Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 88
Þegar allt kemur til alls og kjarninn hefur verið skil-
inn frá hisminu blasir við einföld
skýring á flest öllum vandræðum
heimsins: Það er of mikið til af
hálfvitum.
staðreynd er þó alltof
sjaldan haldið á lofti og allskyns
vitleysa borin á borð í staðinn, oft-
ast margtuggin pólitískt rétt froða
sem gerir engum gott og dreifir
bara athyglinni frá því sem blasir
við öllu almennilegu fólki: Það er
of mikið til af hálfvitum.
Því var ákaflega þakklátt og
hressandi þegar fulli hálfvitinn
sem stökk inn á fótboltaleikinn
í Danmörku og sló til dómarans
með þeim afleiðingum að Svíum
var dæmdur sigurinn var kallaður
í blöðunum nákvæmlega það
sem hann er: Hálfviti. Reyndar
var hann bara kallaður hálfviti í
dönsku blöðunum, og kannski bara
þeim gulustu, og ef fullur hálfviti
hefði stokkið inn á Laugardalsvöll
með sömu afleiðingum er líklegast
að hann hefði ekki verið kallaður
hálfviti í íslenskum fjölmiðlum,
heldur drukkinn einstaklingur,
ógæfumaður, eða í besta falli
vitleysingur.
hálfvitar verða
sýnu hættulegri séu þeir fullir,
og fullir hálfvitar eru á bakvið
allar ofbeldisfréttir sem fylla fjöl-
miðla eftir helgar. Ef fréttir væru
sagðar á mannamáli án froðuslikj-
unnar væru fyrirsagnirnar svona:
„Fullir hálfvitar lömdu mann til
óbóta á Laugavegi“, „Fullur hálf-
viti hætti lífi og limum fólks með
ofsaakstri“ eða „Fullir hálfvitar
eyðilögðu 80 bíla fyrir framan
sjúkrahús að gamni sínu“. Lítið
virðist ganga að slá á hálfvitaskap
fullra íslenskra hálfvita, enda er
þeim hleypt jafnóðum út og þeir
hafa sofið úr sér. Ég leyfi mér því
að benda Birni og Stefáni á leið
til að hamla gegn hálfvitaskapn-
um: Gapastokkum á Arnarhóli.
Líklega kæmi þó allt fyrir ekki og
það myndi fljótlega þykja töff að
fara í gapastokkinn, á sama hátt
og það eru viðurkennd töffheit í
hópum hálfvita að haga sér eins
og hálfviti. Hálfvitar í gapastokk-
um yrðu brátt vinsælasta efnið á
netinu næst á eftir fullum stelpu-
hálfvitum í sleik.
hálfvitar þurfa alls ekki að
vera fullir til að láta til sín taka í
ruglinu. Allsstaðar þar sem mann-
skæð átök ríkja eru hálfvitar að
verki stútfullir af ýmisskonar
hálfvitaskap: trúarhita, græðgi,
fordómum og rugli. Hálfvita-
skapurinn virðist hafa fest sig í
sessi og mun bara aukast eftir því
sem við færumst nær endalokum
tegundarinnar. Nema svo ótrúlega
vilji til að fólk hætti bara þessum
hálfvitaskap.
Hálfvitar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Í Evrópu eru mörg
ólík lönd sem öll
hafa sín sérkenni
Með Vodafone Passport sameinast þau
í eitt mínútuverð. Það sama og á Íslandi.
Vodafone Passport er þjónusta sem gerir viðskiptavinum
Vodafone kleift að hringja á sama mínútuverði í 18 löndum í
Evrópu og heima. Greitt er 139 kr. upphafsgjald og eftir það
gildir sama verðskrá og á Íslandi.
Skráðu þig strax á www.vodafone.is, komdu við í verslun
okkar, eða hringdu í 1414. Þú getur líka skráð þig með því að
senda SMS skilaboðin Passport í 1900.
Enginn stofnkostnaður og ekkert mánaðargjald.
Gríptu augnablikið og lifðu núna
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is