Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 64
Árni Ragnarsson, brennslumeist-
ari hjá Te og kaffi og Íslands-
meistari í kaffismökkun, keppti
nýlega á heimsmeistaramóti kaffi-
smakkara í Antwerpen í Belgíu.
Árni hreppti annað sætið í keppn-
inni, sem alls nítján þjóðir tóku
þátt í.
„Þetta var fyrsta keppnin sem
ég fer í og þetta gekk bara vonum
framar,“ sagði Árni, sem hefur
starfað hjá Te og kaffi í ein sex ár.
„Ég er sem sagt brennslumeist-
ari. Í því felst að ég rista allt kaff-
ið sem við fáum, bý til blöndurnar
okkar og smakka kaffið til,“ sagði
hann.
Fleiri hafa heyrt af kaffibar-
þjónakeppnum en kaffismökkun-
arkeppnum, og ekki nema von.
„Þetta er tiltölulega nýtt, keppn-
in í ár var bara sú þriðja sem er
haldin,“ útskýrði Árni, sem var að
vonum ánægður með árangurinn.
Árleg Nemakeppni Kornax fór
fram í tíunda sinn í Hótel- og mat-
vælaskólanum í Kópavogi dagana
17.–18. maí. Keppnin hefur verið
haldin árlega frá árinu 1998. Auk
Hótel- og matvælaskólans standa
Landssamband bakarameistara,
Klúbbur bakarameistara og Korn-
ax að keppninni, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Fjórir nemar kepptu til úr-
slita í ár. Það voru þeir Aron Eg-
ilsson, hjá Bakarameistaranum,
Axel Þorsteinsson, Kökuhorninu,
Björgvin Páll Gústavsson, Hjá Jóa
Fel og Þorkell Marvin Halldórs-
son, Brauðgerð Ólafsvíkur. Björg-
vin Páll bar sigur úr býtum og
hlýtur að launum eignarbikar frá
Kornaxi, ásamt farandbikar frá
Klúbbi bakarameistara.
Stjórnandi keppninnar var
Ingólfur Sigurðsson, bakarameist-
ari og kennari. Að lokinni verð-
launaafhendingu bauð Kornax
keppendum, aðstandendum þeirra
og starfsmönnum bakaría til mót-
töku, en á laugardeginum voru af-
urðirnar sýndar í Smáralind, í til-
efni af 20 ára afmæli Kornax.
Árleg nemakeppni
Hafdís Bjarnadóttir tón-
listarkona ber hag fátækra
námsmanna fyrir brjósti og
eldar fram í tímann.
Hafdís hefur sjálf reynslu af að-
stæðum fátækra námsmanna, þar
sem hún tilheyrir þeim hópi. „Ég
er að klára BA í tónsmíðum frá
Listaháskóla Íslands. Ég útskrif-
ast 2. júní,“ útskýrði hún. Náms-
árum hennar lýkur þó ekki þar.
„Nei, ég hef þessa dagana verið
að reyna að ákveða hvort ég ætla
í framhaldsnám í tónsmíðum í Sví-
þjóð eða Danmörku. Ég þarf að
ákveða það fyrir morgundaginn,
svo þetta er mjög skrautlegt allt
saman,“ sagði hún og hló við.
Eitt besta húsráð Hafdísar er að
elda stærri uppskriftir og frysta
afganga í smáskömmtum. „Ef
maður er mjög latur að elda er til
dæmis ágætt að sjóða fullt af ýsu.
Svo má borða hana með kartöflum
en frysta afgangana, til dæmis til
að búa til fiskítós úr,“ sagði Haf-
dís, sem deilir hér hagkvæmri
uppskrift að svokölluðum fiskítós
með Fréttablaðslesendum.
