Fréttablaðið - 05.06.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 05.06.2007, Síða 4
Samráðsnefnd landssambanda innan ASÍ hefur óskað eftir því við Vinnueftirlitið að það kanni hvort áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar hafi að geyma forvarnir og áhættumat vegna kynferðislegrar áreitni. Óskað er eftir því að kannað verði hvaða þjónusta þolendum kynferðislegrar áreitni standi til boða af hálfu fyrirtækisins og hvernig tekið sé á málum. Einnig er óskað eftir því að kannað verði hvernig staðið sé að kynningum á ofannefndum reglum meðal starfsmanna og yfirmanna. Áhættumat verði kannað Öll pláss fyrir ketti eru uppbókuð á gæludýrahótelinu Voffaborg í Víðidal en nokkur pláss eru enn laus fyrir hunda. Sigríður Heiðberg, forstöðu- maður Kattholts, segir alltaf nóg að gera í Kattholti yfir sumar- tímann „Í dag er fimmtíu og einn köttur hjá okkur og það er mikið bókað í júlí og ágúst. Við getum tekið allt upp í hundrað ketti og að meðaltali yfir sumartímann eru hótelgestir frá fimmtíu til sextíu kettir,“ segir Sigríður og bætir við að því betur sem gangi í þjóðfélaginu, því meira sé að gera á hótelinu í Kattholti. Aðsóknin eykst í góðæri Nýr samgönguráðherra hefur svikið loforð um að fara í Vaðlaheiðargöng strax, og að þau verði gjaldfrjáls, sagði Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, í fyrirspurnum til ráðherra á Alþingi í gær. Valgerður spurði ráðherra um göngin og benti á að 300 milljónir færu í göngin fram að árinu 2010 samkvæmt samgönguáætlun. Kristján Möller samgönguráð- herra upplýsti að tveir fundir hefðu átt sér stað milli Vega- gerðar og samtaka sem ynnu að því að göngin yrðu gerð með einkaframkvæmd. Hann hefði í hyggju að ræða við forsvarsmenn samtakanna á næstunni. Sjálfur útilokaði hann hvorki ríkisfram- kvæmd né einkaframkvæmd. Fundað um Vaðlaheiðargöng Charles Taylor, fyrr- verandi stríðsherra í Líberíu, mætti ekki í réttarsalinn þegar réttarhöld yfir honum hófust í gærmorgun hjá alþjóðlegum stríðsglæpadómstól í Haag. Strax við upphaf réttarhald- anna tilkynnti Karim Khan, lög- maður Taylors, að hann hefði rekið sig og ætlaði að verja sig sjálfur. Síðan gekk Khan út úr réttarsalnum, þrátt fyrir að dóm- arinn þrábæði hann um að sitja áfram og verja Taylor, að minnsta kosti þennan fyrsta dag réttar- haldanna. Í yfirlýsingu frá Taylor, sem Khan las upp, segist Taylor sann- færður um að hann muni ekki fá sanngjarna málsmeðferð. „Þetta er engin varnarbrella,“ sagði Khan við fréttamann AP- fréttastofunnar fyrir utan réttar- salinn. Khan segir Taylor hafa litið svo á að réttarhöldin myndu leiða beint til sakfellingar, „og við þær kringumstæður nýtti hann rétt sinn til að víkja mér úr starfi og verja sig sjálfur.“ Dómarinn ákvað engu að síður að réttarhöldin skyldu halda áfram. Stephen Rapp, aðalsaksóknari í málinu, hóf þá málflutning sinn og lýsti þeim hryllingi sem þorpsbúar í Líberíu máttu þola af hendi her- sveita, sem sagðar eru hafa verið undir stjórn Taylors. Rapp segir að hersveitirnar hafi myrt fólk af handahófi og hneppt aðra í þrældóm til að nota ýmist sem hermenn, námuverka- menn eða við landbúnaðarstörf. Rapp segir árásarmennina hafa „limlest fólk, skorið af því hendur og útlimi, stungið í augu. Börn voru þvinguð til þess að drepa foreldra sína.“ Taylor er ákærður fyrir stríðs- glæpi og glæpi gegn mannkyni og er ákæran í ellefu liðum. Ákær- urnar lúta allar að voðaverkum hersveita Taylors, sem framin voru í nágrannaríkinu Sierra Leone á árunum 1991 til 2002, þegar þar ríkti borgarastyrjöld. Líklegt þykir að Taylor muni síðar þurfa að svara til saka fyrir sams konar glæpi stríðsmanna sinna í Líberíu. Réttarhöldunum verður haldið áfram hinn 25. júní næstkomandi og er reiknað með að þau standi í hálft annað ár. Taylor segist ætla að verja mál sitt sjálfur Charles Taylor mætti ekki við upphaf stríðsglæparéttarhalda í Haag í gær. Rak lögmann sinn og ætlar að verja sig sjálfur. Sækjandi lýsir hryllilegum glæpum. Lögreglan á Akranesi rannsakar nú fjögur kynferðisbrotamál sem upp hafa komið á síðustu vikum. Öll málin hafa verið kærð; þrjár nauðganir og ein misneyting. Segir lög- reglan að öll málin séu langt komin í rannsókn. Yngsti maðurinn sem grunaður er um kynferðisbrot er sautján ára, tveir þeirra eru um tvítugt og sá fjórði er á sjötugsaldri. Viðar Stefánsson, lögreglufulltrúi á Akranesi, segir að óvenjulegt sé að svo mörg alvarleg mál af þessum toga séu til rannsóknar hjá embættinu. Hann bendir þó á að tvö þessara mála hafi átt sér stað á Snæfellsnesi en rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi fer með alvarlegri mál sem upp koma hjá öðrum sýslumannsembættum á Vesturlandi. Óvenju mörg kynferðisbrota- mál í rannsókn Hjónin sem fundust meðvit- undarlaus í tjaldvagni í Djúpadal í Reykhólahreppi á sunnudags- morgun eru á batavegi. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar hvort gas hafi lekið úr viðlegubúnaði sem var í tjaldvagninum og hefur búnaðurinn verið sendur vinnueft- irlitinu til rannsóknar. „Rannsóknin beinist að því hvort búnaðurinn hafi brugðist á ein- hvern hátt en við getum ekki gefið upp að svo stöddu um hvers konar búnað er að ræða,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Ísafirði. Hann segir að ekki hafi verið gasskynjari í vagninum. Björgvin Barðdal, framkvæmda- stjóri seglagerðarinnar Ægis, segir að gasskynjarar séu mikilvæg öryggistæki í alla frístundavagna en algengt er að gas sé notað til upphitunar og matargerðar í slík- um vögnum. „Gas- og súrefnis- skynjarar eru staðalbúnaður í öllum fellihýsum og A-hýsum hjá okkur. Þar sem slíkir skynjarar eru ekki til staðar mælum við ein- dregið með því að fólk kaupi þá enda er þetta ódýr en mikilvægur öryggisbúnaður,“ segir Björgvin. Hjónin voru í tjaldvagni af gerð- inni Combi Camp. Þau voru flutt með þyrlu á Landspítalann í Foss- vogi og var karlmaðurinn lagður inn á gjörgæsludeild. Hann var útskrifaður þaðan í gær og að sögn lækna er heilsa þeirra beggja góð eftir atvikum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.