Fréttablaðið - 19.05.2007, Síða 86
Vålerenga vill halda Árna Gauti í sínum röðum
Efnilegasti handknatt-
leiksmaður landsins, Björgin
Hólmgeirsson, mun fara frá upp-
eldisfélagi sínu ÍR á næstu dögum.
Björgin hefur verið í viðræðum
við nokkur lið en svo virðist vera
sem Stjarnan leiði kapphlaup-
ið um Björgin sem hefur einn-
ig rætt við Hauka. Björgvin vildi
ekki staðfesta að um Stjörnuna
væri að ræða en sagði að málið
myndi skýrast fljótlega. Hann
staðfesti þó að hann væri búinn að
taka ákvörðun um hvar hann muni
spila næstu árin. Björgin er samn-
ingsbundinn ÍR til 1. júní.
„Mig langar ekkert að fara frá
ÍR en eins og staðan er núna er best
fyrir mig að fara. Það er ótrúlega
erfitt, erfiðara en margur heldur.
Allir vinir mínir eru þarna sem
ég hef þekkt alla ævi. Félagið er
frábært og pabbi minn [Hólmgeir
Einarsson] hefur gert frábæra
hluti þarna auk þess sem systkini
mín og mamma mín hafa verið hjá
ÍR,“ sagði Björgin við Fréttablað-
ið í gær en bróðir hans, atvinnu-
maðurinn Einar Hólmgeirsson
sem spilar með Großwallstadt, er
Björgvini innan handar.
„Við tölum mikið saman og
hann hjálpar mér mikið,“ sagði
Björgvin um bróður sinn en at-
vinnumennskan er einnig mjög
ofarlega í huga hinnar nítján ára
gömlu skyttu. „Ég hef stefnt að at-
vinnumennskunni frá því síðan ég
man eftir mér. Það er draumurinn
að vinna við eitthvað sem manni
finnst gaman að gera. Ég stefni á
atvinnumennskuna eftir nokkur
ár en ég er ekkert að flýta mér,“
sagði Björgin Hólmgeirsson sem
skoraði 145 mörk í 21 leik fyrir ÍR
á tímabilinu.
Það er ótrúlega erfitt að fara frá ÍR
Eggert Magnússon,
stjórnarformaður West Ham,
er ósáttur við þær aðferðir sem
Sheffield United beitir en félag-
ið leitar nú allra leiða til að sleppa
við fall. United vonast eftir því að
West Ham verði kært á nýjan leik
fyrir að standa ólöglega að kaup-
unum á Carlos Tevez og Javier
Mascherano. Hamrarnir fengu 5,5
milljóna punda sekt fyrir athæfið
en engin stig voru tekin af þeim og
héldu þeir sér þar með naumlega
uppi á kostnað Sheffield.
„Mér finnst ýmislegt sem sagt
hefur verið um þennan frábæra
klúbb vera óréttlætanlegt. Frá
mínu sjónarhorni séð voru bæði
Tevez og Mascherano skráðir lög-
lega. Það þarf ekkert að deila um
þetta. Margt hefur verið skrif-
að um málið til að koma á okkur
höggi en það eru allir sammála
um þetta, meðal annars FIFA og
stjórn ensku úrvalsdeildarinnar,“
sagði Eggert.
Ósáttur við
Sheffield Utd.
Argentínumanninn Car-
los Tevez langar að breyta til og
fara frá West Ham. Þessi snjalli
sóknarmaður var besti leikmaður
Hamranna á tímabilinu en hann
sagði á blaðamannafundi í heima-
landi sínu í gær að hann langaði
til að ganga til liðs við „risa í Evr-
ópufótboltanum“, en Tevez hefur
meðal annars verið orðaður við
Real Madrid. „Ég veit ekkert um
áhuga Real Madrid en ef það er
orðrómur í gangi hlýtur að vera
eitthvað til í þessu,“ sagði Tevez.
„Spænsku og ítölsku liðin eru
ekki búin að spila í deildunum og
ensku liðin eiga enn eftir að spila
úrslitaleiki og því eru þau líklega
ekki að hugsa um leikmannakaup.
Hvað sem líður ræður West Ham
ferðinni en ég held að það sé tími
til að fara í nýtt lið,“ sagði Arg-
entínumaðurinn.
Mig langar
að breyta til
Stefán Gíslason seg-
ist vera spenntur fyrir því að
prófa nýja hluti. Stefán er á mála
hjá Lyn í Noregi en hann verð-
ur samningslaus í árslok. Hann
horfir til þess að færa sig út fyrir
Skandinavíu með England sem
sinn fyrsta kost.
„Það eru þreifingar í gangi en
það er ekkert öruggt ennþá. Það
verður spennandi að sjá hvað ger-
ist í félagaskiptaglugganum í júlí
en hversu auðveldlega Lyn slepp-
ir mér fer eftir gengi liðsins.
