Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 16

Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Leitar sílamávseggja í Akrafjalli Flótti í neyð Ýkjur en ekki lygi Spennandi að sjá framhaldið „Ég bauð nú bara í þetta til að hafa eitthvað að púsla við á eldri árun- um,“ segir Karl, sem átti hæsta boð í útboði Ríkiskaupa á héraðskólanum á Núpi í Dýrafirði. Tilboð Karls í Núp er 48,1 milljón króna. Bygg- ingarnar eru samtals 4.005 fer- metrar og þeim fylgir sex hektara eignarland. Um er að ræða hús- næði fyrir heimavist, kennslustof- ur, mötuneyti, sjö íbúðir, sundlaug, íþróttahús og geymslur. Bruna- bótamatið er 565,5 milljónir króna og fasteignamatið 72,3 milljónir. Skólahald í héraðsskólanum var aflagt árið 1992. Hótel hefur verið rekið þar í byggingunum flest sumur síðan. Útséð virðist um framhald hótelrekstursins ef marka má Karl. „Ég get ekki sagt um fram- haldið af því annað en það er, held ég, vonlaust mál. Okkur reikn- ast það til. Þessi hótelrekstur hefur verið ákaflega daufur og við hyggj- umst ekki halda honum áfram. Við ætlum að fara inn á aðrar brautir,“ segir Karl, sem ekki vill að svo stöddu skýra nánar frá fyrirætlun- um sínum á Núpi. „Ég get varla sagt frá því á þessu stigi málsins. Og ef til kæmi þá koma synir mínir inn í það. En við erum alla vega með breytingar í huga,“ segir Karl. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum þarf samþykki bæði menntamálaráðuneytis og fjár- málaráðuneytis til að tilboði Karls verði tekið. Verði af sölunni mun Karl eiga nánast allar byggingar á staðnum því í fyrrasumar keypti hann barnaskólann á Núpi af rík- inu. Héraðskólinn á Núpi var settur á laggirnar árið 1937. Áður hafði þar verið unglingaskóli frá því 1907. Innbú í mötuneyti og heima- vist fylgir með í sölunni nú en munir sem tengjast sögu skólans eru þó undanskildir. Eins og áður segir er Karl harm- ónikkuleikari og tónlistarkennari. Hann hóf að leika fyrir dansi aðeins tíu ára gamall. Sjálfur er hann ættaður af Melrakkasléttu og segist aðspurður engin tengsl hafa við Núp frá fornu fari. „Ég bara einhvern veginn dróst að þessu og get hvorki sagt þér eða mér sjálf- um vegna hvers helst, en það er mjög fallegt þarna.“ Harmónikkuleikari kaupir héraðsskólann í Dýrafirði Karl Jónatansson, harmónikkuleikari og tónlistar- kennari, átti hæsta boð í eignir héraðskólans á Núpi í Dýrafirði, 48 milljónir króna. Karl sem í fyrra keypti barnaskólann á Núpi, boðar breytingar á staðnum. Hótelrekstur í núverandi mynd sé von- laus. Karl er 83 ára gamall.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.