Hún hefur safnað fleiri húsráð-
um í sarpinn, þó að ekki sé víst að
þau fengju öll pláss í húsmæðra-
handbókum. „Annað húsráð sem
ég luma á er að borða aldrei saman
grænar ólífur og heitt súkkulaði
með rjóma,“ sagði Hafdís grafal-
varleg. „Ég rak mig á þetta þegar
ég fór á kaffihús eftir að eldhús-
inu þar var lokað. Þetta var það
eina sem var eitthvað saðsamt, en
reyndist alveg hræðilegt saman,“
bætti hún hlæjandi við.
Hafdísi reynist vel að elda sér
í haginn, enda önnum kafin kona.
Utan námsins er hún meðlimur í
Hljómsveit Hafdísar, sem treð-
ur upp á AIM festival eftir viku.
„Hljómsveitin hefur verið starf-
rækt í svona fimm ár. Hún er
reyndar alltaf síbreytileg eftir því
hverjir eru lausir hverju sinni,“
sagði Hafdís og hló. Hún verður
á Græna hattinum ásamt VilHelm
og Shadow Parade að viku liðinni.
Afgangsfiskurinn má vera ýsa,
steinbítur, lax, rækjur eða hvað
sem er. Grænmetið er það sem til
er hverju sinni, s.s. sveppir, tómat-
ar, laukur, maísbaunir eða kapers.
Smyrjið pönnukökuna með sósu.
Hrúgið fiski og grænmeti inn í,
passið að hægt sé að loka kökunni.
Setjið ost með ef vill. Rúllið pönnu-
kökunni upp og hitið í ofni. Takið
fiskítóinn úr ofninum þegar hann
er farinn að líta sannfærandi út.
Gott er að bera hann fram með
meiri sósu ofan á og smá slettu af
sýrðum rjóma eða ab-mjólk. Ég
mæli með því að kveikja á kerti
og góðri tónlist til að maturinn
smakkist betur.
Úrvals smakkari
Argentína steikhús efnir til sérlegs vindlakvölds
fimmtudaginn 31. maí, degi áður en reykbannið tekur
við. „Þessi hugmynd kom upp fyrir svona tveimur
vikum. Við erum að hætta að selja vindla, því nú er
að koma reykbann,“ útskýrði Jón Eggert Víðisson, yf-
irþjónn á Argentínu. „Hjá mörgum viðskiptavinum
okkar hefur það verið partur af því að fara út að borða
að fá sér stóran vindil eftir matinn. Við höfum stílað
svolítið inn á þann markhóp líka. Svo okkur datt í hug
að kveðja vindlana og reykinn með hvelli. Það er alls
ekkert neikvætt. Yfirskrift kvöldsins er að við kveðj-
um góða tíma og fögnum nýjum,“ sagði Jón Eggert.
Kokkar steikhússins hafa sett saman sérstakan
matseðil fyrir kvöldið. „Á honum er meðal annars að
finna cohiba tóbaksís, sem er víst mjög góður, þó að
hann hljómi kannski skringilega. Kokkarnir hafa séð
hann erlendis,“ sagði Jón Eggert. „Svo erum við með
Davidoff reykt hreindýr, sem er reyndar ekki tóbaks-
reykt,“ bætti hann við. Eftir matinn geta gestir svo
notið síðasta vindilsins á Argentínu, en þeir verða
seldir á heildsöluverði.
Jón Eggert segir fastagesti hafa tekið vel í hug-
myndina. „Svo munum við auglýsa þetta í Boston
Legal-þáttunum, af því að þeir reykja alltaf vindil í
lok hvers þáttar,“ sagði Jón Eggert sposkur. „Þetta
verður mjög skemmtilegt,“ bætti hann við.
Kveðja reykinn með hvelli
Snæddi emúfuglasteik í KaupmannahöfnKotasæla...ber sælunafn-
ið með rentu.
Hún er ljóm-
andi ljúffengt
álegg og tilval-
in fyrir þá sem vilja
skipta smjöri og
osti út fyrir eitthvað
skemmtilegra. Snúið
henni á hvolf í ís-
skápnum, þá geym-
ist hún lengur.