Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 2
„Ég reyndi tvisvar
að gera starfsmanni bankans við-
vart. Í annað skiptið tókst mér að
segja SOS mig vantar lögregluað-
stoð. Hún gerði samt ekki neitt,“
segir Eiríkur Huijbens. Hann var
rændur í útibúi Kaupþings í
Kringlunni í lok síðasta mánaðar.
Eiríkur segir tildrög málsins
hafa verið þau að hann hafi átt
fíkniefnaviðskipti við mann fyrir
nokkru. Þeirra viðskiptum hafi
verið lokið og segist Eiríkur hafa
verið að ná sér upp úr neyslu og
viljað vera laus við tengsl við
hann. Það vildi maðurinn aftur á
móti ekki og hafði hann í hótunum
við Eirík. „Hann reyndi að fá mig
til að gera alls kyns hluti. Ég neit-
aði en það fór þannig að hann barði
mig og neyddi mig inn í bíl með
sér með því að ógna mér með
hnífi,“ segir Eiríkur. Ofbeldismað-
urinn hefur margsinnis komið við
sögu lögreglunnar og dómstóla
fyrir ýmis brot og segir Eiríkur að
hann hafi haft ríka ástæðu til að
óttast manninn.
Ofbeldismaðurinn hótaði því að
Eiríkur slyppi ekki aftur frá
honum nema hann léti sig fá pen-
inga sem hann taldi sig eiga hjá
honum. Fóru þeir í útibú Kaup-
þings og reyndi Eiríkur að taka út
af reikningi sínum sem reyndist
innistæðulítill Þá hringdi hann í
móður sína.
„Ég reyndi að gera henni ljóst
að hún ætti ekki að millifæra pen-
ingana heldur hringja á lögregl-
una. Það er hins vegar erfitt þegar
einhver heldur að manni hnífi og
hótar að drepa. Auk þess gat móðir
mín ekki greint svipbrigði mín í
gegnum símann,“ segir Eiríkur.
Móðir Eiríks lagði að lokum 300
þúsund krónur inn á reikning
ofbeldismannsins.
Eiríkur lagði fram kæru hjá lög-
reglunni í Reykjavík sama dag og
árásin átti sér stað. Aðalsteinn
Aðalsteinsson, rannsóknarlög-
reglumaður sagðist ekki getað
tjáð sig um einstök mál en unnið
væri að rannsókn árásarinnar.
Eiríkur segist hafa fengið að heyra
að ræninginn hafi játað brot sitt.
„Mér finnst samt furðulegt að
starfsmaður bankans hafi ekki
hjálpað mér. Útibússtjórinn sagði
mér að reglan í svona tilvikum
væri að afgreiða fyrst og hringja
svo á lögguna. Ég veit nú ekki
hvort það var gert,“ segir Eirík-
ur.
Benedikt Sigurðsson, upplýs-
ingafulltrúi Kaupþings, sagðist
kannast við málið en ekki geta
tjáð sig um það frekar.
Ógnað með hnífi og
sagt að taka út seðla
Eiríki Huijbens var misþyrmt og ógnað með hnífi. Ofbeldismaðurinn neyddi
Eirík til að fá móður sína til leggja peninga inn á reikning ofbeldismannsins.
Hann undrar sig á því að starfsmaður bankans hafi ekki hjálpað honum.
Tuttugu og fimm ára
gamall Íslendingur, Hlynur Smári
Sigurðarson, sem dæmdur var í
þriggja ára fangelsi í Brasilíu
fyrir tilraun til kókaínsmygls, á
von á reynslulausn á næstu dögum.
Hann dvaldi fyrst í varðhalds-
fangelsinu Porto Seguro þar sem
aðstæður voru afar slæmar og
fordæmdar af mannréttindasam-
tökum.
Sigurður Þorvaldsson, faðir
Hlyns Smára, segir pappíra fyrir
reynslulausnina tilbúna og þeir
bíða nú stimpils dómara. „Hlynur
mun kenna heimamönnum ensku
en nemendur verða á öllum aldri.
Hann er búinn að leigja sér íbúð
og er spenntur að takast á við
starfið. Ég hef fulla trú á honum
enda vandar hann til verka í öllu
því sem hann gerir,“ segir Sigurð-
ur.
Hann segir Hlyni Smára líða vel
í dag og að hann hafi staðið sig
eins og hetja miðað við þær hörmu-
legu aðstæður sem hann bjó við í
fangelsinu. Sigurður líkir fang-
elsum í Brasilíu við pyntingabúð-
ir. „Ég bað hann um að muna að
rækta sál og líkama. Hann er
sterkur og ég veit að það hjálpaði
honum að standa af sér áreitið
betur,“ segir Sigurður og býst við
syni sínum heim í október.
Brasilíufangi kennir ensku
Karlmaður sem slasaðist í
bílslysi á Suðurlandsvegi
síðastliðinn fimmtudag var í gær
útskrifaður af gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis er
maðurinn á batavegi. Hann hefur
verið fluttur á almenna skurð-
deild.
Kona mannsins liggur enn á
gjörgæsludeild en er laus úr
öndunarvél. Þriggja mánaða
dóttir þeirra sem var með þeim í
bílnum slasaðist minna.
