Fréttablaðið - 24.05.2007, Page 41
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 5gott á grillið fréttablaðið
Ferðagrill með kæliboxi fæst í
Grillbúðinni og er hannað með þæg-
indi og hreinleika í huga. Þau sem
vilja vera „flottust á tjaldstæðinu“
geta fengið sér grillið sem þjónar
bæði sem gasgrill og kælibox fyrir
gos og aðra drykki sem gott er að
sötra á góðri stund við glóðirnar.
Grillið er uppfullt af aukahlutum,
því fylgir teflonhúðuð grillgrind og
plata, kælitaska, upptakari,
hitamælir, tankur sem tekur
við fitunni og jafnvel hallarmál.
Grillið er meðfærilegt enda hægt
að lyfta því upp með því að stíga á
pedal. Verðið er 49.900 krónur.
Í Grillbúðinni má einnig fá
þetta skemmtilega grilltanga-
sett sem er í laginu eins og golf-
sett. Verð: 6.990 krónur.
Flottust á
tjaldsvæðinu
Einnota grill eru ódýr, hand-
hæg og einföld í notkun.
Það er mikill misskilningur
að ekki sé hægt að grilla al-
mennilega á einnota grilli.
Einnota grill eru fín og á þeim
má grilla nánast hvað sem er
með góðum árangri. Stærð-
in er ekki einu sinni vanda-
mál. Það má leggja nokkur
einnota grill saman, hlið við
hlið, ef steikin er stór.
Það er því óþarfi að eyða
peningum í rándýrt gasgrill
með alls konar aukabún-
aði þegar hægt er að kaupa
ódýrt, einnota grill og nota
peningana til að kaupa gæða-
hráefni, til dæmis nautalund-
ir og skötusel. Þegar öllu er
á botninn hvolft þá er það jú
maturinn sem þetta snýst allt
saman um.
Ódýr og einföld
NOKKRAR STAÐ-
REYNDIR … UM GRILL
Stærsta grill heims var
haldið í Kansas City í Banda-
ríkjunum árið 1975. Risastór
hola var grafin sérstaklega fyrir
viðburðinn en fimm naut voru
grilluð. Grillhátíðin tók þrjá
daga og þrjú lið grillmeistara
vöktuðu grillið öllum stund-
um.
Grill var upprunalega notað
í Karíbahafinu þar sem indján-
ar notuðu trékurl á litlum eldi
til að elda kjötræmur.
Bandaríkjamenn eru mjög
hrifnir af grilli. Grill er til á
þremur af fjórum amerískum
heimilum og eru þau notuð
að meðaltali fimm sinnum í
mánuði.
Alþjóðlegt orð grills er
„barbecue” en enginn veit
uppruna orðsins. Spánverjar
kalla það barbacoa, Frakkarnir
tala um barbe a queue og
Rúmenar hafa búið til orðið
barbec.
Stærsta grillpartí var haldið
í New Orleans árið 1997 þegar
um það bil átján þúsund
manns komu saman í tilefni
fimmtugsafmælis. Ekki voru
allir sem komu í afmælið
boðnir og sumir vissu ekki
einu sinni hvert afmælisbarnið
var.