Fréttablaðið - 05.06.2007, Side 20

Fréttablaðið - 05.06.2007, Side 20
Mannfólkið er þannig gert að það vill yfirleitt meiri gæði frekar en minni. Þetta á við um heilsu líkt og önnur gæði. Vandi liggur hins vegar í því að auðlindir samfélagsins eru ekki óþrjótandi. Hagfræði er vísindagrein sem fjallar um leiðir til að ráðstafa takmörkuðum auðlindum samfélaga. Orðið HAGfræði er lýsandi, þar sem hagfræðingar fjalla um hvernig hagsæld samfélagsins sé hámörkuð. Til þess að nálgast ólíkar aðstæður í samfélaginu takast hagfræðingar á við viðfangsefni sín innan marka margra undirgreina. Heilsuhagfræði fjallar t.d. um ýmsa þætti er varða heilsu. Grunnspurningar hagfræðinnar — hvað skal framleiða, í hvaða magni, fyrir hvern og af hverjum — til þess að hámarka hagsæld samfélagsins, eru ekki síður mikilvægar varðandi heilsu en aðra þætti. Heilsa er flestu fólki mikilvæg en er þó ekki það eina sem gefur því velferð. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að markmiðið sé einungis að samfélagsþegnarnir séu sem hraustastir og ekki er alltaf víst að áunnin heilsa sé fórnanna virði. Merki þessa sjáum við oft í hegðun fólks sem kýs sjálft að fórna heilbrigðum lífsháttum fyrir önnur gæði. Dæmi um þetta er óhollt mataræði, hættuleg störf eða lítil líkamshreyfing sem meðal annars kemur fram í ofnotkun á ökutækjum. Sá einstaklingur sem fer fótgangandi til vinnu sinnar, svo dæmi sé tekið, er fyrir þær sakir í betra líkamlegu ástandi og getur vænst lengri og betri lífdaga. En af hverju ganga ekki allir til vinnu sinnar? Ástæðan hlýtur að vera sú að önnur markmið ráði ferðinni; til greina kemur t.d að einstaklingurinn sækist frekar eftir þeim auknu tekjum og meiri neyslu sem fleiri vinnustundir geti skilað, þar sem um ræðir gæði sem greiða þarf fyrir. Einstaklingurinn fórnar þá heilbrigði fyrir ýmis önnur lífsgæði. Tími er hér dæmi um takmarkaða auðlind og einstaklingurinn er sjálfur ekki tilbúinn til þess að fórna þeim tækifærum sem tíminn getur skapað honum á öðrum vettvangi fyrir heilsuna. Heilsa er treyst með heilbrigðis- þjónustu, sem er eitt viðfangsefni heilsuhagfræðinga. Hröð tækniþróun í heilbrigðisþjónustu hefur aukið val- möguleika og meðferðarúrræði. Ólíkt flestri framleiðslu þá hefur þessi aukni tækjakostur og nýjar lyfjameðferðir aukið útgjöld til heilbrigðismála. Nú er svo komið að í vestrænum löndum fara um 10% af vergri þjóðarfram- leiðslu til málaflokksins. Þetta kallar á nýjar áherslur við stefnumótun og ákvarðanatöku í heilbrigðismálum. Þess er nú almennt krafist að heil- brigðisþjónusta sé ekki einungis árangurs rík, heldur að sem mest fáist fyrir þau verðmæti sem til hennar er varið. Þetta er einmitt ástæða þess að heilsuhagfræði er mikilvæg við ákvarðanatöku í heilbrigðiskerfinu. Hér má t.d. nefna til sögunnar rannsóknir á fjármögnun heilbrigðiskerfisins og heilbrigðistrygginga, rannsóknir á eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu, rannsóknir kostnaðar- og ábata- greiningu lyfjameðferða, rannsóknir á markaðsaðstæðum og markaðs- brestum er varða heilsu, hagkvæm- asta magni bólusetninga fyrir sam- félagið, muninn á einkareknum og ríkisreknum heilbrigðiskerfum, stærðar hagkvæmni sjúkrahúsa, áhrif- um breyttrar aldurssamsetningar þjóða á heilbrigðisútgjöld og svona mætti lengi telja. Heilsa fólks veltur þó ekki einungis á gæðum helbrigðisþjónustu. Þess vegna skoða heilsuhagfræðingar einnig aðra þætti á borð við samfélagslega áhrifa- valda heilbrigðis. Um þessar mundir beinist mikið af rannsóknum heilsu- hagfræðinga að offitu, orsökum hennar og afleiðingum, t.d. á vinnumarkað, lífeyrisjóðsmál og tryggingamál. Ýmis áhættuhegðun hefur einnig verið heilsuhagfræðingum hugleikin á umliðnum árum. Mikilvægt er t.d. hvað varðar forvarnir í fíkniefnamálum að kunna góð skil á því hvernig ein- staklingar bregðast við breyttu um- hverfi og hvers konar opinberar ráð- stafanir eru líklegastar til þess að hafa áhrif á hegðun einstaklinga. Heilsuhagfræði er sannarlega fræði- grein sem tengist tæknilegum út- færslum vísindanna sem eru áhuga- verðar í