Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 6
Írönsk stjórnvöld hafa
látið lausa þrjá finnska starfs-
menn Nokia Siemens Networks
sem voru teknir við fiskveiðar á
Persaflóa á laugardaginn og eru
mennirnir komnir til Dubai þar
sem þeir vinna. Að sögn finnska
dagblaðsins Helsingin Sanomat
rak bát mannanna inn á íranskt
vatn.
Finnska utanríkisráðuneytið
fékk vitneskju um handtöku mann-
anna á laugardag en ekki var
greint frá málinu fyrr en í kvöld-
fréttum MTV3 í Finnlandi á þriðju-
dagskvöld. Að sögn Esa Hurtig,
sérfræðings í málefnum Dubai,
sögðu írönsk stjórnvöld að menn-
irnir væru ekki í hættu og að vel
færi um þá. Mennirnir fengu þó
ekki að tala við fjölskyldur sínar.
Ilkka Kanerva, utanríkisráð-
herra Finna, kvaðst vera ánægður
með að mennirnir hefðu verið
látnir lausir. Vel hafi gengið að
vinna með írönskum stjórnvöld-
um að lausn málsins.
„Við trúum því að þessir menn
hafi komið óvart inn á íranskt
vatn,“ segir Ahmad Shamsi hjá
íranska sendiráðinu í Helsinki.
„Finnar skilja aldrei þegar um við-
kvæm mörk er að ræða þar sem
fara þarf varlega,“ segir Hurtig.
Ekki er langt síðan Íranar hand-
tóku fimmtán breska dáta í Persa-
flóa og héldu þeim föngnum í tvær
vikur.
Hluti verkamanna
við Kárahnjúka reyndust með
jákvæða svörun við prófi vegna
hugsanlegs berklasmits.
Ástæða þótti því til að senda
nokkra úr hópnum í lungnamynda-
töku til öryggis, en niðurstöður úr
henni liggja ekki fyrir.
„Það er ekkert sem vekur óróa
um að á Kárahnjúkum sé dulið
berklasmit í gangi,“ segir Sigurður
Þórarinsson, yfirlæknir Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands. Sigurður
segir að það sé „vitað mál að ef
maður prófar útlendinga þá er stór
hluti þeirra að svara eitthvað. En
ef menn eru veikir þá fá þeir mikla
svörun, það var enginn svoleiðis.“
Mennirnir voru prófaðir vegna
berklasmits sem greindist í portú-
galskri stúlku í síðasta mánuði.
Nú er búið að prófa tvo þriðju
þeirra rúmlega eitt hundrað
verkamanna sem taldir voru í
áhættuhópi um að hafa smitað
eða smitast af stúlkunni, sem var
sett í einangrun á Landsspítalan-
um.
„Það hefur enginn grunur vakn-
að um að fleiri séu smitaðir eða að
einhver annar sé að smita,“ segir
Sigurður og telur, miðað við þess-
ar fyrstu niðurstöður, að allt eins
megi telja að því að smitaði sjúk-
lingurinn hafi smitast erlendis.
Berklasvörun meðal nokkurra
Tveir 16 ára piltar voru
heppnir þegar þeir köstuðust af
sæþotu á Arnarnesvogi á
þriðjudagskvöld. Piltarnir syntu
í land en varð ekki meint af
volkinu.
Piltarnir voru um 50 metra frá
landi og að sögn lögreglunnar er
nokkur straumur á þessum
slóðum. Sæþotan flaut fljótt frá
piltunum og því afréðu þeir að
synda til lands. Sæþotuna rak í
átt að Kópavogshöfn og var
lögreglubátur sendur á eftir
henni.
Piltarnir voru vel búnir og
voru í góðum blautbúningum.
Köstuðust af
sæþotu
Davíð Oddsson, formað-
ur bankastjórnar Seðlabankans, er
orðinn launahæsti embættismaður
landsins eftir að bankaráð hækkaði
laun seðlabankastjóra.
Bankaráðið ákvað fyrir viku að
hækka mánaðarlaun seðlabanka-
stjóranna þriggja um 200 þúsund
krónur. Sem formaður banka-
stjórnar fékk Davíð Oddsson aðal-
bankastjóri samtals 19 milljónir
króna í laun á árinu 2006. Það gera
um 1.583 þúsund krónur í mánað-
arlaun. Eiríkur Guðnason seðla-
bankastjóri fékk samtals 16,4 millj-
ónir króna eða sem svarar til 1.367
þúsund króna á mánuði. Þriðji
seðlabankastjórinn, Ingimundur
Friðriksson, sat aðeins í banka-
stjórastólnum frá 1. september.
Í Fréttablaðinu í gær var greint
frá því að föst laun seðlabanka-
stjóra hefðu fyrir hækkun verið
1.200 þúsund krónur og myndu
hækka í 1.400 þúsund krónur; um
100 þúsund krónur strax og aðrar
100 krónur næstu áramót. Föstu
launin segja hins vegar ekki alla
söguna því auk þeirra fær formað-
ur bankastjórnar greitt 8 prósent
álag á laun sín og námu föst mán-
aðarlaun Davíðs í fyrra því 1.310
þúsund krónum. Þess utan fékk
Davíð aukalega greidda sömu upp-
hæð og formaður bankaráðs fær
fyrir setu sínu í ráðinu, það eru 220
þúsund krónur á mánuði. Hinir
seðlabankastjórarnir tveir fá auka-
lega greidda sömu upphæð og
óbreyttir fulltrúar í bankaráði, eða
110 þúsund krónur á mánuði.
Eftir hækkunina verða heildar-
laun aðalbankastjórans Davíðs
Oddssonar 1.783 þúsund krónur á
mánuði. Hinir bankastjórarnir
tveir fá 1.567 þúsund krónur.
Til samanburðar eru mánaðar-
laun forseta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, 1.619 þúsund krónur
og laun Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra 966 þúsund krónur.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær byggðist ákvörðun bankaráðs-
ins um launahækkun seðlabanka-
stjóranna á því að bankastjórarnir
hafa, vegna samkeppni um starfs-
krafta, hækkað laun næstu undir-
manna svo mikið að þau voru farin
að höggva nærri þeirra eigin laun-
um. „Almennt talið telur bankaráð
eðlilegt að bilið sé áþekkt því sem
það hefur jafnan verið,“ segir Helgi
S. Guðmundsson, formaður banka-
ráðs, í svari til Fréttablaðsins. Hann
svarar hins vegar ekki hver laun
umræddra millistjórnenda eru:
„Laun annarra starfsmanna bank-
ans en bankastjóra eru trúnaðar-
mál,“ segir formaður bankaráðs.
Davíð launahærri
en forseti Íslands
Með hækkun launa seðlabankastjóra er Davíð Oddsson aðalbankastjóri kom-
inn fram úr forseta Íslands í launum og orðinn launahæsti embættismaður
landsins með 1.783 þúsund krónur á mánuði. Forseti Íslands fær 1.619 þúsund.
Nýjung í ræstingum
– þú nærð hærra með UniFlex afþurrkunarsettinu
R
V
62
33
UniFlex afþurrkunarsett
og 2 örtrefjamoppur
1.398,-
Henrietta Holz Jensen
sölumaður í útibúi RV í Danmörku
N
ú
á
ti
lb
oð
i!
il
i
Ætlar þú í laxveiði í sumar?
Finnst þér að Eyjólfur Sverr-
isson landsliðsþjálfari eigi að
segja af sér?