Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 6

Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 6
Lórítín® – Kröftugt ofnæmislyf Notkun: Skömmtun: Frábendingar: Varúðarreglur: Aukaverkanir: H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 9 0 2 5 - A c ta v is 7 0 4 0 0 3 FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is „Það eru allir í sjokki,“ segir Hlín Íris Arnþórs- dóttir, formaður foreldrafélags Austurbæjarskóla, um fyrirhugað bílastæðahús við Iðnskólann og aðkomu að því. Samkvæmt deiliskipulagstil- lögu sem nú er til kynningar og varðar nýbyggingar fyrir Iðnskól- ann verður niðurgrafið hús fyrir 130 bíla milli skólans og Hall- grímskirkju. Aðkoma að bíla- stæðahúsinu á að vera um Vita- stíg. Við þau gatnamót er Austurbæjarskóli öðru megin og leikskólinn Ós hinu megin. „Það er einmitt um Vitastíg sem flest börnin koma í Austurbæjar- skóla. Það er hreint og beint skelfi- leg tilhugsun að það verði bætt við þungri umferð í þetta bílastæða- hús einmitt þegar krakkarnir eru að koma í skólann,“ segir Hlín. Í bréfi sem stjórn Foreldrafélags Austurbæjarskóla hefur sent for- eldrum barna í skólanum segir að þeir sem komi akandi með börn sín í skólann og setji þau úr á horni Vitastígs og Bergþórugötu til að nota Vitastígsinngang skólans viti hvaða öngþveiti geti myndast þar á horninu um áttaleytið á morgn- anna: „Það er engin leið að ímynda sér glundroðann og slysahættuna ef 130 bílar til viðbótar eiga erindi um þessi gatnamót á sama tíma og misvel vöknuð börn eru að mæta í skólann á dimmum vetrar- morgnum. Þessi hugmynd er svo brjáluð að það er ekki nema eitt að gera: Koma í veg fyrir að hún komist lengra í kerfinu,“ segir í bréfinu, þar sem einnig er vikið að því ónæði sem þau telja að muni verða meðan á framkvæmdum stendur við bílastæðahúsið: „Í sem stystu máli á að sprengja bílakjallara ofan í holtið milli Iðn- skólans og Hallgrímskirkju! Um er að ræða 4.400 fermetra, 18.000 rúmmetra og örugglega margra mánaða tímabil þar sem allt holtið leikur á reiðiskjálfi.“ Að sögn Hlínar hafa fleiri en foreldrar barna í Austurbæjar- skóla áhyggjur. Fulltrúar íbúa- samtaka og sóknarnefndar Hall- grímskirkju séu einnig hugsi: „Það eru allir einfaldlega gapandi hissa. Þótt Iðnskólinn sé búinn að sprengja húsnæðið gjörsamlega utan af sér er staðreyndin sú að það er ekki pláss fyrir þessa stækkun hér. Það væri nær að nýjar deildir fyrir skólann yrðu byggðar annars staðar. Austur- bæjarskóli er fyrir börnin hér í hverfinu og hann getur hvergi ann- ars staðar verið.“ Foreldrar skólabarna á móti bílastæðahúsi Bílastæðahús sem fyrirhugað er milli Hallgrímskirkju og Iðnskólans vekur hörð viðbrögð foreldra barna í Austurbæjarskóla. Stjórn foreldrafélagsins segir hug- myndina „brjálaða“ og óttast um öryggi barnanna við aðkomu að húsinu. Í sem stystu máli á að sprengja bílakjallara ofan í holtið milli Iðnskólans og Hallgrímskirkju! Tókstu þátt í hátíðahöldum í tilefni sjómannadagsins? Finnst þér í lagi að íþrótta- hreyfingar bjóði upp á áfengi í Laugardalshöllinni? Klórgas lak út í kjallara efna- verksmiðjunnar Mjallar-Friggjar á Akureyri í gærmorgun. Þor- björn Haraldsson, slökkviliðs- stjóri á Akureyri, segir leiðslu fyrir klórgas hafa gefið sig en starfsmaður verksmiðjunnar hafi sýnt snarræði með því að skrúfa samstundis fyrir upptök lekans. Skamman tíma tók að rýma húsið og sakaði engan utan þess sem skrúfaði yfir lekann. Hann er talinn hafa orðið fyrir lítilsháttar klórgaseitrun og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Lítið af klórgasi er talið hafa lekið. Vindur blés í suður og fór gasið út á Eyjafjörð. Efnakafarar athuguðu að frekari leki væri ekki og var eiturefnaskýið í kjallaranum fellt með vatni. Lögreglan á Akra- nesi stöðvaði tvo ökumenn í vikunni sem grunaðir voru um að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar mannanna hefur verið ökuréttinda- laus frá árinu 2005 en þá var hann sviptur þeim ævilangt. Í fórum hans fundust lyfseðilsskyld lyf. Hinn ökumaðurinn hafði meðferðis mikið magn ólöglegra fíkniefna. Í bíl hans fundust 26 grömm af amfetamíni, 17 grömm af hassi og eitt gramm af maríjú- ana auk lyfseðilsskyldra lyfja. Alls kærði lögreglan á Akranesi 32 ökumenn vegna hraðaksturs í síðustu viku. Sá sem hraðast ók var mældur á 183 kílómetra hraða og var sviptur ökurétti á staðnum. Ökumenn með fíkniefni í för Samtök atvinnulífs- ins telja að stjórn peningamála sé komin í ógöngur og að aðgerðir Seðlabankans hafi skaðað atvinnu- lífið. Forsvarsmenn samtakanna funduðu með forsætisráðherra og utanríkisráðherra í gær. Í fréttabréfi samtakanna segir að ríkisstjórnin þurfi nú þegar að taka á þeirri sjálfheldu sem stjórn peningamála hafi ratað í. Þar er seðlabankinn gagnrýndur fyrir vaxtahækkanir sem samtök atvinnulífsins segja að hafi litlu skilað í baráttunni við verð- bólguna. Samtökin leggja til að hafin verði sérstök úttekt og endur- skoðun á stjórn peningamála og segja brýnt að niðurstöður af slíkri vinnu fái afgreiðslu í þing- inu í haust. Þá leggja samtökin til að lögð verði áhersla á önnur hag- stjórnartæki en vexti enda hafi stýrivaxtastefna Seðlabankans ekki borið nægjanlegan árangur. Samtökin telja að aðgerðir í málefnum íbúðalánasjóðs og fast- eignamarkaðarins gegni lykil- atriði í því að minnka verðbólgu. Þá lýsa samtökin ánægju með markmið ríkisstjórnarinnar um að tryggja lágt vaxtastig, betra jafn- vægi í utanríkisviðskiptum og jafnan og öflugan hagvöxt. Hæstiréttur dæmt mann til að afplána 135 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar sem hann hlaut með þremur dómum árin 2005 og 2006. Maðurinn réðst ásamt vinkonu sinni á 67 ára gamlan karl- mann í húsasundi við Frakkastíg aðfaranótt sunnudagsins síðasta. Konan tældi manninn inn í húsasundið með loforði um samfarir, en þegar þangað var komið réðst hinn maðurinn á hann með höggum og spörkum. Fólkið rændi síðan af fórnarlambinu veski með mörg þúsund krónum og tveimur debetkortum. Maður- inn telst hafa brotið gróflega gegn skilyrðum reynslulausnar. Afplánar dóm vegna árásar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.