Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 24
[Hlutabréf]
Hagnaður Alfesca nam 1,3 millj-
ónum evra, jafnvirði 109 milljóna
íslenskra króna, á fyrstu þremur
mánuðum ársins. Þetta er þriðji
rekstrarfjórðungur félagsins. Af-
koman er talsvert betri en á sama
tíma í fyrra þegar hagnaðurinn
nam 524 þúsundum evra, 43,9 millj-
ónum króna.
Rekstrarhagnaður félagsins
nam 7,2 milljónum evra, 602,7
milljónum íslenskra króna, tíma-
bilinu. Það er 28,6 prósenta aukn-
ing á milli ára.
Xavier Govare, forstjóri Alfes-
ca, var mjög ánægður með afkom-
una á uppgjörsfundi í gærmorgun.
Sagði hann stöðugt verð á laxi og
góða sölu á fullunnum réttum eiga
átt stóran hlut að máli.
Govare sagði Alfesca skoða nú
stór fyrirtækjakaup á þessu ári.
Hann neitaði að tjá sig nánar um
málið að öðru leyti en því að fyr-
irtækið er í Evrópu og með álíka
mikla veltu og Alfesca á síðasta
ári, 600 milljónir evra, jafnvirði
50 milljarða króna. Muni velta Al-
fesca tvöfaldast við þetta. Þá er
horft til þess að með kaupunum
verði til fimmta vörulínan frá Al-
fesca á eftir reyktum laxi, smur-
réttum, blini-kökum og rækjum, að
hans sögn.
Alfesca skoðar stór
fyrirtækjakaup
Frá því að Landsbankinn hrinti
breska innlánareikningnum Icesa-
ve af stokkunum í október í fyrra
hafa yfir áttatíu þúsund viðskipta-
vinir lagt inn þrjá milljarða punda,
jafnvirði 370 milljarða króna.
Bankinn greip til þeirra aðgerða
að auka innlán þegar aðgengi ís-
lensku bankanna að alþjóðleg-
um fjármálamörkuðum versnaði
snemma á síðasta ári. Nú er Ic-
esave orðin ein af meginstoðum í
fjármögnun bankans og námu inn-
lán til að mynda 62 prósentum af
heildarútlánum í lok fyrsta árs-
fjórðungs samanborið við 34 pró-
sent í upphafi árs 2006.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segir í tilkynningu
frá bankanum að eftir skuldabréfa-
útgáfu í Evrópu fyrir rúmri viku
sé álag á skuldatryggingar (CDS)
bankans komið í sögulegt lágmark.
Álagið í gær var átján punktar, sem
er það lægsta sem hefur sést eftir
að markaður með skuldatrygging-
ar íslenska bankanna myndaðist í
ágúst 2005.
Þrír milljarðar
punda í innlán
Álag á skuldir Landsbankans það lægsta sem sést hefur.
Peningaskápurinn ...
Móðurfélag Atorku Group hagn-
aðist um þrjá milljarða króna
eftir skatt á fyrsta ársfjórðungi.
Í tilkynningu félagsins kemur
fram að hagnaður samstæðunn-
ar á tímabilinu hafi verið 459
milljónir króna.
Félagið birtir bæði móðurfé-
lagsuppgjör og samstæðuupp-
gjör sem gerð eru í samræmi
við alþjóðlega reikningsskila-
staðla IFRS. Atorka er fjárfest-
ingarfélag og áréttar að móð-
urfélagsreikningurinn endur-
spegli afkomuna.
Þannig námu heildareignir
móðurfélagsins í lok mars 51,1
milljarði króna, en samstæð-
unnar 100,5 milljörðum.
Í tilkynningu félagsins segir
Magnús Jónsson forstjóri árið
hafa byrjað mjög vel. „Breytt
áhersla í fjárfestingum er farin
að bera árangur og hafa fjár-
festingarverkefni félagsins
gengið vel. Mikill vöxtur er fyr-
irséður hjá Jarðborunum og í
júní kemur nýr bor til landsins
sem mun koma inn í rekstur fé-
lagsins á seinni hluta ársins.“
Þá segir hann rekstur Promens
hafa farið vel af stað.
Hagnast um þrjá milljarða
Fjárfestirinn
Pálmi Haraldsson
gerði í gær tilboð
í nær allt hlutafé
stofnanda danska
fasteignafélagsins
Keops, Ole Vag-
ner, í félaginu.
Þetta kemur fram
á vefsíðu Børsen.
Vagner samþykkti tilboð Pálma upp
á 24 danskar krónur á hlut. Kaup-
verðið verður því um 1,3 milljarðar
danskra króna. Það nemur um 14,6
milljörðum íslenskra króna.
Eftir kaupin mun Pálmi eiga í
kringum 32 prósenta hlut í félag-
inu og verður hann stærsti hluthafi
þess.
