Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 54

Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 54
MTV-kvikmyndaverðlaunin voru afhent í Los Angeles um helgina. Eins og venjan er vantaði ekki stórstjörnurnar á hátíðina. John- ny Depp, Cameron Diaz, Victoria Beckham og Paris Hilton voru á meðal gesta. Framhaldsmyndin Pirates of the Caribbean: Dead Man´s Chest vann tvenn verðlaun, annars vegar sem besta myndin og hins vegar var Johnny Depp valinn besti aðal- leikarinn fyrir túlkun sína á sjó- ræningjanum Jack Sparrow. Sacha Baron Cohen, sem lék Borat svo eftir- minnilega á síð- asta ári, fékk tvenn verðlaun. Hann var val- inn besti gam- anleikarinn og fékk verðlaun fyrir besta koss- inn, sem var í myndinni Talla- dega Nights. Þar kyssti hann Will Ferrell og endurtóku þeir fé- lagar leikinn á hátíðinni við mikil hlátrasköll viðstaddra. Hataðasti maður Dan- merkur um þessar mundir, fótboltabullan sem hljóp inn á Parken undir lok leiks Dana og Svía í undankeppni EM og réðst á dómarann, hefur beðist afsökunar á athæfi sínu og biður dönsku þjóðina um fyrirgefningu. Hataðasti maður Danmerkur um þessar mundir, fótboltabullan sem hljóp inn á Parken undir lok leiks Dana og Svía í undankeppni EM og réðst á dómarann, hefur beðist afsökunar á athæfi sínu og biður dönsku þjóðina að fyrirgefa sér. Maðurinn, sem kallaður er „R“ í dönskum fjölmiðlum, segist miður sín vegna framkomu sinnar, sem hann man þó ekkert eftir vegna ölvunar. Yfirvöld hafa skipað fjöl- miðlum að gefa nafn mannsins ekki upp af ótta við hefndaraðgerðir al- mennings. Aðeins er vitað að árás- armaðurinn er 29 ára gamall Dani sem býr í Svíþjóð. „Ég vill biðja alla Dani afsökunar. Ég eyðilagði stórkost- legt kvöld fyrir mörgum lönd- um mínum og ég eyðilagði mögu- leika landsliðsins á að komast á lokakeppni EM. Ég er miður mín,“ sagði maðurinn í samtali við Ekstrabladet í Danmörku, en hann réðst á dómarann Herbert Flandel á síðustu mínútu leiks Dana og Svía um helgina, þegar staðan var 3-3. Flandel flautaði leikinn af í kjölfarið og Svíum var dæmdur 3- 0 sigur. „Fólk í Danmörku hatar mig. Í Svíþjóð er ég álitinn vitleysingur. Mér líður ömurlega,“ segir maður- inn enn fremur. Hann vill þó meina að hann hafi aldrei ætlað að ganga eins langt og hann gerði. „Ég man að ég reiddist við ákvörðun dóm- arans og æstist upp. Síðan er allt svart. Ég man ekki eftir atvikinu og ég trúi varla að ég hafi gert þetta. Ég hef aldrei hagað mér svona og allir sem þekkja mig geta vottað það.“ Dönsk yfirvöld hafa miklar áhyggj- ur af öryggi mannsins og telja að bitrir stuðningsmenn landsliðsins muni leggja ýmislegt á sig til að vinna honum mein. Því hefur allt kapp verið lagt á að halda nafni hans og öðrum persónulegum upp- lýsingum leyndum. Sá fjölmiðill sem birtir nafn mannsins á yfir höfði sér þunga refsingu, að því er yfirvöld í Dan- mörku hafa ákveðið, en þó þykir líklegt að gerð verði grein fyrir manninum á netinu innan tíðar. Og þá er fjandinn laus, að því er maðurinn segir. Hann hefur þegar fengið nokkrar morðhótanir frá aðilum sem gátu borið kennsl á hann af sjónvarpsmyndunum. „Ég er mjög hræddur og vil ekki að fólk finni mig,“ segir maður- inn, sem tekið hefur sumarhús á leigu á afskekktum stað og mun halda sig þar næstu vikur og jafn- vel mánuði. „Ég hef varpað kjarnorku- sprengju á sjálfan mig. Allir í kringum mig þjást vegna heimskupara minna en ég finn stuðning. Kærastan mín segir að hún elski mig jafn mikið og áður.“ Stór nöfn á borð við R.E.M., David Bowie, Iggy Pop og Leadbelly eiga lög á plötu sem verður gefin út í tengslum við nýja kvikmynd um ævi rokkarans Kurt Cobain úr Nirvana. Myndin heitir About a Son og byggir á viðtölum sem blaðamað- urinn Michael Azerrad átti við Cobain. Ben Gibbard, forsprakki Death Cab for Cutie, semur kvik- myndatónlistina ásamt framleið- andanum Steve Fisk, auk þess sem Gibbard á ný frumsamin lög á plötunni. Er hún væntanleg í búðir 11. september. Þekkt nöfn heiðra Kurt Dansgúrúinn Dan Karaty, sem hefur öðlast heimsframa með dómarastörfum sínum í þættinum So You Think You Can Dance, er væntanlegur til Íslands í sumar. Helgina 28.-29. júlí mun hann kenna upprennandi dönsurum hér á landi á dansfestivali Dansstúdíó World Class. „Það verður mikið um að vera þessa helgi og Dan er hápunkturinn í því,“ sagði Nanna Ósk Jónsdóttir, deildarstjóri dansstúdíósins. „Hann er náttúrlega mjög þekktur sem dómari úr So You Think You Can Dance, og hefur getið sér góðs orðs úti sem danshöfundur. Hann hefur samið dansa fyrir þessar stóru stjörnur; Britney Spears, Kylie Minogue og Jessicu Simpson,“ sagði Nanna. Hún hefur áður fengið þekkta danshöfunda til að koma til Íslands og kenna hjá DWC. Darren Henson sótti DWC til dæmis heim árið 2005. Koma Karaty hingað til lands á ábyggilega eftir að kveikja danslöngun í einhverjum, enda kveðst Nanna verða vör við gríðarlegar vin- sældir þáttanna í starfi sínu. „Allir sem stunda dans hérna fylgjast með honum,“ sagði hún sposk. Námskeiðið verður opið öllum, en skipt verður í hópa eftir getu. „Ég legg mikla áherslu á það að þetta er fyrir alla,“ sagði Nanna. Heimsþekktur dansdómari til landsins Sigursælir sjóræningjar E N N E M M / S ÍA / N M Fjöldi útgefinna miða: 130.000 Upplýsingar um vinningsnúmer í símum 540 1918 (símsvari) og 540 1900 og á heimasíðunni www.krabbameinsfelagid.is/happ skattfrjáls vinningur að verðmæti 171 21.750.000 kr. www.krabb.isKrabbameinsfélagsins Sumarhappdrætti Dregið 17. júní 2007 Vertu með og styrktu gott málefni! Ford Escape Limited 3,0i V6 sjálfskiptur. Verðmæti 3.850.000 kr. Bifreið eða greiðsla upp í íbúð. Verðmæti 1.000.000 kr. Úttektir hjá ferðaskrifstofu eða verslun. Hver að verðmæti 100.000 kr. 169 Glæsilegir vinningar:

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.