Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 27
göngu-
sumarsins
garpa
Fyrir
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Deuter Aircontact
65+10 l
Poki ársins í sínum flokki árið 2004 og
2006 hjá Outdoor tímaritinu.
Verð 23.990 kr.
Einnig 60+10 l.: 23.990 kr.
Deuter Aircontact
75+10 l
Stór poki í Aircontact línunni.
Fyrir þá sem fara lengra!
Verð 25.490 kr.
okar - ár eftir ár
Evrópski seðlabankinn
hækkaði stýrivexti á evru-
svæðinu í gær. Ákvörðunin
var í takt við væntingar.
Forstöðumaður greiningar-
deildar Landsbankans segir
Evrópubankann með þessu
hverfa frá slakri peninga-
málastjórn.
Evrópski seðlabankinn hækkaði
stýrivexti um 25 punkta í 4,0 pró-
sent í gær. Hækkunin lá í loftinu
enda hafði Jean-Claude Trichet,
seðlabankastjóri, gefið í skyn að
bankinn myndi fylgjast grannt
með verðbólguþróun á evrusvæð-
inu og grípa til aðgerða ef svo
bæri undir. Stýrivextir á evru-
svæðinu eru tvöfalt hærri nú en
fyrir einu og hálfu ári og hafa þeir
ekki verið hærri í sex ár.
Á blaðamannafundi í gær sagði
Trichet að bankinn telji líkur á
tveggja prósenta verðbólgu á
evrusvæðinu á þessu ári. Það er
0,2 prósentustiga hækkun frá
fyrri spá. Geti svo farið að bank-
inn hækki vextina frekar á árinu
til að sporna gegn því að verð-
bólga fari fram úr verðbólgu-
markmiðum bankans. Þótt útlit sé
fyrir það á árinu telja greinendur
ekki líkur á að það verði á næstu
mánuðum.
Björn Rúnar Guðmundsson,
forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, segir vextina hafa
verið lága á evrusvæðinu síðustu
ár og peningamálastjórnina slaka.
„Menn hafa séð heldur meiri vöxt
en verið hefur og þetta eru við-
brögð við því. Peningastefnan
hefur verið mjög slök í Evrópu
líkt og lengi vel í Bandaríkjun-
um,“ segir Björn og bætir við að
bankinn sé að draga úr hvata í
hagkerfinu. Hann leggur áherslu
á að evrópski seðlabankinn sé
ekki að bregðast við verðbólgu-
hættu í íslenskum skilngi því við-
miðunarmörkin séu önnur. „Bank-
inn er að færa sig í hlutlausa eða
aðhaldssama peningamála-
stefnu.“
Vaxtaákvörðunardagur er hjá
Englandsbanka í dag og er gert
ráð fyrir því að stýrivöxtum verði
haldið óbreyttum í 5,5 prósentum
að sinni þrátt fyrir að bankinn
hafi verið undir þrýstingi um að
hækka vextina frekar.
Marel á Íslandi verður framvegis
sjálfstæð eining innan móðurfé-
lagsins. Þar mun Marel standa við
hlið AEW Delford, Carnitech,
framleiðslufyrirtækis í Slóvakíu
og Scanvaegt. Þá verður nafni
móðurfélagsins, Marel hf., breytt
í Marel Food Systems hf. Þessar
breytingar koma fram í nýju
skipuriti samstæðunnar sem gert
var í kjölfar samþættingar hjá
félögum í eigu þess.
Meðal annarra breytinga er að
sölu- og þjónustunet Marel-sam-
stæðunnar verður sameinað undir
eignarhaldi móðurfélagsins undir
vörumerkinu Marel Food Syst-
ems.
Í tilkynningu frá Marel segir að
með breytingum á skipulagi sam-
stæðunnar sé betur greint á milli
einstakra eininga hennar. Mark-
miðið sé að nýta auðlind allra fyr-
irtækja innan samstæðunnar eins
og best verður á kosið.
Breytingar hjá Marel
Bræðurnir Guðmundur og
Hjálmar Kristjánssynir í Stillu
lögðu í gær fram samkeppnistil-
boð í allt hlutafé Vinnslustöðvar-
innra. Tilboðsgengið hljóðar upp á
8,5 krónur á hlut sem er hæsta
verð sem boðið hefur verið í hluti
Vinnslustöðvarinnar.
Til samanburðar hljóðar yfir-
tökutilboð Eyjamanna ehf., sem
ráða yfir meirihluta hlutafjár, upp
á 4,6 krónur á hlut.
Lögfræðiskrifstofa Hróbjarts
Jónatanssonar hrl. heldur utan um
samkeppnistilboðið fyrir hönd
Stillu. Það gildir til 23. júlí næst
komandi.
Viðskipti með bréf Vinnslu-
stöðvarinnar námu 131 milljón
króna í gær og fóru þau fram á
genginu 8,5. K.G. Fiskverkun, sem
Hjálmar stýrir, keypti eins pró-
sents hlut, fyrir 128 milljónir
króna, en sá hlutur var í eigu
Kristjáns Guðmundssonar, föður
þeirra bræðra.
Gagntilboð í VSV