Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 10
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi
formaður Framsóknarflokksins, telur það skapa
flokknum ný tækifæri að „svokallaðir pólar“ í
íslenskum stjórnmálum séu nú sestir saman í
ríkisstjórn.
Þegar Fréttablaðið náði tali af Halldóri var hann á
leið að hitta ráðamenn í Vilnius í Litháen og Moskvu
í Rússlandi, í hlutverki sínu sem framkvæmdastjóri
norrænu ráðherranefndarinnar.
Spurður um sínar skýringar á óförum Framsókn-
arflokksins í nýafstöðnum alþingiskosningum, segir
Halldór engum blöðum um það að fletta að útkoman
sé slæm. Hana telur hann að megi ekki síst rekja til
þess að „á undanförnum árum hefur mikið verið
gert í að skapa póla í íslenskri pólitík“.
„Bæði hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking-
in lagt áherslu á að þeir væru pólarnir í íslenskum
stjórnmálum og fjölmiðlaumræðan á Íslandi hefur
meira og minna gengið út á það,“ segir Halldór. „Öll
uppsetning á stjórnmálaumræðu á Íslandi hefur
gengið út á það að þarna væru tveir pólar. Fram-
sóknarflokkurinn hefur oft lent á milli í þessari
umræðu og ég tel að flokkurinn hafi mikla mögu-
leika ef hann nýtir sér þá þegar þessir svokölluðu
pólar ætla sér að starfa náið saman.“
Hann segist ekki í nokkrum vafa um að þessi nýja
staða skapi ný tækifæri fyrir Framsóknarflokkinn.
„Ég spái því nú að það muni margir þingmenn,
þegar ég lít yfir sviðið, hlaupa fljótt út undan sér og
reyna að losna undan ábyrgð á því sem þarf að
gera,“ segir Halldór. „Því að ríkisstjórn kemst aldrei
hjá því að gera ýmislegt sem ekki öllum líkar. Það
verður fróðlegt að sjá Samfylkinguna þroskast í því
hlutverki. Sjá hvernig henni tekst að ná aga á liðið.“
Spurður hvernig sér lítist á að Framsóknarflokk-
urinn deili nú stjórnarandstöðubekknum með Vinstri
grænum, segir Halldór það verða forvitnilegt að sjá.
„Vinstri grænir hafa náttúrlega fyrst og fremst
lagt áherslu á andstöðu við Framsóknarflokkinn en
ekki ríkisstjórnina,“ segir hann. „Hvort þeir ætli að
halda því áfram þegar flokkarnir eru saman í
stjórnarandstöðu geri ég mér ekki grein fyrir. Mér
finnst sérkennilegt hvernig þeir hafa haldið á
málum. Þannig að ég átta mig bara ekkert á því
hvers konar þroska þeir ætla að taka út við þessar
aðstæður.“
Spurður um sínar skýringar á því hve útkoma
flokksins var sérstaklega slæm í mesta þéttbýlinu,
segir Halldór þar samverkandi ástæður að baki.
„Pólariseringin í íslenskum stjórnmálum á þar ríkan
þátt. Þá hafa ýmis vandamál sem flokkurinn hefur
átt í sjálfur komið þar inn í. Svo hefur staða
flokksins í fjölmiðlum verið afskaplega veik,“ segir
hann. „Bæði í ríkisfjölmiðlum og eins í dagblöðun-
um. Ég ætla ekkert að fara nánar út í það, en ég tel
kannski alvarlegast hvernig Ríkisútvarpið hefur
unnið á undanförnum árum. Hvernig það hefur í
stórum málum tekið afstöðu, sem er ekki hlutverk
þess,“ segir Halldór Ásgrímsson.
Pólastjórnmál fóru
illa með Framsókn
Halldór Ásgrímsson segir hina nýju ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar vera ríkisstjórn pólanna í íslenskum stjórnmálum. Framsóknarflokkurinn
hafi oft „lent á milli“ í „stjórnmálum pólanna“ en hafi nú mörg ný tækifæri.