Fólkið lenti í hörðum árekstri
við jeppa og var flutt með þyrlu
til Reykjavíkur.
Útskrifaður af
gjörgæsludeild
Vaxandi fjöldi þing-
manna Evrópuþingsins krefst
þess að Evrópusambandið
viðurkenni þjóðstjórn Fatah og
Hamas hreyfinganna í Palestínu
og endurvekji fjárhagslegan
stuðning við landið, sem lokað var
á fyrir ári í kjölfar kosninganna.
Um þriðjungur þingmanna vill
róttækar breytingar á stefnunni,
en þeir telja efnahagsþvinganir
ýta undir átök í landinu í stað
þess að stöðva þau.
„Eina leiðin er að viðurkenna
stjórnina sem var lýðræðislega
kjörin og tala við alla meðlimi
hennar,“ sagði belgísk þingkona,
Veronique De Keyser.
Vilja viðurkenna
Palestínustjórn
Ólafur, var Mjólkursamsalan
að mjólka kerfið?
Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri braut ekki
jafnræðisreglu í Baugsmálinu.
Bogi Nilsson
ríkissaksókn-
ari hefur
komist að
þeirri niður-
stöðu.
Einar Þór
Sverrisson,
lögmaður
Jóhannesar
Jónssonar í
Bónus, hafði
áður óskað eftir því að ríkissak-
sóknari skoðaði hvort jafnræðis-
regla hefði verið brotin þegar
ákæra var gefin út á hendur
Jóhannesi en ekki Jóni Geraldi
Sullenberger að auki.
Í yfirlýsingu frá embætti
ríkislögreglustjóra segir frá
niðurstöðunni. Engin jafnræðis-
regla hafi verið brotin við
meðferð ákæruvalds í sakamáli á
hendur Jóhannesi.
Engin jafnræð-
isregla brotin
Rannsókn á meintri
nauðgun átján ára gamals pólsks
pilts á stúlku um tvítugt á
kvennasalerni Radisson-SAS
Hótel Sögu, aðfaranótt 17. mars,
er langt komin og verður senn
gefin út ákæra í málinu. Pilturinn
hefur verið í gæsluvarðhaldi frá
því málið kom upp en samkvæmt
úrskurði rennur það út 20. júní.
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu hefur pilturinn
haldið því fram að stúlkan hafi
samþykkt að stunda með honum
kynlíf inn á salerninu. Áverkar
stúlkunnar þykja gefa vísbend-
ingar um að svo hafi ekki verið og
hefur pilturinn verið í haldi,
vegna alvarleika málsins.
Rannsóknin
langt komin
Tveggja barna
faðir í New York samdi í gær um
þriggja ára skilorðsbundna
refsingu fyrir að hafa staðið
aðgerðarlaus hjá á meðan
eiginkona hans keyrði bíl fram af
90 metra háu bjargi með dætur
þeirra innanborðs. Konan lést, en
dæturnar sluppu ómeiddar.
Eiginkonan hafði verið í
sjálfsmorðshugleiðingum að sögn
mannsins og viðurkenndi hann að
hafa ekki tekið hana nógu
alvarlega og vanmetið hættuna.
Maðurinn játaði á sig slæma
meðferð á börnum, en í staðinn
var ákæra fyrir að hvetja til
sjálfsmorðs felld niður.
Horfði á konuna
hrapa 90 metra
Kristján Möller sam-
gönguráðherra telur að þokist í
rétta átt með Grímseyjarferjuna.
Búist er við að vinna við endur-
bætur hefjist á ný við ferjuna
innan tíðar og að hægt verði að
afhenda hana í september eða okt-
óber.
„Ágreiningi milli verkkaupa og
verksala er vonandi að ljúka og
verkið heldur áfram. Allir verða
að koma að borði og horfa fram á
við til að klára þetta verkefni. Það
þýðir ekkert að horfa í baksýnis-
spegilinn,“ segir samgönguráð-
herra. Kristján telur líklegt að
heildarkostnaðurinn við breyting-
arnar nemi yfir 400 milljónum
króna þegar upp er staðið en upp-
haflega var gert ráð fyrir 270
milljónum. „Nóg er til af pening-
um, spurningin er bara hvernig
þeim er ráðstafað milli verkefna
og það er Vegagerðarinnar að
koma með tillögur um það til fjár-
lagagerðar.“
Í skýrslu Siglingastofnunar er
gagnrýnt að aðstaða fyrir fatlaða
sé ekki nógu góð. „Það er óþolandi
að byggja eitthvað þar sem
aðgengi fyrir fatlaða er ekki í sam-
ræmi við reglur. Það er ekki hægt
að una við það,“ segir Kristján.
Eiríkur Ormur Víglundsson,
eigandi Vélsmiðju Orms og Víg-
lundar, og Hjörtur Emilsson, eftir-
litsmaður Vegagerðarinnar, sýndu
ráðherranum ferjuna í gær. Þeir
vonast til að endurbæturnar haldi
fljótlega áfram.
„Það þarf að skipta um hurðir
og gler, setja kýrauga eða ljósop
niður í farþegasalinn og klára
nokkur smáatriði. Aðföng að utan
taka tíma. Þau geta tafið þetta eitt-
hvað,“ segir Eiríkur.
Horfi ekki í baksýnisspegilinn