Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 72

Fréttablaðið - 07.06.2007, Page 72
Leikarinn Sacha Baron Cohen, sem þekktastur er fyrir túlk- un sína á Borat og Ali G, á von á barni með áströlsku leikkonunni Isla Fisher. Leikkonan mun hafa greint nánum vinum frá tíðindun- um þegar parið sótti MTV-kvik- myndaverðlaunahátíðina í vik- unni, þar sem Sacha Baron hlaut meðal annars tvenn verðlaun. „Ég er ólétt og mér líður frábærlega. Ég er mjög spennt yfir því að verða mamma,“ á Fisher að hafa sagt við vinkonur sínar, Drew Barrymore og Cameron Diaz. Fisher, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Wedding Crashers, mun vera komin þrjá mánuði á leið en hvorki hún né Sacha Baron vildu tjá sig um málið við fjölmiðla ytra. Borat verður pabbi Angelina Jolie hefur viðurkennt að samband hennar við Brad Pitt sé ekki upp á sitt besta í augnablik- inu. Hún segir þau skötuhjú fá afar lítinn tíma til að rækta eigið sam- band þar sem allur tíminn fari í barnauppeldið, en sem kunnugt er eiga hún og Brad fjögur börn, öll undir sex ára aldri. Jolie segir hins vegar að hún og Pitt séu að vinna mikið í sínum málum og reyni eftir fremsta megni að gera fjölskyldu- lífið eins eðlilegt og mögulegt er. Stundum taki börnin hins vegar of mikinn toll. „Á þessari stundu eigum við í vandræðum. Öll pör þurfa á sínum tíma að halda og við erum þar engin undantekning. Við erum að vinna í þessum málum og ætlum að reyna að ná betra skipulagi í heimilislíf- ið,“ sagði Jolie í viðtali. Ummæli Jolie þykja ýta undir orðróm um að Pitt sé orðinn þreyttur á samband- inu en hann þótti úrvinda þegar hann kom fram á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes í síðasta mánuði. Barnauppeldið virðist þó ekki vera ástæðan því stjörnuparið mun vera að ættleiða eitt barn til viðbót- ar og í þetta sinn ætla þau að taka að sér nokkurra mánuða gamlan munaðarleysingja frá Tékklandi. Verður það önnur ættleiðing hjón- anna á síðustu fjórum mánuðum. Samband Jolie og Brad Pitt í uppnámi Parið Berglind Hólm Ragn- arsdóttir og Mario Ruiz hafa sett á laggirnar síðuna bestiheimi.is. Þar gefst not- endum kostur á að auðvelda sér bloggflandrið. „Þetta kom eiginlega til af því að við vorum alltaf að tala um það í vinahópnum hversu pirrandi það er að vera alltaf að fara inn á bloggin hjá öllum,“ útskýrði Berg- lind. „Við bloggum bæði og allir vinir okkar líka. Morgunrútínan hjá okkur er þannig að við lesum fyrst blöðin og svo bloggin. Maður var flakkandi á milli blogga, og svo var kannski enginn búinn að skrifa neitt nýtt. Við fórum að tala um hvað það væri þægilegt að hafa þetta allt saman á einum stað,“ sagði Berglind. Hún er nemi í félagsfræði, en Mario er forrit- ari. Afraksturinn er bestiheimi.is. Þar stofna notendur sérstakan reikning og setja blogg vina sinna og vandamanna í áskrift. „Þá safn- ast bloggin á eina síðu. Þú ferð bara inn á hana og sérð þar hverjir eru búnir að skrifa eitthvað nýtt,“ útskýrði Berglind. „Og ef þú átt vini sem eru mjög latir við þetta geturðu meira að segja fengið sendan tölvupóst þegar þeir bæta inn á síðuna sína,“ bætti hún við. Berglind og Mario veltu því fyrst fyrir sér að hafa síðuna alþjóðlega, en ákváðu síðar að einbeita sér að íslenskum bloggheimi. „Það eru svo fáir sem tala íslensku, og líka svo margir sem eru að blogga á landinu,“ sagði Berglind. Notend- ur geta þó bætt hvaða bloggi sem er inn á listann sinn, en það er svo merkt sem annað hvort íslenskt blogg, enskt, spænskt, eða sem „annað“ tungumál. Á forsíðu bestí- heimi er svo hægt að velja ein- hvern af þessum flokkum og skoða hverju aðrir notendur fylgjast með. Utan blogga nær bestíheimi einnig yfir fréttir. „Planið er að búa líka til spænska síðu, en ég veit ekki hvort það verður neitt meira en það,“ sagði Berglind. Spánn ligg- ur beinast við þar sem Mario er af spænsku bergi brotinn. Berglind bendir á að síðan sé enn í betaútgáfu. „Það getur vel verið að þar séu villur, svo fólk má endilega benda okkur á þær,“ sagði hún.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.