Þeir hafa líka sagt mér að fari ég
myndu þeir helst ekki vilja selja
mig innan Noregs,“ sagði Stefán
við Fréttablaðið í gær.
„Ef það býðst eitthvað spenn-
andi væri gaman að breyta til. Ég
er kominn með fjölskyldu og því
yrði þetta stór ákvörðun en að
sjálfsögðu horfi ég til Englands.
Ef eitthvað slíkt myndi bjóðast
yrði það frábært,“ sagði Stefán.
Horfir spenntur
til Englands
Roland Valur Eradze
hefur samþykkt að leika áfram
í Stjörnunni, næsta tímabil að
minnsta kosti. Samningur hans við
félagið rann út í vor en nú stefnir
í að nýr samningur verði undirrit-
aður á næstu dögum.
„Það á enn eftir að ganga frá
nokkrum lausum endum en ég
mun spila í Stjörnunni á næsta
ári, það er rétt,“ sagði Roland við
Fréttablaðið í gær.
Það er mikið um að vera í leik-
mannamálum Stjörnunnar þessar
vikurnar en í gær var staðfest að
þeir Guðlaugur Arnarsson, Heimir
Örn Árnason og Hlynur Morthens
ganga til liðs við félagið og spila
með því næstu tvö árin.
Þá hefur Patrekur Jóhannesson
samþykkt að spila áfram með lið-
inu og Kristján Halldórsson verð-
ur áfram þjálfari þess.
Þorsteinn Johnsen, formað-
ur handknattleiksdeildar Stjörn-
unnar, staðfesti þetta í samtali
við Fréttablaðið í gær. Enn frem-
ur sagði hann ekki frágengið að
Björgvin Hólmgeirsson myndi
semja við Stjörnuna.
„Það er hins vegar klárt að þrír
aðrir leikmenn munu ganga til liðs
við félagið og verður greint frá
því í næstu viku hverjir það eru,“
sagði Þorsteinn.
Björn Óli Guðmundsson og Tite
Kalandadze verða ekki áfram hjá
Stjörnunni og þá hefur horna-
maðurinn Elías Már Halldórsson
samið við þýska 2. deildarliðið HC
Empor Rostock.
Það er ljóst að lið Stjörnunnar
verður afar vel mannað á næstu
leiktíð og mun án vafa gera tilkall
til Íslandsmeistaratitilsins.
Sem fyrr segir hefur Hlynur
Morthens markvörður gengið til
liðs við Stjörnuna en hann og Rol-
and munu deila markvarðarstöð-
unni.
„Mér líst vel á að fá Hlyn til
Stjörnunnar. Hann er góður mark-
vörður og við munum verða vinir,
ekki mótherjar, enda erum við í
sama liðinu. Það verður einhver
góð lausn fundin á þessu,“ sagði
Roland.
Meiðsli hafa hrjáð hann ítrekað
undanfarin ár og spilaði hann síð-
ustu þrjá mánuði leiktíðarinnar
meiddur í baki og öxl. Hann hefur
þó ekki gefið landsliðið upp á bát-
inn.
„Það hefur nú enginn haft sam-
band við mig frá landsliðinu en ég
er fyrst og fremst að hugsa um að
ná mér góðum af mínum meiðsl-
um. Það mun hafast með góðum
og réttum æfingum. En ef kall-
ið kæmi frá landsliðsþjálfaran-
um myndi ég gera allt sem í mínu
valdi stæði til að láta það ganga
upp.“
Það er mikið um að vera í leikmannamálum Stjörnunnar þessar vikurnar. Að
minnsta kosti sex leikmenn eru á leið í félagið auk þess sem Patrekur Jóhannes-
son spilar áfram með liðinu. Tite Kalandadze og tveir aðrir eru á leið burt.
Stuttgart getur í dag
tryggt sér þýska meistaratitilinn
með því að ná jafntefli á heima-
velli gegn Energie Cottbus í dag
er lokaumferðin fer fram.
Ásgeir Sigurvinsson lék með
liðinu árið 1984 er liðið varð
meistari og Eyjólfur Sverrisson
átta árum síðar við sama tilefni.
Þá starfaði Ásgeir hjá félaginu.
„Ég verð nú því miður ekki á
staðnum en mun fylgjast með
leiknum,“ sagði Ásgeir sem fylg-
ist ávallt vel með sínum mönnum.
„Svo eru bikarúrslitin framund-
an þannig að þetta gæti orðið tvö-
falt hjá okkur. Það hefur aldrei
áður gerst.“
Ásgeir er bjartsýnn fyrir loka-
umferðina. „Ég held að þetta geti
hreinlega ekki klikkað. Liðinu
hefur gengið vel að undanförnu
og komið bakdyramegin að topp-
sætinu. Fyrir tímabilið bjóst eng-
inn við því að liðið væri meistara-
efni.“
Stuttgart getur
orðið meistari