sjálfum sér. Í sama mund hefur sú þekking sem þannig er sköpuð afdrifaríkar afleiðingar fyrir ákvarðanatöku á fjölmörgum sviðum mannlífsins. Stjórnendur heilbrigðis- kerfanna og þeir sem móta almenna stefnu í heilbrigðismálum reiða sig á slíkar rannsóknir. Mikilvægt er að rannsóknir á sviði heilsuhagfræði liggi fyrir áður en spítalar eru sam- einaðir, aðgerðir eru ákveðnar á til- teknum sviðum lífvísinda, ráðist er í stefnumótun um reykingabönn og svona mætti lengi telja. Auk þess hafa fyrirtæki sprottið upp hérlendis sem málið varðar. Hér mætti nefna Össur hf. og lyfjafyrirtæki, en við blasir hvernig heilsuhagfræði í heild sinni og þættir hennar, s.s. þróunar- hagfræði, lyfjahagfræði og hagfræði hugmyndaréttinda geta nýst innan slíkra fyrirtækja. Engum blöðum er um það að fletta að viðfangsefnin eru fjölbreytt og krefjast ólíkra úrlausna. Ef bjarga á ákveðn- um fjölda lífára má gera það með ýmsum hætti: Ættum við að moka tröppurnar hjá öldruðum í hvert skipti sem snjóar, setja vegrið á helstu umferðaræðar eða skima eftir legháls- krabbameini, svo nokkur dæmi séu tekin? Heilsuhagfræðin hefur leiðir til að svara hvaða aðferð skilar mestum árangri miðað við fyrirliggjandi verðmæti. Viðfangsefnin eru óþrjótandi og enn er langt í land með að heilsuhagfræðinni sé sinnt af því afli sem nauðsynlegt er í jafn viðamiklu heilbrigðiskerfi og rekið er hér á landi. Heilsuhagfræði er ung grein á Íslandi og hefur almennt fengið litla umfjöllun þar sem sérfræðinga vantar enn. Faginu mun þó vaxa fiskur um hrygg, nú þegar er hægt að læra heilsuhagfræði til meistaragráðu við Háskóla Íslands og sækja námskeið í heilsuhagfræði í gegnum Endurmenntun Háskóla Íslands. Viðfangsefni í heilbrigðisþjón- ustu krefjast slíkrar sérmenntunar. Rannsóknir á sviðinu hérlendis eru einnig að aukast samhliða aukinni þekkingu á fræðasviðinu. Hagfræði- stofnun Háskóla Íslands hefur stundað nokkuð af slíkum rannsóknum og fer heilsuhagfræðiverkefnum sem stofn- unin tekur að sér fjölgandi. Von er til þess að rannsóknir í lyfjahagfræði eflist einnig mjög á næstunni, þar sem nú hefur verið sett á laggirnar Rannsóknarstofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands. Þar verður meðal annars lögð áhersla á rannsóknir um lyfjastefnu og heilsuhagfræði. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir er doktor í heilsuhagfræði og starfar við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Hagfræði heilsa og heilbrigðismál Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir Lífsstílssjúkdómar Frumtök hafa látið framleiða fimm stuttmyndir sem fjalla almennt um lífstílssjúkdóma og gildi forvarna í baráttunni gegn þeim. Fyrsta myndin fjallar almennt um lífstílssjúkdóma, þá er ein um gildi hreyfingar, ein um gildi holls mataræðis og góðrar næringar, ein um streitu og loks ein um reykingar. Ýmis heilsufarsvandamál steðja að mannkyninu. Matarskortur, náttúru- hamfarir og spillt stjórnvöld eru meginástæðan fyrir gríðarlegum heil- brigðisvandmálum í þriðja heiminum. Þúsundir barna þjást af hungri og sjúkdómum. Flest þeirrra deyja, þús- undir verða munaðarlaus og njóta ekki heilbrigðisþjónustu né menntunar. Þeir Jarðarbúar sem betur mega sín eiga hins vegar við önnur vandamál að stríða. Alvarlegust þessara vandamála eru þau sem hafa skapast vegna góðs efnahags, enda er iðulega í þessu sambandi talað um velmegunarsjúkdóma eða lífsstíls- sjúkdóma. Þessir sjúkdómar stafa að mestu leyti af röngu mataræði eða ofáti, hreyfingarleysi, streitu og reykingum. Þrátt fyrir allt, geta Íslendingar vænst þess að vera við góða heilsu og tiltölulega lausir við sjúkdóma allt til 71 árs aldurs, - eða lengst allra Evrópubúa. Með því að temja okkur heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, aukum við líkurnar til mikilla muna á því að lifa heilbrigðu og góðu lífi alla æfi. Með heilbrigðu líferni spörum við þjóðfélaginu verulegar fjárhæðir; fjárhæðir sem mætti nýta í ýmislegt annað, eins og eflingu menntakerfisins og betri þjónustu við aldraða.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.