Pálmi gerir ekki ráð fyrir að
setjast í stjórn félagsins sjálfur.
Líklega muni einhver af samstarfs-
mönnum hans gera það fyrir hans
hönd.
Eftir kaup Pálma ráða Íslending-
ar 61 prósenti af Keops. Baugur á
29 prósenta hlut í félaginu. Hluta-
bréf í Keops hækkuðu um 15,1 pró-
sent í kauphöllinni í Kaupmanna-
höfn innan dagsins í gær.
Stærstur í Keops
Viðræður eru hafnar milli stjórn-
arformanna Byrs og Sparisjóðs
Kópavogs um sameiningu spari-
sjóðanna. Byr er annar stærsti
sparisjóður landsins en SPK sá
fimmti stærsti. Samanlagðar eign-
ir sjóðanna eru nú um 130 millj-
arðar króna en Byr er þó tölu-
vert stærri. Ekki liggur fyrir hver
skiptihlutföll verða en varlega má
áætla að Byr sé metinn á 85 pró-
sent í sameinuðum sjóði.
Gagnkvæm eignatengsl eru á
milli sparisjóðanna. Byr á tæp
fjögur prósent stofnfjár í SPK
sem á svo um 2,1 prósent í Byri.
„Báðir aðilar fara af heilum hug
í þessar viðræður,“ sagði Birg-
ir Ómar Haraldsson, stjórnarfor-
maður SPK, við Fréttablaðið.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnar-
formaður Byrs, segir að sparisjóð-
irnir falli vel að hvor öðrum; Byr
með sín útibú í Reykjavík, Garða-
bæ og Hafnarfirði og SPK í Kópa-
vogi. „Það er undirliggjandi mikill
áhugi að klára þetta.“
Samtals reka sparisjóðirnir níu
útibú á höfuðborgarsvæðinu.
Sameining Byrs og SPK í farvatninu
Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í
gær og náði hún nýjum methæðum í 8.131
stigi í 22,7 milljarða viðskiptum. Þar
með hefur hún hækkað um 26,8 prósent
á árinu, þar af um 3,5 prósent eftir kosn-
ingar. Þrjú Kauphallarfélög hafa hækk-
að um meira en helming á árinu, Atlantic
Petroleum, um 96 prósent, Vinnslustöðin
um 84 prósent og Exista um rúm fimm-
tíu prósent.
Margir fjárfestar búast við að væntan-
leg 176 milljarða króna yfirtaka Björgólfs
Thors Björgólfssonar í Novator á Acta-
vis nái fram að ganga en á markaði sjást
þau merki að hluthafar séu farnir að end-
urfjárfesta í bönkum og rekstrarfélögum
fyrir þann pening sem þeir fá fyrir bréf
sín. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa bankar keypt hlutabréf af fjárfestum í Actavis
sem gefur þeim síðarnefndu færi á að endurfjárfesta
innanlands, til dæmis í íslenskum hlutabréfum. Talið
er að allt að 100 milljarðar króna gætu
farið til endurfjárfestinga innanlands -
það er ef Novator tekur yfir Actavis.
Þarna vinnst tvennt: Bankinn, sem
fjármagnar sig til tiltölulega ódýrt, fær
til sín aukin viðskipti. Kúnninn sparar
sér tíma á því að selja hlut sinn í Actavis
núna í stað þess að bíða eftir greiðslum
vegna hugsanlegrar yfirtöku.
Það sem hefur ekki síður áhrif á hluta-
bréfamarkaðinn er styrking krónunnar.
Krónan styrktist um hálft prósent í gær
og fór gengisvísitalan niður fyrir 113 stig
í fyrsta skipti síðan snemma í mars 2006.
Krónan hefur styrkst verulega í maímán-
uði eða um rúm fjögur prósent. Evrópski
fjárfestingarbankinn (EIB) út krónubréf
að verðmæti fjórir milljarðar króna í gær
en annars hefur krónubréfaútgáfa verið róleg í mán-
uðinum að sögn greiningardeildar Kaupþings.
Líkleg yfirtaka á Actavis er farin að setja svip sinn á markaðinn og sumir fjár-
festar eru farnir að endurfjárfesta. Krónan hefur styrkst nær látlaust í maí.
26.888 kr.
Réttu tækin í þrifin
Háþrýstingur á bílinn, stéttina og húsið
Tilboðið gildir út maí 2007
eða meðan birgðir endast.
R
V
62
34
B
Bjarnþór Þorláksson
bílstjóri RV
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Vortilboð
2007
Nilfisk-ALTO
háþrýstidælur
Nilfisk-ALTO C100 4-5
Dæluþrýstingur: 100 bör.
Vatnsmagn: 320 l/klst.
7.888 k
r.
Nilfisk-ALTO E140 1-9 S X-tra
Dæluþrýstingur: 140 bör.
Vatnsmagn: 500 l/klst.