Fréttablaðið - 19.05.2007, Page 76
Leiðin á milli gamla og nýja tímans
17.00
Kór eldri Þrasta og Samkór
Rangæinga halda tónleika í
Hásölum í Hafnarfirði í dag.
Stjórnandi beggja kóranna
er Guðjón Halldór Óskars-
son. Aðgangur er ókeypis.
Hönnunarsýningin MAG-
MA/KVIKA verður opnuð á
Kjarvalsstöðum í dag. Sýn-
ingin, sem er hluti af Lista-
hátíð, er ein sú viðamesta
sem sett hefur verið upp um
íslenska samtímahönnun og
spannar allt frá súkkulaði-
fjöllum til stoðtækja.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdótt-
ir, hönnuður, er sýningarstjóri
Magma/Kviku. Hún segir val á
verkum til sýningarinnar hafa út-
heimt mikla leit. „Ég reyndi að
finna það sem mig langaði að sjá,
hvað væri eiginlega að gerast
hérna. Það þarf að hafa fyrir því
að grafa það upp,“ sagði hún. Upp-
gröfturinn skilaði af sér verkum
rúmlega 80 íslenskra hönnuða og
er sýningin fyrir vikið afar fjöl-
breytt. Á meðal verka á Magma/
Kviku má finna allt frá pallíettu-
fossi til endurskinsmerkja, frá
gaddavírsbangsa og snjóbrettum
til matarstells og vasa. Verk hönn-
uðanna eru öll ný af nálinni, enda
sýningin sannkölluð samtímasýn-
ing.
„Þetta er ekki yfirlitssýning.
Hún teygir sig tvö, þrjú ár aftur
í tímann, en snýst um það sem er
að gerast nákvæmlega núna í ís-
lenskri hönnun,“ útskýrði Guðrún
Lilja. Fimm hönnuðir hafa þar að
auki tekið þátt í sérstöku nýsköp-
unarverkefni fyrir sýninguna.
Þeir eru þau Ninna Þórarinsdótt-
ir, Páll Einarsson, Sigríður Heim-
isdóttir, Unnur Friðriksdóttir og
Þórunn Árnadóttir, sem frumsýna
öll verk á Magma/Kviku.
Íslenska hönnun segir Guðrún
Lilja vera afar alþjóðlega. „Rauði
þráðurinn í sýningunni er kannski
bara kraftur, en ég sé engin sér-
þjóðleg einkenni,“ sagði hún. Tit-
ill sýningarinnar vísar í þennan
sama kraft, bæði á íslensku og
ensku. „Hluti sýningarinnar fer
líka til New York, þar sem verður
forsýning frá 31. maí til 3. júní,“
sagði Guðrún Lilja.
Guðrún Lilja leitast einnig við
að vekja fólk til umhugsunar um
hönnun í umhverfi sínu. „Fólki
finnst hönnunin í kringum sig
oft vera svo sjálfsögð. En það er
mikil hugsun á bak við hana, sama
hvort um ræðir lítinn smáhlut eða
hátæknitæki. Ég hef verið að leita
eftir því að finna hvað er á bak við
hlutina, svo að fólk almennt verði
meðvitaðra um hönnun í umhverf-
inu,“ sagði hún.
Samhliða sýningunni verður
gefin út vegleg bók um íslenska
samtímahönnun. Jafnframt verð-
ur opnuð verslun á Kjarvalsstöð-
um, þar sem sumir hlutanna á
sýningunni verða til sölu. Í norð-
ursal Kjarvalsstaða verður sýn-
ingin Kveikja – Opin listsmiðja
til húsa. Þar gefst börnum kost-
ur á að smíða úr gömlum íspinna-
prikum og skoða ný leikföng sem
byggjast á sömu hugmyndafræði.
Einnig verður efnt til fræðslu- og
fyrirlestrardagskrár á sýningar-
tímabilinu og í hverju fimmtu-
dagshádegi leiða hönnuðir gesti
um sýninguna.
Magma/Kvika er unnin í sam-
vinnu við Hönnunarvettvang
og er á dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík. Hún stendur yfir til
26. ágúst.
Ari Sigvaldason, fyrrver-
andi fréttamaður á Rúv,
hefur söðlað um. Hann opn-
ar ljósmyndagalleríð Fótó-
grafí á Skólavörðustígnum
í dag.
Framkvæmdastjórn Fótógrafí er í
höndum Ara, en þeir Stígur Stein-
þórsson, leikmyndahönnuður, Stef-
án Einars-
son, grafískur
hönnuður og
Sigvaldi Ara-
son, faðir Ara,
standa einnig
að baki gallerí-
inu.
„Ég hef verið
að taka ljós-
myndir í tut-
tugu ár og hef
haldið nokkr-
ar sýningar.
Mig langaði að finna einhvern flöt
á því að vinna við þetta,“ útskýrði
Ari. Ljósmyndagallerí eru af skorn-
um skammti í Reykjavík og að sögn
Ara hefur uppgangur í sölu ljós-
mynda í heiminum öllum ekki náð
til Íslands. „Um allan heim er mik-
ill uppgangur í sölu ljósmynda. Ég
held að unga fólkið í dag vilji ekk-
ert síður hafa ljósmyndir á veggj-
um hjá sér en málverk. Svo er líka
mikil gróska í ljósmyndun þessa
stundina, svo þetta er góður tíma-
punktur,“ sagði hann.
Í Fótógrafí verða ekki eingöngu
sýningar. „Hérna verða bæði búð og
sýningarsalur. Við erum með mynd-
ir eftir tuttugu ljósmyndara til sölu.
Svo er hellingur af ljósmyndabók-
um, bæði eldgömlum og glænýj-
um, póstkort og plaköt og bolir með
myndum á. Grunnhugmyndin er
sú að allt hérna inni byggir á ljós-
myndum,“ útskýrði Ari, en elsta
ljósmyndun er aldargömul. Ein
einkasýning í mánuði mun opna í
sérstökum sýningarsal og Ragn-
ar Axelsson, ljósmyndari Morgun-
blaðsins, ríður á vaðið.
Myndirnar eru verðlagðar á á bil-
inu 6.000 til 315.000 krónur. „Þær
verða merktar, svo fólk er kannski
að kaupa eitt eintak af tíu eða fimm.
Það eflir söfnunargildi og verð-
gildi,“ sagði Ari. Á meðal ljósmynd-
ara sem verða með verk sín til sölu
eru Ragnar Axelsson, Páll Stefáns-
son, Börkur Sigþórsson, Gunnar V.
Andrésson og Thorsten Henn. „Það
mun fjölga í þeim flokki,“ sagði Ari,
sem útilokar ekki að sýna sjálfur í
galleríinu. „Það getur vel verið, ef
það myndast einhvern tíma pláss
fyrir það.“
Fótógrafí helgað ljósmyndun