Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 80
A-riðill: B-riðill: C-riðill: D-riðill: E-riðill: F-riðill: G-riðill: Landsleikur kv. í handbolta Svíar settu upp sænska þjóðhátíðarveislu á kostnað Ís- lendinga á Råsunda leikvangin- um í Solna í Svíþjóð í gær. Sænska landsliðið svitnaði varla við það að rassskella íslenska liðið sem er afar illa á sig komið sálarlega því leikmenn tóku meira segja upp á því að leggja upp mörkin fyrir Sví- ana. Alls urðu mörkin fimm en við getum þakkað fyrir það að Svíar sýndu okkur miskunn og létu sér nægja að senda boltann fimm sinnum í íslenska markið. Landsliðsþjálfaranum Eyj- ólfi Sverrissyni er hreinlega ekki stætt á að halda áfram. Geri hann sér ekki grein fyrir því þá hljóta að vera traustir menn innan KSÍ sem hafa vit fyrir honum. Svíar voru þolinmóðir og ein- beittir frá fyrstu mínútu, tóku sér tíma í allar aðgerðir og voru ekk- ert að flýta sér. Það leit oft á tíðum eins og þeir ætluðu sér að reyna að svæfa íslensku vörnina sem þeim tókst. Svo sofandi voru menn orðnir eftir 52 mínútna leik að þeir afhentu hreinlega Svíum boltann á eigin vítateig og sögðu gjörðu svo vel. Svíar voru ekki lengi að nýta sér það og fullkomnuðu niðurlæg- inguna. Eyjólfur Sverrisson tók mikla áhættu í vali sínu á byrjunarlið- inu kannski eins og Kamikaze- flugmaður kvöldið fyrir orustu. Hann henti fjórum mönnum út úr byrjunarliðinu og kastaði tveim- ur ungum og reynslulausum leik- mönnum út í djúpu laugina. Hann ætlaði sér greinilega að hrista upp í leikmannahópnum því alls voru fimm nýir leikmenn komnir inn í byrjunarliðið. Hvort sem það var vegna sambandssleysis eða óör- yggis þá nýttu Svíar sér sofanda- hátt og skipulagssleysi íslenska liðsins í föstum leikatriðum. Svíar voru komnir 1-0 yfir eftir tíu mínútur þegar Marcus Allbäck var á réttum stað á markteignum eftir að íslenska liðinu tókst ekki að bægja hættunni frá eftir að Árni Gautur Arason hafði varið þrumuskot Tobias Linderoth út í teiginn. Emil sýndi mikil tilþrif þegar hann komst á ferðina upp völlinn á 38. mínútu en Svíar komust fyrir skotið. Í kjölfarið náðu íslensku strákarnir upp nokkurri pressu og Andreas Isaksson varð að hafa sig allan við að verja skot Brynj- ars Björns Gunnarssonar skömmu síðar. Aðeins nokkrum mínútum síðar gerðu Svíar hinsvegar út um leikinn. Á 40. mínútu voru Svíar aftur fyrri til að vinna frákast í teign- um og Anders Svensson afgreiddi boltann í netið eftir að hann datt fyrir hann eftir að íslenska liðinu mistókst að hreinsa frá eftir horn- spyrnu. Aðeins þremur mínútum síðar var staðan orðin 3-0 og ljóst að þessi leikur myndi ekki enda vel. Olof Mellberg stóð einn og yf- irgefinn í teignum eftir að Svíar tóku stutta hornspyrnu og af- greiddi hann viðstöðulaust í fjær- hornið niðri. Upphaf seinni hálfleiks var síðan einn brandari. Fyrst labb- aði Makus Rosenberg í gegnum vörnina og svo hreinlega leyfðu miðverðir íslenska liðsins Svíum að skora fimmta markið í einu ótrúlegasta atviki í sögu íslenska landsliðsins. Svíar eru komnir í mjög góða stöðu í riðlinum og það er ekki margt sem getur komið í veg fyrir að liðið spili í úrslitakeppninni í Sviss og Austurríki sumarið 2008. Uppskera íslenska liðsins er hinsvegar ekki knattspyrnu- þjóð sæmandi sem ætlar að láta taka sig alvarlega. Eitt stig út úr sex síðustu leikjum og skelfileg frammistaða í tveimur síðustu leikjum. Það þarf að taka á vanda- málinu og eina sjáanlega leiðin er að skipta um mann í brúnni. Þessi undankeppni er búin og lokaleik- irnir í keppninni ættu að vera kjörið tækifæri fyrir nýjan þjálf- ara að búa til nýtt lið. Íslenska landsliðið var niðurlægt í 5-0 tapi fyrir Svíum í Solna í gær. Svíar skoruðu fjögur marka sinna á afar ódýran hátt á ellefu mínútna leikkafla í kringum hálfleikinn. Geir Þorsteinsson, for- maður KSÍ, sagði í viðtali við Hörð Magnússon á Sýn eftir leik- inn í gær að hann styddi Eyjólf Sverrisson, landsliðsþjálfara. „Leikmennirnir og þjálfarar- nir njóta okkar trausts,“ sagði Geir. „Þeir lögðu sig fram við það sem þeir voru að gera. Það tókst ekki og ekki heldur í síð- asta leik þannig að við þurfum að skoða hvað við getum gert betur. En minn hugur beinist fyrst og fremst að því að standa þétt að baki þjálfaranum og því sem hann er að gera, sem og liðinu öllu. Svo sjáum við hvað framtíð- in ber í skauti sér en Eyjólfur er góður þjálfari, það er alveg klárt mál.