Guðni Ágústsson varð í
gær formaður Framsóknarflokks-
ins eftir afsögn Jóns Sigurðsson-
ar.
Var það mat Jóns að nauðsyn
beri til að formaður flokksins sitji
á Alþingi en sem kunnugt er náði
hann ekki kjöri í kosningunum 12.
maí.
Greint var frá fyrirhugaðri
afsögn Jóns á Stöð 2 á mánudag en
í Fréttablaðinu daginn eftir sagði
hann fréttir af andláti sínu stór-
lega ýktar. Á fundi með blaða-
mönnum í gærmorgun sagði Jón
það hafa verið óhjákvæmilegt að
bíða með opinbera tilkynningu þar
sem ákvörðun um afsögn var enn í
mótun. Ákvörðun hafi svo endan-
lega verið tekin seinni part þriðju-
dags. Guðni Ágústsson þakkaði
Jóni góð störf í þágu Framsóknar-
flokksins og sagði að helstu verk-
efni væru að búa flokkinn undir
framtíðina og veita ríkisstjórninni
öfluga stjórnarandstöðu.
Nýr varaformaður Framsóknar-
flokksins verður kjörinn á mið-
stjórnarfundi sem að líkindum
verður haldinn innan fárra vikna.
Jón Sigurðsson var kjörinn for-
maður á flokksþingi í ágúst á síð-
asta ári. „Nú sný ég mér að öðrum
viðfangsefnum og fer að leita mér
að vinnu,“ sagði Jón í gær.
Guðni Ágústsson er fjórtándi
formaður Framsóknarflokksins
sem stofnaður var 1916.
Fer að leita mér að vinnu
SS hefur nú tekið ómakið af
ömmum landsins og gert
frábæra kindakæfu að
hætti ömmu. Prófaðu
þessa hefðbundnu og
góðu kæfu og rifjaðu upp
góðar stundir þegar fólk
hafði meiri tíma.
– sígild og bragðgóð á brauðið
„Ég staðfesti að
dæmin sem tiltekin voru eru byggð
á staðreyndum,“ segir Gunnar V.
Andersen, forstöðumaður eftirlits
Tryggingastofnunar ríkisins (TR),
um mál tveggja tannlækna sem til-
tekin voru í umfjöllun hans á
alþjóðlegri ráðstefnu um bóta- og
tryggingasvik á þriðjudag. Tann-
læknafélag Íslands hefur farið
fram á við TR að fá upplýsingar
um málin; hvar dómskjöl er að
finna um þau og hvaða meðferð
málin hlutu innan TR.
Sigurjón Benediktsson, formað-
ur Tannlæknafélags Íslands, segir
tímabært og nauðsynlegt að ræða
tryggingasvik og ráð gegn þeim
hér á landi. „Hitt er svo annað mál
að tryggingasvik, eins og aðrir
glæpir, hljóta að enda fyrir dóm-
stólum og sannist sekt hljóta menn
að fá makleg málagjöld.“ Sigurjón
segist ekki kannast við að tann-
læknar hafi verið dæmdir fyrir
tryggingasvik en tekur fram að
hann hafi ekki aðgang að öllum
þeim gögnum sem nauðsynleg eru
til að fullyrða slíkt. Í umfjöllun
Fréttablaðsins á þriðjudag voru
málin reifuð. Þau fjölluðu annars
vegar um mál þar sem tannlæknir
sendi yfir hundrað reikninga fyrir
meðferð á nær tannlausum manni
og hins vegar um tannlækni sem
sendi fjölda tilhæfulausra reikn-
inga yfir langt tímabil.
Fréttablaðið hefur óskað eftir
nánari upplýsingum um málin frá
TR.
Ég spái því nú að það muni margir þing-
menn, þegar ég lít yfir sviðið, hlaupa fljótt
út undan sér og reyna að losna undan ábyrgð.“