Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2007, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.06.2007, Qupperneq 8
VÉLASVIÐ | Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími 590 5100 |www.hekla.is/velasvid HEKLA er umboðsaðili Perkins á Íslandi Veldu aðeins viðurkennda varahluti FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Félag vélstjóra og málmtæknimanna, VM, hefur áhuga á því að semja við fyrirtæki um að félagsmenn geti fengið hluta af launum sínum greiddan í evrum. VM hefur látið Hagdeild ASÍ kanna möguleikana á þessu, hagkvæmni þess og hugsanlega áhættu fyrir launamenn, og komist að raun um að þetta geti verið álitlegur kostur. Marel hefur meirihluta tekna sinna í erlendum gjaldmiðli og hafa launagreiðslur í evrum komið þar til umræðu en ekkert verið ákveðið, að sögn Kristjáns Þorsteinssonar fjármálastjóra, en engin ákvörðun verið tekin. Helgi Laxdal, formaður VM, segir að margir félagsmenn VM vinni hjá Marel og þeim geti staðið til boða að taka hluta launa í evrum ef samkomulag náist þar um. „Menn eru fyrst og fremst að hugsa um húsnæðislánin. Ef menn taka erlend íbúðarlán með lágum vöxtum vita þeir nákvæmlega hvað þeir greiða fyrir lánið sitt,“ segir Helgi og telur að síðar hljóti að vera hægt að fá hluta launa í ann- arri mynt en evrum. „Það mun engu máli skipta hvaða mynt það verður ef fyrirtæki á annað borð taka þessa ákvörðun.“ Nokkur skilyrði þarf að uppfylla að mati ASÍ til að af launagreiðsl- um í erlendri mynt geti orðið. Við- komandi launamaður þarf til dæmis að ráða því sjálfur hvort hann fær greidd laun í erlendri mynt. Þá þykir ekki ráðlegt að fá nema hluta launanna með þessum hætti og vill verkalýðshreyfingin að miðað sé við greiðslu á erlendu íbúðaláni, til dæmis 15-20 prósent launa. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri ASÍ, telur ekki koma á óvart ef vinnuveitendur vélstjóra og málmtæknimanna ryðji braut- ina. „Þetta getur verið kostur fyrir fyrirtæki og skynsamlegt fyrir starfsmennina að færa gengis- áhættuna í hendur atvinnurekanda að því er lýtur að húsnæðismálum en auðvitað skiptir máli á hvaða gengisstigi þetta er gert. Krónan er óvenjusterk núna og óskynsam- legt að gera þetta í dag en þetta getur verið skynsamlegt með hluta launa þegar krónan er komin í jafn- vægisgildið 125-130,“ segir Gylfi. „En að taka neysluna sína út í gegn- um evru mælum við alls ekki með því að þá eru menn að taka á sig gengisáhættu.“ Hluti launa verði greidd- ur í evrum Félag vélstjóra og málmtæknimanna undirbýr samning þar sem hluti af launum er greiddur í evrum. Viðkomandi fær hluta launa sinna í evrum, sem fer til greiðslu á erlendu húsnæðisláni. Kynlífsfíkill hefur höfðað mál gegn fyrrverandi vinnuveitenda sínum eftir að hann var rekinn fyrir að skoða klám- síður. James Pacenza, sem starf- aði hjá bandaríska tölvurisanum IBM, segist hafa þjáðst af áfalla- streituröskun síðan hann barðist í Víetnamstríðinu 1969 og það hafi leitt til kynlífsfíknar. Málsóknin byggist á því að Pac- enza hafi notað klámsíður til að halda áfallastreitunni niðri og að vinnuveitendur hans hafi átt að veita honum meðferð frekar en að reka hann. Pacenza segir að fíkn hans í klámsíður eigi að meðhöndla á sama hátt og gert er með fíkn starfsmanna í áfengi eða lyf. Notaði klám sem heilsubót Unnt verður að bjóða upp á rússneskunám við Háskóla Íslands á ný eftir að Samson, fjár- festingarfélag feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, ákvað að styrkja námið um átta milljónir króna á ári næstu þrjú árin. Vonir standa til að rúmlega tuttugu nem- endur hefji nám í haust. Skrifað var undir yfirlýsingu um styrkveitingu í HÍ í gær. Feðg- arnir ráku bjórfyrirtæki í Péturs- borg í Rússlandi í tíu ár og er upp- gangur þeirra því nátengdur Rússlandi. Með styrkveitingunni vill Samson stuðla að góðum tengslum Íslands og Rússlands. Rússneska verður kennd til BA- prófs við HÍ frá og með næsta hausti. Fyrir liggja drög að samn- ingi við Moskvuháskóla um sam- starf um kennslu, rannsóknir og stúdentaskipti í tengslum við námið. Væntanlegur er rússneskur sendikennari sem mun sjá um námið fyrst um sinn, segir Guð- rún J. Backmann, kynningastjóri HÍ. Rússneska hefur áður verið kennd við HÍ, og á tímabilinu 1997-2002 útskrifuðust 27 nem- endur með BA-próf í rússnesku, sem er svipaður fjöldi og útskrif- aðist úr dönsku og spænsku á þessu árabili. Von á rússneskum kennara
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.