“ Styður Eyjólf Það er enginn uppgjafar- tónn í Eyjólfi Sverrissyni, lands- liðsþjálfara, þrátt fyrir að Ísland hafi aðeins fengið eitt stig í síð- ustu sex leikjum sínum og tapað 0-5 í Svíþjóð í gær. „Mér finnst ósanngjarnt að menn séu að krefj- ast þess að ég hætti með liðið. Við erum bara búnir með níu leiki sem er eins og undirbúningstímabil hjá félagsliði og við höfðum ekki haft mörg tækifæri til þess að prófa leikmenn. Þessi keppni er búin fyrir okkur og við erum að þreifa okkur áfram og hugsa til framtíð- ar. Við viljum komast lengra og þá er mjög mikilvægt að við förum í vissa endurnýjun. Einhvern tím- ann verða þessir strákar að stíga sín fyrstu skref og það er það sem við erum að einblína á núna,“ segir Eyjólfur sem sagðist vilja halda áfram að taka áhættur. „Við vilj- um komast á lokamót. Það er langt þangað og mikil vinna framund- an en við höfum alveg trú á því að liðið eigi möguleika á að komast svo langt,“ sagði Eyjólfur sem var brattur þrátt fyrir skellinn. „Þetta er virkilega erfitt því við töpuðum leiknum á ellefu mínút- um sem voru gríðarlega vonbrigði. Strákarnir misstu einbeitinguna og fengu meðal annars mark á sig sem fer í sögubækurnar. Varnarleikur- inn var ekki í molum. Hann var í raun ágætur því þeir voru ekki að fá mikið af færum. Fyrir hálfleik áttum við ágætar rispur í stöðunni 1-0 og fengum þrjú færi. Það hefði gefið liðinu mikið sjálfstraust að fá mark þá,“ sagði Eyjólfur. „Það jákvæða við leikinn var að við vorum að fá inn unga leikmenn sem voru að standa sig og það var gaman að sjá að þeir voru að stíga sín fyrstu skref og voru að standa sig með prýði. Ég er ánægður með að hafa haft tækifærið til þess að sjá þessa leikmenn. Maður hefur fáa leiki til þess að prófa þessa stráka. Ég hefði getað stillt upp varnarmúr og sækja ekki neitt. Ég hafði lítinn áhuga á því þar sem ég vildi gefa þessum ungu strák- um tækifæri,“ sagði Eyjólfur sem hrósað Theódór Elmari mikið. „Mér leist rosalega vel á Theó- dór Elmar á æfingum. Ég sé svona Rúnar Kristinsson í honum. Hann er mjög spilandi og heldur boltan- um vel en við höfum lengi talað um að okkur vantar leikmenn sem geta haldið boltanum. Það er ekki leiðum að líkjast að vera líkt við Rúnar,“ sagði Eyjólfur um Theó- dór Elmar Bjarnason, sem var val- inn besti maður íslenska liðsins af heimamönnum. Ósanngjarnt að krefjast þess að ég hætti Ívar Ingimarsson tók fulla ábyrgð á fimmta markinu sem Svíar skoruð í gær en mark- ið var afar furðulegt þar sem ís- lensku varnarmennirnir gáfu boltann til Svía og horfðu síðan á þá skora. „Ég tek fimmta mark- ið á mig því þetta voru mín mis- tök og ég átti að vita betur. Ég vann boltann og þegar ég leit upp sá ég dómarinn vera að benda og því hélt ég að hann væri búinn að flauta aukaspyrnu. Í minni barns- legu einlægni þá ætlaði ég að spila boltanum aftur á Árna Gaut svo að hann gæti tekið aukaspyrnuna,“ sagði Ívar eftir leikinn og hann var einnig tilbúinn að taka á sig fleiri mörk enda alveg niðurbrot- inn eftir leik. „Þetta er það erfið- asta og versta sem ég hef lent í á fótboltaferlinum ef ég segi alveg eins og er.“ Besti maður íslenska liðsins var Theodór Elmar Bjarnason. „Það er gaman að hafa verið valinn best- ur í sínum fyrsta leik í byrjunar- liði en það er samt lítil hamingja eftir svona leik,“ sagði Theodór Elmar eftir leikinn en hann hélt þá á kristalskál sem hann fékk gef- ins fyrir að hafa vera valinn besti leikmaður Íslands af heimamönn- um. „Við vorum miklu slakara liðið og lítið með boltann þannig að þetta voru mikið bara varnar- hlaup,“ sagði Theodór. Ívar tekur fimmta markið á sig „Íslenska liðið var mjög agað og skipulagt í fyrri hálf- leik og skapaði mörg vandamál fyrir okkur. Eftir að við skoruð- um mörkin í lok fyrri hálfleiks varð þetta mun auðveldari leikur fyrir okkur eins og er alltaf þegar lið kemst í 3-0,“ sagði Lars Lager- bäck, þjálfari Svía á blaðamanna- fundi eftir leikinn. „Við vorum þolinmóðir, kannski of þolinmóðir en í hálfleik talaði ég um að keyra upp hraðann í leiknum sem tókst vel í upphafi seinni hálfleiks.“ Vorum þolin- móðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.