Fréttablaðið - 07.06.2007, Síða 32
Rakel Ýr Ómarsdóttir fer
óhefðbundar leiðir í fatavali.
„Goth snýst um tjáningu og yfir-
lýsingar. Sjálf vil ég til dæmis
ekki fara eftir settum reglum
í klæðaburði, heldur vel eigin
leiðir. Svo er þetta líka ákveð-
inn lífsstíll. Þess vegna kjósa
margir goth-arar að verja tím-
anum saman og ræða þá gjarnan
fordómalaust um allt milli him-
ins og jarðar,“ segir neminn og
listakonan Rakel Ýr Ómarsdóttir,
sem hefur tileinkað sér gotnesk-
an stíl.
Að sögn Rakelar má finna fólk á
öllum aldri sem fer eftir goth-lífs-
mátanum, ekki bara leitandi ungl-
inga, gagnstætt því sem marg-
ir kunni að halda. „Í London er
að finna fólk frá unglingsaldri og
alveg upp í fimmtugt, sem sækir í
Camden Town-hverfið,“ útskýrir
hún. „Goth tengist því ekki bara
einhverju unglingaskeiði. Auðvit-
að getur þetta samt alveg elst af
fólki. Það er bara alveg eins með
það og annað sem það tekur sér
fyrir hendur.“
Föt eru stór hluti af ímynd goth-
ara og segist Rakel kaupa megn-
ið af þeim erlendis, enda sé ekki
hlaupið að því að fá slíkan fatnað
hérlendis, þótt þeim verslunum
fjölgi sem selja þau. „Ég versla
til dæmis í London, þar sem ég
get fundið á mig áhugaverð líf-
stykki og kjóla í viktoríönskum
stíl. Goth-stefnan hefur sterk ítök
þar og Camden Town er undirlagt
af goth-verslunum, þar sem mikil
lífsgleði ríkir. Á Íslandi finn ég
helst föt á mig í Spútnik og slík-
um búðum.“
En skyldi ekki fara töluverður
tími í að setja upp farðann, greiða
hárið og skella sér í latex, leður
og plast áður en haldið er út á
lífið? „Nei, alls ekki,“ svarar
Rakel hlæjandi og bætir ögn
kaldhæðnislega við: „Það er að
vísu mjög misjafnt, en yfirleitt er
nú ekki mikið mál að slétta á sér
hárið og mála sig um augun.“
Rakel segir að viðbrögðin sem
hún og vinir hennar fái vegna
klæðaburðarins nokkuð misjöfn.
„Mörgum finnst fatnaðurinn töff
og játa að þeir vildu óska sér að
vera jafn frjálslegir og við,“ segir
hún. „Öðrum hættir til að líta á
mig eins og eitthvert viðrini og
koma jafnvel fram við mig í sam-
ræmi við það. Ég viðurkenni samt
að goth-arar eru ekki alltaf barn-
anna bestir og geta verið jafn for-
dómafullir gagnvart þeim sem
kjósa að fara hefðbundnari leiðir
í fatavali. Sýnir það ekki bara að
í öllum hópum leynast svartir
sauðir?“
Goth snýst um tjáninguNÝTT
Fáðu fæturna mjúka og fína
á 2 vikum með Flextiol
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum,
Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur.
Flottir
leðurjakkar
á góðu verði
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
Bæjarlind 6 - s. 554-7030
Eddufelli 2 - s. 557-1730
KVARTBUXUR
kr. 3900.-