Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 8
www.xf.is
Frjálslyndi flokkurinn þakkar öllum þeim sem stuðluðu að
góðri útkomu flokksins í kosningunum 12. maí 2007.
Sérstakar þakkir fá þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar, um land allt,
sem unnu ötult starf fyrir flokkinn í kosningabaráttunni
og lögðu þar með grunn að öflugu starfi Frjálslynda flokksins
í framtíðinni.
Frjálslyndi flokkurinn mun hér eftir sem hingað til
berjast fyrir stefnumálum sínum af einurð, þrautseigju
og heiðarleika.
FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN
ÞAKKAR STUÐNINGINN
Verum með
fallegar tær
í sumar!
ll
í
NÝTT
Bylting í meðferð
á fótsveppi …
– sveppasýkingarlyfið
sem einungis
þarf að bera á
einu sinni!
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota
Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er
eingöngu ætlað til húð-meðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota
Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að
bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir algjöra
eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan,
Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Sérskipaður serbneskur
dómstóll sakfelldi í gær tólf menn
fyrir að myrða fyrsta lýðræðislega
kjörna forsætisráðherra Serbíu,
Zoran Djindjic, 12. mars árið 2003.
Réttarhöldin, sem hófust í desem-
ber árið 2003, hafa dregist á lang-
inn vegna skrifræðis og lagaflækja,
morða á tveimur vitnum, afsagnar
aðaldómara þegar mánuður var
eftir af réttarhöldunum, og tilrauna
eftirmanna Djindjic til að hafa
áhrif á réttarhöldin.
Milorad Ulemek, fyrrverandi
yfirmaður sérsveitar serbnesku
leynilögreglunnar, var dæmdur
fyrir að hafa skipulagt árásina á
Djindjic og Zvezdan Jovanovic,
undirforingi í sérsveitinni, var
dæmdur fyrir að vera sá sem skaut
Djindjic. Báðir fengu þeir 40 ára
fangelsisdóm sem er hámarksrefs-
ing samkvæmt serbneskum lögum.
Hinir tíu mennirnir fengu átta til
35 ára fangelsisdóma.
Í dómsúrskurðinum sagði að tólf-
menningarnir hefðu lagt á ráðin
um að myrða Djindjic til að stöðva
vestræna umbótastefnu hans, koma
bandamönnum fyrrverandi forseta
Serbíu, Slobodans Milosevic, aftur
til valda og stöðva frekara framsal
á grunuðum stríðsglæpamönnum
til stríðsglæpadómstóls Sameinuðu
þjóðanna í Haag í Hollandi.
„Þetta var ekki venjulegt morð,
þetta var pólitískt morð með það
markmið að grafa undan stöðug-
leika ríkisins,“ sagði yfirdómarinn
Nata Mesarovic.
Djindjic gegndi lykilhlutverki í
atburðarásinni þegar Milosevic var
komið frá völdum árið 2000. Síðar
framseldi hann Milosevic til stríðs-
glæpadómstólsins vegna aðildar
hans í grimmdarverkum í stríðinu
á Balkanskaga á tíunda áratugnum
í kjölfar þess að Júgóslavía var
leyst upp.
Allir sakborningarnir utan einn
neituðu við réttarhöldin að þeir
hefðu átt aðild að morðinu. Fimm
voru ekki viðstaddir réttarhöldin
þar sem þeir hafa farið huldu höfði
frá morðinu.
Fyrir utan dómshúsið sló í brýnu
milli nokkurra stuðningsmanna
Djindjic og aðstandenda sakborn-
inganna. Einn var handtekinn.
Tólf sakfelldir
fyrir morðið
á Djindjic
Morðingjar fyrsta lýðræðiskjörna forsætisráðherra
Serbíu, Zoran Djindjic, voru sakfelldir í gær. Djindjic,
sem gegndi lykilhlutverki þegar Milosevic var komið
frá völdum, var skotinn til bana fyrir fjórum árum.
„Pólitískt morð“ sagði í úrskurði.
Þjónusta Strætó verð-
ur skert í sumar og munu vagnar
fyrirtækisins aka á hálftíma fresti
frá 3. júní til 18. ágúst. Skerðingin
kemur til vegna sparnaðar, far-
þegafækkunar og manneklu.
Leið 16 verður lögð niður en tvær
nýjar hringleiðir teknar upp í Graf-
arvogi. Leiðir 25 og 26 í Kópavogi
verða einnig lagðar niður en tvær
nýjar koma í staðinn. Þá verða
kynntar tvær nýjar leiðir í Hafnar-
firði en leið 21 verður lögð niður.
„Þetta er vissulega þjónustu-
skerðing. Við teljum hins vegar að
við bætum þetta upp með betri
þjónustu úti í hverfunum,“ segir
Einar og bætir því við að það þekk-
ist víðast hvar í Evrópu að þjónusta
sé skert yfir sumartímann.
„Þessar breytingar byggja á taln-
ingum sem fóru fram haustið 2006
og nú í vor. Farþegafjöldinn er allt-
af meiri á veturna en sumrin enda
er stór hluti okkar farþega skóla-
fólk,“ segir Einar.