Fréttablaðið - 07.06.2007, Qupperneq 82
Gunnar Heiðar Þorvalds-
son ætlar að byrja að æfa á fullu
í Þýskalandi, viku áður en undir-
búningstímabilið hefst formlega
hjá félagi hans, Hannover 96.
Hann hefur verið staddur hér á
landi undanfarnar vikur en fór í
nótt aftur til Þýskalands.
„Ég byrja á því að fara í athug-
un hjá læknum Hannover til að
athuga hvort það sé ekki allt í lagi
hjá mér,“ sagði Gunnar Heiðar.
„Ég er núna loksins orðinn heill af
þessum meiðslum og vonandi að
það haldi sér þannig,“ sagði hann
en meiðslin hafa verið að plaga
hann nánast allt tímabilið. Hann
fékk ekki bót meina sinna fyrr en
hann hitti lækni Bayern München
og þýska landsliðsins.
Á morgun fer hann svo til Balí
í tíu daga frí en snýr svo aftur til
Hannover.
„Ég ætla að byrja að æfa á fullu
viku áður en undirbúningstímabil-
ið byrjar hjá liðinu. Ég hef áður
sagt að ég vilji fá tækifæri til að
sýna mig og sanna hjá þessu liði.
En þetta mun svo koma til með að
skýrast allt saman.“
Hann segir að mörg félög hafi
sett sig í samband við umboðs-
mann sinn, Ólaf Garðarsson.
„Mörg félög hafa stungið upp á
því að það væri betra fyrir mig
að fara til þeirra þar sem ég fengi
nóg að spila í stað þess að sitja á
bekknum hjá Hannover. En hann
hefur á móti sagt að ég hef verið
meiddur,“ sagði Gunnar Heiðar.
Hann veit ekki hvaða félög það
eru sem hér um ræðir og vill þar
að auki ekki vita það.
„En það er jákvætt að það sé
verið að fylgjast með manni. Nú
er maður kominn í fílinginn aftur
og ég held að næsta ár verði algjör
sprengja.“
Hann var meðal áhorfenda á leik
Íslands og Liechtenstein um helg-
ina en viðtalið var tekið fyrir leik-
inn gegn Svíum í gær. „Auðvitað
var það algjör hörmung að þurfa
að sitja upp í stúku og horfa á leik-
inn. En svona er þetta bara. Ég var
þó sáttur við ungu strákana í lið-
inu, þeir hlupu og börðust vel.“
Byrjar að æfa viku fyrr en hinir
Úrslitarimma Cleve-
land Cavaliers og San Antonio
Spurs hefst í kvöld. Veðbankar
hafa litla trú á Cavs sem státa þó
af LeBron James sem hefur verið
hreint magnaður í úrslitakeppn-
inni. Bruce Bowen fær það hlut-
verk að gæta hans en hann hefur
í fjögur ár í röð verið valinn
varnarmaður ársins í deildinni.
„Hann er undirstaða liðsins,
það er allt eða ekkert hjá honum.
Hann verður að standa sig í öllum
leikjunum,“ sagði Bowen og kynti
undir James. Cavs unnu báða
leikina milli félaganna í vetur.
Almennt miðaverð á leiki í úr-
slitunum er frá 18 til 940 þúsund
krónur en það er það sem dýrustu
miðarnir á heimaleiki Cleveland
eru verðlagðir á.
Nær Bowen að
stöðva LeBron?
West Ham gekk í gær frá
sínum fyrstu kaupum sumarsins
þegar Scott Parker skrifaði undir
fimm ára samning við félagið.
Parker kostar West Ham sjö
milljónir punda en hann hefur
verið fyrirliði Newcastle síðustu
tvö tímabil. „Ég er í skýjunum.
Hann kemur til okkar meðvitaður
um að við ætlum að fara langt
með félagið,“ sagði Alan
Curbishley, stjóri West Ham.
Parker kominn
Frammistaða LeBron James,
leikmanns Cleveland, í úrslita-
keppni NBA hefur vakið verð-
skuldaða athygli og nú þegar farið
að skoða hana í sögulegu sam-
hengi. NBA tók saman lista yfir
bestu frammistöðu leikmanna í
NBA-deildinni frá upphafi.
1. sæti: Earvin verður að Magic
Árið er 1980. Kareem Abdul-
Jabbar er meiddur en L.A. Lakers
leiðir 3-2 í rimmunni við Phila-
delhia 76ers. Getur það unnið án
Jabbar? Nýliðinn Earvin John-
son, sem trúði því ekki að hann
ætti að byrja leikinn, lýsti yfir að
„þið þurfið ekkert að óttast, E.J er
mættur.“
„Þeir horfðu á mig eins og ég
væri vitleysingur,“ sagði Magic
síðar á ferlinum. „Þessi strákur?
Einmitt,“ sögðu liðsfélagar hans.
Hinn kokhrausti nýliði spilaði sinn
besta leik á ferlinum þetta kvöld.
Hann skoraði 42 stig, tók 15 frák-
öst, átti sjö stoðsendingar og stal
þremur boltum og leiddi lið Lakers
til glæsilegs 123-107 sigurs. „Það
mátti heyra saumnál detta meðal
áhorfenda. Þeir trúðu þessu ekki,“
sagði Magic sem var valinn besti
leikmaður úrslitakeppninnar þetta
ár sem Lakers varð meistari.
2. sæti: LeBron stimplar sig inn
31. maí 2007 - dagurinn sem
LeBron James komst í hóp fram-
úrskarandi leikmanna í sögu NBA.
