Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 05.06.2007, Qupperneq 38
ERTÞÚAÐ FYLGJASTMEÐ? 14 sport 1. Hver skoraði fyrsta mark Lands- bankadeildar karla í fótbolta? 2. Hverjir urðu enskir bikar- meistarar? 3. Hver var valin Handknattleiks- kona ársins á lokahófi HSÍ? 4. Hvaða lið fékk fyrsta valrétt í nýliða- vali NBA-deildarinnar? 5. Hvers lenskur er nýráðinn þjálfari karlaliðs Fram í handbolta? 6. Hvaða lið vann Meistaradeild Evrópu? 7. Hversu margar umferðir í röð hefur FH verið á toppi Landsbankadeildar karla? 8. Hver þjálfar karlalið Njarðvíkur í körfubolta næsta vetur? 9. Til hvaða liðs gekk knattspyrnu- konan Erla Steinunn Arnardóttir? 10. Með hvaða félagi mun Steve Sid- well, fyrrverandi félagi Ívars Ingimars- sonar og Brynjars Björns Gunnarssonar hjá Reading, leika á komandi tímabili? Svör: 1. Það var FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson. 2. Það var Chelsea sem vann Manchester United, 1-0. 3. Það var Gróttustúlkan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir. 4. Það var Portland Trailblazers. 5. Hann er frá Ungverjalandi. 6. Það var AC Milan. 7. Liðið hefur verið á toppnum undanfarnar 48 umferðir. 8. Það er gamla goðsögnin Teitur Örlygsson.9. Hún gekk til liðs við bandaríska atvinnumannaliðið JerseySky Blue. 10. Hann mun spila með Chelsea. „Það er frábært að vera komin heim, þetta eru orðin heil fimm ár og mikil ævintýramennska á okkur,“ sagði Dagný, sem fór fyrst út til Frakklands þar sem hún lék með Issy. Á þeim tíma lék Gunnar Berg með París St. Germain og ber Dagný heimsborginni vel söguna. „Það var gaman að vera í París, það er æðisleg borg. Ég náði að koma mér í klúbb nálægt Gunnari, sem var virkilega skemmtilegt. Ég prufaði hjá liðinu og var svo bara boðinn samningur, það var lykil- atriði hjá okkur að við gætum verið nálægt hvort öðru,“ sagði Dagný en þannig náðu þau að sameina handboltann og fjölskyldulífið. Eftir fimm ár í ævintýra- mennsku setti parið stefnuna heim á leið með ungan son sinn. „Við hugsuðum með okkur að eftir fimm ár væri kominn tími á að koma heim. Við erum komin með einn strák sem er rúmlega eins og hálfs árs og okkur fannst þetta góður tímapunktur til að snúa aftur til Íslands,“ sagði Dagný en parið þræðir nú fasteignasölur til að koma sér fyrir hér á landi. Þau Gunnar ákváðu að vera aðeins eitt ár í Danmörku og sömdu því meðvitað aðeins til eins árs við Holstebro. Þau komu heim í vor og Gunnar samdi við Hauka en Dagný við Val. „Valur hafði samband við mig og mér leist vel á leikmanna- hópinn. Þetta eru stelpur á mínum aldri og ég kannast við þær nokkrar. Ég þekki Gústa [Ágúst Jóhannsson, þjálfara Vals] líka aðeins og það má segja að ég hafi þekkt hvað mest til þarna en vitan- lega hefur margt breyst síðan ég var að spila heima síðast,“ sagði Dagný, sem spilaði með ÍBV tíma- bilið 2001/2002 áður en hún fór til Frakklands. Dagný hittir fyrir tvær systur sínar í Val, Drífu og Rebekku. „Það er rosa spennandi að fá að spila með þeim. Ég hef aldrei spilað með Rebekku en ég hlakka mikið til þess. Þetta verður mjög gaman og við eigum eflaust eftir að takast vel á,“ sagði Dagný og hló við. „Ég er annars svo vön að vera með systrum mínum með mér í liði að þær eru í raun eins og hver annar leikmaður,“ sagði Dagný full eftir- væntingar eftir nýjum tímum heima á Íslandi. KOMIN HEIM Í VALS- FJÖLSKYLDUNA Handboltasysturnar Drífa, Dagný og Rebekka Skúladætur spila saman með Val á næsta tímabili. SPORTMYND/RÓSA DAGNÝ SKÚLADÓTTIR er komin heim til Íslands eftir svaðilför og ævintýri í Evrópu. Síðustu fimm ár hefur hún spilað handbolta í Frakklandi, Þýskalandi og Danmörku ásamt unnusta sínum Gunnari Berg Viktorssyni. EFTIR HJALTA ÞÓR HREINSSON Kynnum til sögunnar nýja kynslóð af Blundstone reið- og útivistarskóm! Lynghálsi 3 Sími: 540 1125 hágæða sérmeðhöndlað vatnsvarið leður mjúkt leður í fóðri meiri fjöðrun í hæl mjúkt innra efni í sóla veitir þægindi á göngu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.