Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 4

Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 4
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 „Ég mun að sjálf- sögðu beita mér fyrir því og vona að þessi áform gangi ekki eftir,“ segir Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra um virkjunar- áform Landsvirkjunar í Neðri- Þjórsá. Björgvin segir að eftir að full- trúar allra flokka hafi lýst yfir á Alþingi að ekki kæmi til greina að landeigendur við ána yrðu beittir eignarnámi, sé boltinn hjá land- eigendum sjálfum. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hafa samningaviðræður við land- eigendur staðið yfir síðan í janúar og Björgvin vill „láta reyna á það ferli“ áður en lengra verði haldið. Viðskiptaráðherra útilokar ekki að leyfi Landsvirkjunar verði aft- urkölluð ef allt annað bregst en vill skoða betur lögformlegar hlið- ar málsins. „Einu úrræðin til að koma í veg fyrir þetta væri þá að afturkalla leyfin, sem getur verið mjög flókið mál því það er svo langt síðan Landsvirkjun fékk þessi leyfi. Það verður bara að fara yfir það hvar þetta er statt. Ef leyfið yrði afturkallað myndi það líklega kalla á skaðabóta- mál.“ „Ég er, eins og ég marglýsti yfir í kosningabaráttunni, á móti þess- um virkjunum,“ segir ráðherra. Gæti endað í skaðabótamáli Umhverfismál og fyrirhugaðar eldflaugavarnir Bandaríkjanna eru tvö helstu ágreiningsmálin á leiðtogafundi G8-ríkjanna sem hófst í Heili- gendamm í Þýskalandi í gær. Leið- togar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kan- ada, Rússlands og Þýskalands snæddu þar kvöldverð í gær og sitja á fundum í dag og á morgun. Á sérfundi með Angelu Merkel Þýskalandskanslara í gær sagðist George W. Bush hafa fullan vilja til þess að vinna með henni að lausn á deilum þeirra um umhverf- ismál. Um leið ítrekaði Bush þó að hann myndi aldrei semja um neitt hámark á leyfilegum útblæstri góðurhúsalofttegunda. Bush sagðist vilja semja um það hvað taki við af Kyoto-bókuninni, þegar gildistími hennar rennur út árið 2012, og nefndi þá tvö mark- mið: „Annað er að draga úr gróð- urhúsalofttegundum, hitt er að verða minna háður orkugjöfum.“ Merkel hefur hins vegar lagt mikla áherslu á að ná samningum um að settar verða fastar tak- markanir á útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda. sem eiga að tryggja það að hlýnun jarðar verði ekki meiri en sem nemur tveimur gráð- um á Celsíus, en það þýðir í raun að fyrir árið 2050 skuli draga úr útblæstrinum svo hann verði helmingurinn af því sem hann var árið 1990. Á morgun ætla þeir Bush og Vladimír Pútín að eiga með sér fund utan við aðalfundarhöldin til að ræða sín ágreiningsmál, sem einkum snúast um áform Banda- ríkjanna um að koma sér upp eld- flaugavarnakerfi í Evrópu. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlaði líka að ræða einslega við Pútín. Annars átti þýska lögreglan í gær fullt í fangi með að halda tíu þúsund mótmælendum frá fund- arstaðnum, sem hefur verið girtur af svo rammlega að helst þykir minna á Berlínarmúrinn forðum. Nærri þúsund mótmælendur komust framhjá lögreglu inn á bannsvæði og alveg að gaddavírs- girðingunni rammgerðu og reyndu sumir að klippa sér leið í gegn. Á vegunum, sem liggja til Heili- gendamm, höfðu fjölmennir hópar mótmælenda komið sér fyrir og lokuðu allri umferð klukkutímum saman. „Við höfum náð á okkar vald öllum vegum til Heiligendamm,“ sagði Christoph Kleine, einn mót- mælendanna. „Við erum ánægð með það.“ Lögreglan beitti bæði táragasi og þrýstivatnsslöngum á hluta mótmælendanna. Bush og Merkel eiga langt í land ennþá Þúsundir mótmælenda setja sterkan svip á leiðtogafund G8-ríkjanna í Heiligendamm. Lögreglan átti í gær fullt í fangi með halda þeim í skefjum. Þjóðverji á þrítugs- aldri reyndi að stökkva inn í bifreið Benedikts 16. páfa þegar hann keyrði um á Péturstorgi í Róm í gær. Páfi slapp ómeiddur og virtist ekki taka eftir árásinni, enda gripu öryggisverðir skjótt í taumana. Að sögn talsmanns páfa leit Þjóðverjinn út fyrir að vera „léttgeggjaður“. Hann er nú í yfirheyrslu hjá lögreglu. Páfanum er ekið í sérhönnuðum hvítum bíl, þegar hann ferðast innanlands. Um 35.000 manns fylgdust með honum í gær þar sem hann veifaði til fólksins úr bifreiðinni. Réðist á páfann í hvíta bílnum Dr. Kristján Leósson eðlisverkfræðingur hlaut í gær hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Verðlaunin eru veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrkt geti stoðir mannlífs á Íslandi. „Þetta er fyrst og fremst mikil viðurkenning á þeim störfum sem ég hef verið að vinna, og gaman að finna fyrir því að það sé metið meðal vísindamanna,“ sagði Kristján. Undanfarið hefur Kristján rannsakað nýjar tegundir örrása sem geta leitt rafstraum og ljósmerki samtímis. Rannsakar nýjar örrásir Oddatá ehf. ætlar að kaupa allar fasteignir og tæki Fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri. Stefnt er að því að vinna frosnar og ferskar afurðir í bænum. Allt verður reynt til að flestir fyrrverandi starfsmenn Kambs haldi vinnu sinni, að því er segir í fréttatilkynningu. Eigendur Kambs tilkynntu um miðjan maí þá ákvörðun að hætta útgerð og fiskvinnslu, og selja allar eignir félagsins á Flateyri. Fyrirséð var að rúmlega hundrað manns misstu vinnu sína, en Kambur var langstærsti vinnu- veitandi bæjarins. Fiskvinnsla á Flateyri tryggð Borgarstjórn samþykkti í gær tillögu Samfylk- ingarinnar um að stefna að því að staðfesta í haust siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá borginni. Siðareglunum mun meðal annars vera ætlað að skilgreina grundvallargildi við meðferð almannavalds, bann við spillingu og misbeitingu valds, hvernig umgangast skuli hagsmuna- árekstra og stöðuveitingar svo dæmi sé nefnt. Jafnframt er gert ráð fyrir að útfærðar verði reglur borgarstjórnar um gjafir, boðsferðir og birtingu annarra skyldra upplýsinga. Siðareglur verði tilbúnar í haust

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.