Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 49
Grasagarðurinn í Laugardal fagn-
ar 300 ára fæðingarafmæli grasa-
fræðingsins Carls von Linné í
kvöld með gönguferð, fræðslu,
tedrykkju og tertu. Mæting er
við lystihúsið klukkan 20.00 og
allir eru velkomnir endurgjalds-
laust.
Anna María Pálsdóttir garð-
yrkjukandidat ætlar að leiða
gönguna og fræða fólk um líf
og störf hins sænska læknis,
dýra-og grasafræðings Carls
von Linné. Hann var uppi frá
1707 til 1778 og var afkastamik-
ill fræðimaður. Það sem hald-
ið hefur nafni hans á lofti er sá
grunnur sem hann lagði að flokk-
unarfræði dýra og jurta því hann
bjó til svokallað tvínafnakerfi
tegundanna. Hann gaf til dæmis
hverri plöntutegund tvö latnesk
nöfn. Skipaði einnig ættkvísl-
um saman í flokka eftir fjölda
og gerð fræfla og skipti flokkun-
um í ættbálka eftir gerð fræva.
Sem dæmi má nefna að íslenska
ilmbjörkin (birkið) heitir Betula
pubescens. Betula er ættkvíslin
og pubescens tegundarheitið. Um
fjörutíu tegundir eru til innan
Betula ættkvíslarinnar og fyrir
utan ilmbjörkina er ein þeirra
hér á landi. Það er fjalldrapinn
sem nefnist Betula nana.
Carl von Linné var prófessor
við Uppsalaháskóla og hafði
fjölda lærlinga. Hann var dug-
legur kennari og nemendur hans
héldu merki hans hátt á lofti. Þeir
voru líka iðnir við að fara í rann-
sóknarleiðangra og senda honum
sýnishorn af plöntum. Einnig
fékk hann gömul plöntusöfn frá
fyrri tíð og notaði upplýsingar
úr þeim til að nefna plönturnar.
Síðar tók hann dýrin fyrir. Hann
var meira að segja sá sem gaf
manninum nafnið Homo sapiens.
Þetta mun Anna María ef-
laust rifja upp í kvöldgöngunni
í Grasagarðinum. Þar er frjáls
mæting og eftir gönguna verður
boðið upp á afmælisköku og te af
piparmyntu sem vex í garðinum.
Alþjóðadagur umhverfisins er-
haldinn hátíðlegur í yfir hundrað
löndum í dag 5. júní. Yfirskrift
dagsins í ár er Bráðnun íss –
brennandi mál? Á það vel við enda
er Alþjóða heimskautsárið 2007-
2008 haldið hátíðlegt um þessar
mundir.
Sameinuðu þjóðirnar standa að
alþjóðadegi umhverfisins og hafa
gert frá 1972. Tilgangur hans er að
minna almenning og stjórnvöld á
mikilvægi umhverfisins og til að
gera umhverfismál sýnileg.
Á hverju ári er ein borg valin
til að vera í fararbroddi fyrir al-
þjóðaumhverfisdeginum og helg-
ast áherslurnar að nokkru leyti
af staðsetningu hennar í heimin-
um. Í ár er það Tromsö í Noregi.
Þar var í nýlega kynnt skýrsla sjö-
tíu vísindamanna um ógnvekjandi
framtíðarsýn um áframhaldandi
hlýnun jarðar.
Bráðnun íss rædd á
degi umhverfisins
Lagersala
Lagersala Eirvíkur að
Suðurlandsbraut 20
35-60%
afsláttur
HELLUBORÐ
ÍSSKÁPAR
ÞURRKARAR
OFNAR
HÁFAR
GASELDAVÉLAR
SMÁVÖRUR
RYKSUGUR