Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 25
Icelandair Cargo og Icelease, dótt-
urfyrirtæki Icelandair Group hafa
samið við Avion Aircraft Trading
um leigu og kaup á fjórum nýjum
Airbus A330-200 fraktflugvélum.
Icelandair Cargo leigir tvær vél-
anna beint frá Avion en Icelease
kaupir tvær og leigir áfram til Ice-
landair Cargo.
Samkvæmt upplýsingum frá
Icelandair verða tvær flugvélar
afhentar vorið 2010 og hinar ári
síðar. Áætlaðar árstekjur af rekstri
þotnanna fjögurra eru sagðar um
15 til 18 milljarðar króna.
Stefnt er að því að snúa við hlut-
föllunum í rekstri Icelandair Cargo
á næstu árum, en núna koma um
80 prósent af veltunni frá starf-
semi sem tengist Íslandi en um
fimmtungur af öðrum mörkuð-
um. Að sögn Péturs J. Eiríksson-
ar, framkvæmdastjóra Icelandair
Cargo, er einkum horft til aukn-
ingar verkefna í Kína, Indlandi og
á Persaflóasvæðinu og tengingar
um safnflugvöll í Evrópu við Ísland
og Norður Ameríku. „Keflavíkur-
flugvöllur verður einnig safnvöll-
ur og tengjast gegnum hann borg-
ir í Bandaríkjunum og Kanada við
lykilmarkaði í Evrópu,“ segir hann
og reiknar með að þrefalda vöru-
flæði og tekjur af flutningum um
flugvöllinn.
A330-200 fraktvélin fer í fram-
leiðslu síðla árs 2009 og verður
Icelandair Cargo einn fyrsti not-
andinn í heiminum. Vélin hefur
á að skipa 50 prósentum meira
rými en Boeing 757-200 vélarnar
sem fyrirtækið notar nú hafa og
mun meiri flugdrægni. „Hreyfl-
ar eru hljóðlátari og menga minna
en hreyflar almennt auk þess sem
eldsneytiseyðsla er minni,“ segir
Icelandair. Skráð listaverð flugvél-
anna hjá Airbus er um 130 milljón-
ir bandaríkjadala, eða rétt rúmir 8
milljarðar króna miðað við gengi
dagsins.
„Aðeins heilbrigð og arðbær
fyrirtæki geta fjárfest í nýjustu
og hagkvæmustu flugvélunum og
þessi viðskipti sýna þann slagkraft
og skýru framtíðarsýn sem býr í
fyrirtækjum Icelandair Group,“
segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri
félagsins.
Icelandair Cargo rekur nú fimm
Boeing 757-200 fraktvélar og stefn-
ir að því að fjölga þeim um eina til
tvær fram að afhendingu A330 vél-
anna. Eftir það verða tegundirnar
tvær reknar samhliða um óákveð-
inn tíma.
Kaupa og leigja nýja tegund Airbus-véla
Icelandair Cargo stækkar með nýjum langfleygum breiðþotum af gerðinni Airbus A330-200.
HB Grandi var rekinn með 2,4
milljarða króna hagnaði á fyrsta
ársfjórðungi sem er mikill við-
snúningur frá fyrra ári þegar tap
félagsins nam 1.337 milljónum
króna.
Tekjur félagsins voru 4.670 millj-
ónir króna og hækkuðu um 27 pró-
sent á milli ára. Auknar tekjur skýr-
ast einkum af góðri loðnuvertíð og
veikari krónu. Meðalgengisvísitala
fjórðungsins var ellefu prósentum
hærri en á sama tíma 2006. Rekstr-
arhagnaður fyrir afskriftir (EBIT-
DA) var 1.478 milljónir króna án
söluhagnaðar af Engey sem er um
31,6 prósent af rekstrartekjum. Í
fyrra var „EBITDA“ 760 milljónir
eða 20,7 prósent.
Þriggja milljarða viðsnúning-
ur varð á fjármagnsliðum á milli
ára. Félagið var með hreinar fjár-
magnstekjur upp á 1.136 milljón-
ir aðallega vegna styrkingar krón-
unnar frá áramótum, samanborið
við tveggja milljarða króna fjár-
magnsgjöld árið áður sem rakið er
til falls krónunnar í febrúar.