Þessi strákur er fæddur árið 1984
og er naut að vexti. Ef þetta Cleve-
land lið væri ekki með LeBron
innanborðs hefði það eflaust ekki
komist í úrslitakeppnina. LeBron
skoraði 29 af 30 síðustu stigum
liðsins, mörg hver með stórkost-
legum tilþrifum og Cavs er komið
alla leið í úrslitin.
„Ég skammast mín af því ég á
ekki til orð til að lýsa því sem hann
gerði hérna í kvöld,“ sagði Mike
Brown, þjálfari Cleveland eftir
leikinn. „Þetta var ótrúlegt, ég hef
aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði
Daniel Gibson, leikmaður Cavs.
„Það er ekkert hægt að lýsa þessu
með orðum.“
3. Ekkert fær stöðvað Jordan
Þrátt fyrir að vera nær dauða
en lífi minnti óumdeilanlega besti
körfuboltamaður allra tíma ræki-
lega á sig í leik fimm í úrslita-
keppninni árið 1997. Einvígið var
að snúast Utah Jazz í hag og eftir
tvo tapleiki í röð þurfti Chicago
Bulls á öllu sínu að halda til að
vinna.
Vandamál komið upp - matareitr-
un hjá Jordan sem var sárkvalinn
í marga daga. Læknar Bulls réðu
honum frá því að spila en eftir
að hafa verið rúmfastur í 24 tíma
mætti Jordan galvaskur í Delta
Center þremur tímum fyrir leik.
„Hann leit mjög illa út, og þá meina
ég mjög illa,“ sagði Scottie Pippen
um félaga sinn.
Þrátt fyrir allt spilaði Jordan, og
það óaðfinnanlega. Hann skoraði
38 stig og dró Chicago-vagninn
sem rann til 90-88 sigurs. „Þetta
var líklega það erfiðasta sem ég
hef nokkurn tímann gert. Ég spilaði
þar til það leið næstum yfir mig.
Ég hefði verið miður mín hefðum
við tapað,“ sagði Jordan eftir leik-
inn.
Í fjórða sæti var svo Isiah Tomas
og 43 stig hans fyrir Pistons þegar
hann var illa meiddur á ökkla allan
síðari hálfleikinn en dró lið sitt
samt áfram til sigurs gegn Lakers
1988. Fimmta sætið skipar svo
Michael Jordan og 63 stigin sem
hann skoraði gegn Boston Celtics
í úrslitakeppninni 1986. „Guð er
mættur í dulargervi Michael Jor-
dan,“ sagði Larry Bird eftir þann
sögufræga leik.
Frammistsaða LeBron James í sjötta leik Cleveland Cavaliers og Detroit Pistons hefur vakið verðskuldaða
athygli. NBA.com tók saman lista yfir bestu frammistöðu leikmanna í sögu NBA-deildarinnar.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, flugsæti með sköttum,
m.v. 29. júní í 1 eða 2 vikur.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Barcelona 22. júní. Þú bókar
tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt.
Borgin býður frábært mannlíf og óendan-
lega fjölbreytni í menningu og afþreyingu
að ógleymdu öllu því úrvali fjölbreyttra
verslana sem eru í borginni. Gríptu þetta
frábæra tækifæri - aðeins örfá sæti laus!
2 fyrir 1 til
Barcelona
22. júní
frá kr. 24.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 24.990
Netverð á mann, flugsæti með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð 22. júní í 1 eða 2 vikur.
Ísland vann í gær aftur
eins marks sigur á Tékkum í æf-
ingaleik ytra, rétt eins og í fyrra-
dag. Lokatölur leiksins í gær 26-
25 eftir að Tékkland var tveimur
mörkum yfir í hálfleik.
Alfreð Gíslason var léttur í
bragði þegar Fréttablaðið náði tali
af honum í gær. „Já, það er greini-
lega þessi þvílíka sigling á okkur,“
sagði hann og hló.
„En þetta var kaflaskiptur
leikur. Við byrjum gríðarlega vel
og komumst 5-1 og 6-2 yfir. Svo
verðum við hrikalega kærulausir,
förum illa með sendingar og færi
og hleypum þeim aftur inn í leik-
inn. Við erum svo 2-3 mörkum
undir stærstan hluta síðari hálf-
leiksins en spiluðum svo aftur
afar vel síðasta korterið,“ sagði
Alfreð.
Snorri Steinn Guðjónsson var
markahæstur íslenska liðsins í
gær en Róbert Gunnarsson kom
næstur með fimm. Ólafur Stefáns-
son gerði fjögur, Guðjón Valur
Sigurðsson þrjú sem og Logi
Geirsson. Ásgeir Örn Hallgríms-
son skoraði tvívegis og Sigfús
Sigurðsson, Alexander Petersson
og Hannes Jón Jónsson einu sinni
hver.
„Við vorum í vissum vandræðum
með mörk utan af velli í þessum
leikjum og spiluðum allt of hægt til
að byrja með. Það bættist þó aðeins
eftir því sem á leið,“ sagði Alfreð.
Hann kveðst þokkalega sáttur fyrir
leikinn gegn Serbum á laugardag.
„Það er heilmargt í okkar leik
sem við getum bætt. Mér finnst
að útileikmennirnir okkar eigi til
að mynda heilmikið inni. Vörnin
spilaði ágætlega á köflum en fékk
svo á sig afar ódýr og kæruleysis-
leg mörk inn á milli,“ sagði Alfreð.
Rimman við Serba sker úr um
hvor þjóðin fer á EM í Noregi á
næsta ári
Aftur eins marks sigur á Tékkum ytra