Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 38
7. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið norðurland
Listasumar er haldið á hverju ári á Akureyri og
stendur þá yfir skipulögð dagskrá frá Jóns-
messu og til ágústloka. Valdís Viðars hefur haft
veg og vanda af því að skipuleggja dagskrána
að þessu sinni og segir margt spennandi í boði.
„Setning Listasumars er 20. júní,“ segir Valdís.
„Sýningin „Jónas í Lystigarðinum“ verður sett upp í
Lystigarðinum þann dag. Þar verður hægt að hlýða á
ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, sem er að þessu sinni
eins og og rauður þráður í gegnum dagskrána, upphaf
hennar, miðja og endir. Enda á Jónas einmitt 200 ára
afmæli í ár.“
Að sögn Valdísar ættu tónlistarunnendur að geta
hlakkað til, þar sem fjölbreyttir tónlistarviðburðir
verða á boðstólum. „Hérna verður kvintett úr
Metropolitan-óperunni heimsfrægu á ferðinni, Hanne
Juul Trio frá Svíþjóð og Jessica Sligter: The Story of
Modern Farming með tónleika, svo nokkur dæmi séu
nefnd,“ segir hún.
„Barnamenningunni verða líka gerð góð skil á Jóns-
messu sem endranær,“ heldur Valdís áfram. „Þannig
munu valdir listamenn, á borð við Þráin Karlsson,
Þórarin Blöndal, Örnu Valsdóttur, Hönnu Hlíf Bjarna-
dóttur og fleiri góða, taka á móti börnunum. Að þessu
sinni ætla þeir að vinna með verk rithöfundarins
Brynhildar Þórarindóttur, sem hefur getið sér góðan
orðstír fyrir endurritanir á Laxdælu, Eglu og Njálu.
En þess má geta að fyrir þá síðustu hlaut höfundurinn
viðurkenningu IBBY-samtakanna á Íslandi.“
Að sögn Valdísar er einnig von á þýskum rithöfundum
til Akureyrar í tilefni af dagskránni og koma þeir á
vegum Arthúrs Björgvins Bollasonar fyrir viðburðinn
Heim ljóssins, sem hann skipulagði líka á síðasta ári
með Sigurði H. Jónssyni og Sigurði A. Magnússyni.
Valdís vill ekki gefa of mikið uppi um þennan einstaka
dagskrárlið en segir hann sannkallaðan hvalreka fyrir
áhugamenn um bókmenntir.
Valdís segir dagskránni ljúka með Akureyrar-
vöku 25. ágúst. Samdægurs verður opnuð samsýning
22 listamanna í Ketilhúsinu, sem ber yfirskriftina
„Daðrað við Jónas“, þar sem þeir hafa fengið viðfangs-
efnið Jónas Hallgrímsson frá sýningarstjóranum Þór-
arni Blöndal. Er þetta aðeins brot af því sem verður
í boði og þótt Listasumri ljúki í ágúst, verður sneisa-
fullt af spennandi menningarviðburðum á Akureyri
allt árið um kring. roald@frettabladid.is
Daðrað við Jónas
Að sögn Valdísar varð hugmyndin að Listasumri upphaflega til hjá hópi áhugamanna sem settu sér það markmið að byggja upp
menningarstarfsemi í gömlu húsnæði KEA. Vegna þess hve vel tókst til var starfinu haldið áfram og varð það til þess að fyrsta
Listasumarið var haldið á Akureyri árið 1993. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Arctic Open er alþjóðlegt golfmót á vegum Golfklúbbs Akureyrar
sem hefur fest sig í sessi og verður nú haldið dagana 21.-24. júní
næstkomandi.
Forsvarsmenn Golfklúbbs
Akureyrar segir völlinn
aldrei hafa verið betri
að vori og því von á góðu
sumri. Mikil stemning hefur
myndast fyrir Arctic Open-
mótinu í lok mánaðarins
en löngu er orðið uppselt.
Nú getur fólk aðeins skráð
sig á biðlista. Búast má við
kylfingum víðs vegar að úr
heiminum.
Það var fyrst árið 1986
að Arctic Open-mótið var
haldið og var þá einungis
keppt í einum flokki með
forgjöf. Kylfingar koma
víðs vegar að úr heimin-
um til að taka þátt í mótinu
og njóta þess að spila golf í
miðnætursólinni.
Frá árinu 1987 hefur verið keppt í tveimur flokkum, með og án
forgjafar, og það ár var atvinnumönnum í fyrsta sinn boðin þátt-
taka og mótið um leið gert að alþjóðlegu golfmóti. Árið 2002 var
bætt við verðlaunum fyrir besta árangur í kvenna- og öldunga-
flokki án forgjafar. - keþ
Golf undir miðnætursól
Arctic Open-mótið er haldið í lok júní
þegar bjart er allan sólarhringinn.
Lystigarðurinn á Akureyri er á Suðurbrekkunni sunnan
Menntaskólans. Garðurinn er grasa- og skrúðgarður rekinn af
Akureyrarbæ.
Garðurinn var form-
lega opnaður árið 1912 en
grasagarðurinn árið 1957.
Garðurinn hefur verið
stækkaður þrisvar frá
upphafi og er nú um 3,7
hektarar.
Hlutverk garðsins
er margþætt. Fyrst og
fremst er lögð áhersla
á prófanir á fallegum,
harðgerðum, erlendum
plöntum sem hægt er að
rækta hérlendis. Einnig
að vera almenningsgarður
sem nýtist til fróðleiks og
skemmtunar. Á sumrin
er garðurinn dásamlegur
staður á góðum degi. Fjöldi
gosbrunna prýða garð-
inn ásamt trjám, blóm-
um og gróðri og einnig eru
þar fallegir göngustígar og grasflöt þar sem hægt er að liggja
þegar sólin birtist.
Lystigarðurinn er opinn frá 1. júní-30. september; á virkum
dögum klukkan 8-22 og um helgar klukkan 9-22. - rh
Láttu Lystigarðinn eftir þér