Hagnaðist á sterkri
og veikri krónu
HB Grandi fer úr tapi í 2,4 milljarða króna hagnað.
Fyrirtæk-
ið Hagar, sem
meðal annars
rekur Bónus,
Hagkaup og fleiri
verslanir, skil-
aði hagnaði upp
á 417 milljónir
króna á síðasta
rekstrarári, sem
stóð frá mars í fyrra til loka febrú-
ar í ár. Þetta er rúmlega helmings-
lækkun á milli ára en í fyrra nam
hagnaðurinn 997 milljónum króna.
Í ársuppgjöri Haga kemur fram
að rekstrarhagnaður fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði (EBITDA) nam
2.074 milljónum króna, sem er tæp
þreföldun á milli ára.
Í uppgjörinu segir að bati hafi
verið á rekstri Haga en afkoman sé
ekki ásættanleg til lengri tíma litið.
Hafi stjórnendur væntingar um
betri rekstur á árinu.
Búast við
góðu ári
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
hefur ákveðið að taka upp reglur
Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar
fjárfestingar. Reglurnar fela í sér
að þátttakendur skuldbinda sig til
að taka tillit til umhverfislegra og
félagslegra þátta við fjárfestingar
sínar, auk þess sem lögð er áhersla
á góða stjórnarhætti fyrirtækja
sem fjárfest er í.
Þorbjörn Guðmundsson, for-
maður stjórnar Sameinaða líf-
eyrissjóðsins, segir að innleið-
ing reglnanna muni ekki hafa í
för með sér miklar breytingar á
núverandi starfsháttum lífeyris-
sjóðsins. Starfsreglur hans falli
þegar nokkuð vel að þessu um-
hverfi. Fyrst og fremst sé verið að
formfesta vinnureglur sem hafi já-
kvæð áhrif á markaðinn til lengri
tíma litið. „Við munum gera öllum
fjárvörsluaðilum okkar grein fyrir
þessari stefnu. Við munum fara
fram á að þeirra vinnubrögð falli
að þessum reglum. Ef
kæmi í ljós að þeir gera
það ekki förum við fram
á að þeir lagfæri það.
Geri þeir það ekki mun
sjóðurinn huga að því að
færa fjármunina til.“
Þorbjörn segir stjórn
lífeyrissjóðsins sann-
færða um að gerðar
verði auknar kröfur til
lífeyrissjóða á sviði sam-
félagslegrar ábyrgðar á
næstu árum. Stjórnend-
ur sjóðsins vilji vera á
undan þeirri þróun og þróa aðferð-
irnar við innleiðinguna sjálfir. Þá
segir hann að rannsóknir bendi til
þess að sjóðir sem hafa tileinkað
sér þessi vinnubrögð fái jafngóða
eða jafnvel betri ávöxtun til
lengri tíma. „Við lítum því
ekki þannig á að við séum að
draga úr möguleikum sjóðs-
ins til ávöxtunar.“
Tveir íslenskir lífeyris-
sjóðir hafa þegar tekið upp
reglur Sameinuðu þjóð-
anna. Það eru Lífeyrissjóð-
ur VR og Lífeyrissjóður
ríkisstarfsmanna. Þá hafa
margir af stærstu lífeyris-
sjóðum Vesturlanda þegar
viðurkennt reglurnar.
Einungis ábyrgar fjárfestingar
Það er auðvelt að finna ljúffengt,
fitulétt SS álegg í verslunum því
umbúðirnar eru nú sérstaklega
auðkenndar á áberandi hátt með
áletruninni LÉTT ÁLEGG.
Tegundirnar eru mun fleiri en hér
eru sýndar og þeim á eftir að fjölga
enn frekar. Líttu eftir ljúffenga SS
létt álegginu í næstu verslun – og
taktu lífinu létt.
Kjúklingaálegg
Sumir vilja bara þetta
álegg og ekkert annað.
Það er ástæða fyrir því!
Skinka
Möguleikarnir eru
endalausir. Prófaðu
eitthvað nýtt daglega.
Létt og gott
– ný létt áleggslína í SS fjallahringinn
www.ss.is