Fréttablaðið - 07.06.2007, Side 13
Beint flug Iceland
Express milli Akureyrar og
Kaupmannahafnar er hafið á ný.
Fjölskylda frá Akureyri, Linda
Björk Ómarsdóttir og börn
hennar tvö, Ástrós Harpa og
Ómar Snær, fékk að gjöf þriggja
daga ferð til Kaupmannahafnar
með fyrstu vélinni.
Gjöfin er liður í samstarfi
Iceland Express og ADHD-
samtakanna, stuðningssamtaka
fjölskyldna barna og unglinga
með athyglisbrest og ofvirkni, en
Ómar Snær er ofvirkur.
Börnin voru himinlifandi enda
bæði að fara til útlanda í fyrsta
skipti. Að sögn Lindu var þrennt
sem þau óskuðu sér: að sjá fíl,
búa til bangsa í Tívolíinu og
kaupa AC Milan búning.
Flogið verður milli Akureyrar
og Kaupmannahafnar tvisvar í
viku, á mánudögum og miðviku-
dögum, til ágústloka.
Fjölskylda fékk
ferð að gjöf
Nýliðinn maímánuður var
fremur kaldari en í meðalári.
Meðalhiti í Reykjavík var 6 stig
sem er 0,3 gráðum undir meðal-
lagi. Á Akureyri var meðalhitinn
4,5 stig sem er einni gráðu undir
meðallagi.
Fyrstu daga mánaðarins var
hlýtt um allt land en svo kólnaði
snögglega og snjóaði víða um
land. Sólríkt var um landið
sunnanvert og voru sólskins-
stundir í Reykjavík fleiri en í
meðalári. Á Akureyri voru
sólskinsstundirnar 125 sem er 50
stundum undir meðallagi.
Hæst fór hitinn í 20,7 stig á
Hallormsstað 1. maí. en lægstur
hiti í byggð mældist 8 gráðu frost
á Þingvöllum hinn 14. maí.
Kaldara en í
meðalári
, Nauðsynlegt er að foreldrar eyði sem
mestum tíma með börnum sínum og viti hvað þau
taka sér fyrir hendur. Þetta er meðal þess sem kom
fram þegar SAMAN-hópurinn, samstarfshópur um
forvarnir, kynnti þema sumarsins: Fjölskyldan
saman með börnin í fókus. Bergþóra Valsdóttir kom
fram fyrir hönd hópsins og kynnti nýja auglýsinga-
herferð þar sem foreldrar eru hvattir til samveru-
stunda með börnunum, þær séu besta forvörnin.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
mætti á fundinn og lýsti yfir ánægju sinni með
verkefnið. Hann sagði að svona forvarnarstarfsemi,
samvinna með foreldrum, væri eina leiðin til
árangurs. Guðlaugur tók einnig undir orð hópsins
um að samverustund með börnunum væri mikilvæg-
ust af öllu. Foreldrar þyrftu að forgangsraða tíma
sínum.
SAMAN-hópurinn var stofnaður í upphafi árs
2000. Í honum eru fulltrúar rúmlega 20 félagasam-
taka og opinberra samtaka um allt land. SAMAN-
hópurinn hlaut Íslensku lýðheilsuverðlaunin fyrr á
þessu ári. ©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
ms
B
.V
.2
00
7