Fréttablaðið - 24.05.2007, Page 33

Fréttablaðið - 24.05.2007, Page 33
Sumarið nálgast og að vanda flæða nýjungar inn á snyrtivörumarkaðinn hér eins og annars staðar. Hver um sig keppast framleiðendur við að senda frá sér nýja hrukkubana, töflur og krem til að undirbúa sólarferðir. Fínustu merkin hafa verið að framleiða ný hrukkukrem sem eiga að hafa ótrúleg áhrif sem aldrei áður en eru um leið miklu dýrari en þekkist (Chanel, Helena Rubinstein, Lancôme). Síð- ast en ekki síst er það sem tröllríður markaðnum frá því í fyrra, krem og áburðir sem eiga að eyða fitunni undir húðinni í kringum maga, rass og læri. Það ótrúlega er að svo virðist sem sum þeirra virki. Það er í það minnsta niðurstaða neytendablaðs hér í Frakklandi ,,60 millions de consommateurs“ en þar segir að sum af þessum fitubrennslukremum geti minnkað mjaðmamál eða læri um nokkra senti- metra. Þessi krem eiga að auka brennslu og örva frumurnar eða minnka fitusöfnun. Ekki svo lítið þegar bikiní-tímabilið nálgast óðfluga. Það er löngu þekkt staðreynd að sól í óhófi skemmir húðina og veldur hrukkum, þess vegna er mikilvægt að vernda húðina í sólinni. En almenningur leitar sömuleiðis sífellt meira í allskyns brúnkukrem til að bjarga andlitinu þegar hitinn hækkar og fötum fækkar en húðin hefur enn mjólkurlit vetrarins. Eitt af fjölmörgum nýjungum á markaðnum er sturtugel frá Aquatéal sem er notað eins og venjulegt sturtu- gel en gerir húðina brúna á eftir. Því er ekki lag af kremi á húðinni eftir notkun heldur er hægt að skella sér í föt strax eftir sturtuna og hlaupa út. Auðvitað endist gervibrúnkan tarkmarkað en í það minnsta er húðinni hlíft við hættulegum geislum. Sífellt fleiri reyna nú ýmsar nýjungar til að grennast án megrunar eða örva húðina til að endurnýja sig og prófa jafnvel meðferðir til að fá fitufrumurnar til að bólgna og springa. Um er að ræða nokkrar mismunandi aðferðir. Til dæmis einskonar kefli sem er rúllað fram og aftur yfir húðina til að örva húðfrumurnar og losa varlega húðina frá fitulaginu. Önnur aðferð er að nota ómbylgjur (Ultrashape) sem er ein af fáum megrunaraðferðum sem eyðir fitufrumum þar sem engin skurðaðgerð er nauðsynleg, eins og til dæmis við fitusog. Vandamálið er þó að þessi aðferð hentar þeim ekki sem hafa að minnsta kosti 3 sentimetra af vöðva og hún virkar ekki heldur fyrir þá sem eiga við alvarleg offituvandamál að stríða. Sú síð- asta er að sprauta efni inn í fitulagið sem sprengir fitufrumurnar sem síðan er fylgt eftir með ,,infra- rauðum“ geisla sem á að koma í veg fyrir að þær vaxi að nýju (médisculpture). bergthor.bjarnason@wanadoo.fr ÚTSALA 20-50% AFSLÁTTUR AF SKARTGRIPUM, ÚRUM OG ROSENDAHL GJAFAVÖRU. Laugarvegur 49 · Sími 561 7740 Stærðir: 27 - 35 4.690 kr. Stærðir 27 - 35 4.690 kr. Stærðir 27 - 35 5.890 kr. Stærðir 21 - 26 5.990 kr. Stærðir 21 - 26 5.390 kr. Sportlegar dragtir Sumaropnun: 10-18 virka daga 11-15 laugardaga 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.