Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 24
[Hlutabréf]
Landsbankinn spáir því að Seðla-
bankinn byrji að lækka stýrivexti
í nóvember á þessu ári og að vext-
irnir verði komnir niður í 13,75
prósent um áramót. Ári síðar verði
þeir komnir niður í 9,0 prósent en í
6,0 prósent síðla árs 2009.
Í hagspá bankans fyrir árin 2007
til 2010, sem kynnt var í gærmorg-
un, segir að fasteignamarkaðurinn
hafi ekki kólnað líkt og gert hafi
verið ráð fyrir í síðustu spá bank-
ans í september í fyrra. Hafi það
leitt til minnkandi þenslu á vinnu-
markaði. Sömuleiðis hafi gengi
krónunnar þróast á annan veg en
reiknað hafði verið með.
Björn Rúnar Guðmundsson,
forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, segir Seðlabank-
ann standa frammi fyrir vanda
við núverandi aðstæður. Geti hann
ekki réttlætt of mikla vaxtalækk-
un vegna efnahagsleg ójafnvægis
sem setji þrýsting til hækkunar á
gengi krónunnar.
Spá lækkun stýri-
vaxta í nóvember
Japanska matsfyrirtækið Rating
and Investment Information (R&I)
tilkynnti í gær að það hefði gefið
Kaupþingi banka hf. lánshæfisein-
kunnina A+. Að mati fyrirtækisins
eru horfur fyrir lánshæfiseinkunn
bankans stöðugar.
Í fréttatilkynningu frá Kaup-
þingi er haft eftir Guðna Aðal-
steinssyni, framkvæmdastjóra
Fjárstýringar Kaupþings, að góð
lánshæfiseinkunn frá R&I muni
styrkja Kaupþing enn frekar til að
koma til móts við núverandi fjár-
festa og laða að nýja.
R&I er þriðja matsfyrirtækið
sem metur Kaupþing banka. Bank-
inn hefur langtímaeinkunnirnar
Aa3 frá Moody‘s Investor Service
og A frá Fitch Ratings.
Kaupþing fær A+
Peningaskápurinn ...
Eimskip hefur gengið frá
kaupum á öllu hlutafé í
Innovate Holdings í Bret-
landi. Kaupverð er um
fjórir milljarðar króna og
verður greitt með útgáfu
nýs hlutafjár. Eigendur Inn-
ovate verða á meðal stærstu
hluthafa Eimskips.
Eimskip hefur keypt allt hluta-
fé breska félagsins Innovate Hold-
ings. Í fyrra fjárfesti Eimskip í fé-
laginu og átti því fyrir 45 prósenta
hlut. Kaupverðið, um 30,3 milljón-
ir punda eða tæpir fjórir milljarðar
íslenskra króna, verður greitt með
útgáfu nýs hlutafjár í Eimskipafé-
laginu.
Eigendur Innovate verða eftir út-
gáfu nýs hlutafjár meðal stærstu
hluthafa Eimskipafélagsins með
tæplega fimm prósenta eignarhlut.
Þeir munu jafnframt verða hluti af
nýju stjórnendateymi sem ætlað er
að leiða starfsemi Eimskips sem
snýr að kæli- og frystiflutningum
innan Eimskips um allan heim.
Á kynningarfundi í gær sögðu
þremenningarnir ánægðir með bítt-
in. „Ástæða þess að við skiptum
bréfum okkur með glöðu geði fyrir
bréf í Eimskipi er að við vitum að
félagið á mikinn vöxt inni,“ sagði
Stephen Savage, einn eigendanna.
Þá sögðust þeir jafnframt hafa
áhuga á að bæta við hlut sinn í Eim-
skipafélaginu í framtíðinni. Það
myndu þeir líklega gera við næsta
hlutafjárútboð. Engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um hvort ein-
hver þeirra, og hver, sest í stjórn
félagsins.
Innovate heldur nafni sínu, að
minnsta kosti fyrst um sinn. „Inn-
ovate er sterkt vörumerki í Bret-
landi og í því liggja mikil verðmæti.
Varlega þyrfti að fara í að leggja
það niður. En við sjáum fyrir okkur
að með tímanum muni öll félög
innan Eimskipafélagsins bera sama
nafn.“
Innovate er sérhæft í hitastýrð-
um flutningum. Ársvelta þess árið
2006 nam 24 milljörðum króna. Fé-
lagið gerir út tólf hundruð flutn-
ingabíla og tengivagna og hjá því
starfa um tvö þúsund manns.