér lífið við að vernda Khuz- estan. Á föstudeginum sátu konurnar í moskunni, sem er líka aðalfélagsmiðstöðin, og báðu, sungu, görguðu og böð- uðu út höndum, þetta var eins og að labba inn í fuglabjarg og ég hef aldrei séð eins mikla karaktera. Gömlu konurnar með sólþurrk- uð andlitin eins og krumpað- ar sveskjur, þykk gleraugu með svörtum þykkum umgjörðum og svörtu klútana vafða um höfuðið „arab-style“. Við gistum á sannkölluðu óðali, í gömlu stóru húsi með þjónustu- fólki, kokkum og einkabílstjór- um. Og eins og alltaf var gest- risnin í hámarki og þetta fólk bar mig á höndum sér. Þetta var full- kominn endir á fullkominni dvöl í frábæru landi sem hættir ekki að koma á óvart. Fólkið og menn- ingin er stórkostleg. Hér hef ég eignast vini á mettíma og því var hálf dapurt að koma aftur til Teh- eran til að pakka ofan í tösku og kveðja. Það veit svo sem enginn hvað gerist næst í íslamska lýðveld- inu Íran sem heldur áfram að óhlýðnast bandaríska stórveld- inu og setja hömlur á eigin íbúa en ég vona innilega að landið verði látið í friði og að fólkið fái frið til að lifa sínu lífi. Ég kveð núna Íran í bili og þakka öllum sem lásu pistlana. Khodahafez!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.