Fréttablaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 35
MUSKOKA FURU STÓLAR
Nú getum við boðið þessa frábæru hönnun úr FURU
12,500,-kr
39,000,-kr tvöfaldur stóll m/borði
FEIM - Lenen Bjerre
Innbyggt salerni
kr. 24.900
allt settið
Galleríið Keramik fyrir alla
skipti um eigendur í janúar og
það eru stöllurnar Sigurbjörg
Marteinsdóttir og Helena
Stefánsdóttir sem eiga það nú.
Þær bjóða hópum upp á að
koma í galleríið til að mála á
keramikmuni sem síðan eru
brenndir.
„Það er hægt að velja á milli
matarstells, styttna, bauka eða
hvers sem er. Hingað er vinsælt
að koma til að halda upp á barna-
afmæli en auk þess höfum við
fengið hingað fólk í óvissuferðir,
gæsapartí eða bara vinahópa sem
vilja koma og mála á leirmuni,“
segir Sigurbjörg, sem sjálf er
leirlistakona.
Í galleríinu er úrval af keramik-
og leirvörum auk þess sem hægt
er að fá þar vettlinga, trefla og
fleira úr þæfðri ull. „Helena er
með glervinnustofu hér líka þar
sem hún er með glerblástur,“
segir Sigurbjörg en tekur fram
að keramik sé þó uppistaðan í
galleríinu. „Við erum að auka við
starfsemina og erum komnar með
málverkagallerí þar sem tvær
sýningar standa yfir núna.“
Yfir sumartímann bjóða Sigur-
björg og Helena upp á námskeið
fyrir börn á aldrinum sex til tólf
ára þar sem þau bæði búa til muni
úr jarðleir og mála á keramik-
muni. „Á veturna erum við hins
vegar með ýmis námskeið fyrir
fullorðna og það má segja að vin-
sældirnar keramiklistarinnar séu
mjög vaxandi,“ segir Sigurbjörg í
Keramik fyrir alla.
Vinsældir kera-
miksins vaxandi