Fréttablaðið - 14.06.2007, Side 2
„Ég veit ekki hvað
þetta safn þolir,“ segir Júlíana
Gottskálksdóttir, forstöðumaður
Listasafns Einars Jónssonar.
Júlíana óttast að framkvæmdir
við fyrirhugaðan bílakjallara milli
Iðnskólans og Hallgrímskirkju
hafi í för með sér svo miklar hrær-
ingar í klöppinni á Skólavörðuholti
að listasafnið og listaverkin verði
fyrir skemmdum. Innandyra eru
meira en 200 gipslistaverk Einars
sem öll eru yfir aldargömul. Húsið
sjálft, Hnitbjörg, var byggt árið
1916 eftir teikningum Einars og er
friðað.
Formaður sóknarnefndar Hall-
grímskirkju er líka áhyggjufullur.
„Maður spyr sig ef það á að fara
að sprengja hér niður í holtið
hvaða áhrif það hefur á sprungu-
myndun í kirkjunni. Nóg er það
fyrir,“ segir Jóhannes Pálmason,
Deiliskipulagstillaga um stækk-
un Iðnskólans og byggingu áður-
nefnds bílakjallara fyrir 130 bíla
er nú til kynningar hjá skipulags-
sviði Reykjavíkur. Frestur til að
að gera athugasemdir rennur út 6.
júlí. Júlíana segist hafa sent inn
athugasemd og að hún bíði nú nán-
ari skýringa á því hvernig unnið
verði á klöppinni þar sem bíla-
kjallarinn eigi að vera.
„Ég veit ekki hvort menn geta
opnað svona berg án þess að
sprengja en vil fá vita hvað þetta
þýðir fyrir safnið. Þurfum við að
flytja verkin í burtu á meðan? Þetta
eru gipsverk sem verða ekki auð-
veldlega færð úr stað og einhver
þeirra verða einfaldlega ekki færð
því þau er föst við stöpulinn. Ef
menn ætla að gera þetta verður að
vera tryggt að þeir valdi ekki óbæt-
anlegum skaða annars staðar,“
segir Júlíana Gottskálksdóttir.
Jóhannes Pálmason segir
sóknarnefndina eiga eftir að ræða
saman og litið verði á málið fljót-
lega.
„Ég get hins vegar sagt sem ein-
staklingur að mér hrýs hugur við
því að það eigi að fara hrista hér
allt nágrennið með tilheyrandi
gauragangi. Ég veit ekki hvernig
tæknin er í svona sprengingum í
dag en þegar svona klöpp er
sprengd þá hlýtur allt að nötra í
nágrenninu. Ég hef líka áhyggjur
að innviðum kirkjunnar og ekki
síður af því stórfenglega hljóð-
færi sem þar er. Orgelið kostaði
200 milljónir króna,“ segir Jóhann-
es, sem kveðst fyrst hafa frétt af
málinu í blöðunum:
„Málið hefur aldrei verið lagt
fyrir kirkjuna á fyrri stigum
undirbúnings. Það vekur undrun.“
Óttast sprengingar
á Skólavörðuholti
Formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju segir sprungumyndun í kirkjunni
nóga þótt ekki bætist við sprengingar vegna fyrirhugaðs bílakjallara. Forstöðu-
maður Listasafns Einars Jónssonar óttast um húsið og fjölda gipsverka í safninu.
Eva, er þetta fordæðuskapur
21. aldar?
Sjö alþingismenn voru
kosnir í Þingvallanefnd á fundi
Alþingis í gær.
Í nefndina
voru kjörin
Björn Bjarna-
son, Kjartan
Ólafsson,
Arnbjörg
Sveinsdóttir,
Össur Skarp-
héðinsson,
Lúðvík Berg-
vinsson, Kolbrún Halldórsdóttir
og Bjarni Harðarson.
Áður sátu þrír í Þingvallanefnd
en ákveðið var 2004 að fjölga
nefndarmönnum í sjö. Lágu þau
meginsjónarmið að baki að fleiri
stjórnmálaflokkar en þrír ættu að
koma að málefnum þjóðgarðsins.
Björn Bjarnason hefur verið
formaður Þingvallanefndar frá
1992.
Fjölgað um fjóra
í Þingvallanefnd
Lokað var fyrir skráning-
ar í hlutafjárútboði í Føroya Banka,
þar sem hver og einn fjárfestir gat
skráð sig fyrir tveimur milljónum
danskra króna eða minna, strax í
gær vegna mikillar þátttöku
fjárfesta. Færeyska landsstjórnin
selur hlutaféð og gátu fjárfestar í
Danmörku, Færeyjum og Íslandi
skráð sig fyrir hlutum í þessum
hluta útboðsins.
Hinum hluta útboðsins, sem
beint er til fagfjárfesta, verður
framhaldið að öllum líkindum til
19. júní. Útboðsgengi og skipting
hlutafjár til fjárfesta verður
kynnt eigi síðar en 20. júní.
Heildarupphæð útboðsins getur
numið allt að 14,1 milljarði króna.
Eins og fram kom í Markaðnum í
gær fá smærri fjárfestar að kaupa
um fimmtung þeirrar fjárhæðar.
Sölu til smærri
fjárfesta lokið
Embætti ríkissak-
sóknara hefur gefið út ákæru á
hendur átján ára pólskum pilti
en hann er grunaður um að hafa
nauðgað stúlku á kvennasalerni
Radisson-SAS Hótel Sögu
aðfaranótt 17. mars.
Stúlkan leitaði til starfsfólks á
hótelinu eftir að atvikið átti sér
stað en pilturinn hljóp af
vettvangi áður en lögreglan kom
á staðinn.
Lögreglan handtók piltinn í
heimahúsi daginn eftir.
Pilturinn hefur neitað sök og
ber því við að stúlkan hafi
samþykkt að stunda með honum
kynlíf inni á salerninu.
Piltur ákærður
fyrir nauðgun
Utanríkisráðherrar
Eistlands og Rússlands, Urmas
Paet og Sergei Lavrov, hittust á
ráðherrafundi Eystrasaltsríkja í
Malmö í Svíþjóð í gær. Þetta var
fyrsti fundur háttsettra fulltrúa
beggja landa síðan samskipti
grannríkjanna hrukku í algjöran
baklás í vor vegna sovésks
minnismerkis sem eistnesk
stjórnvöld létu flytja frá miðborg
Tallinn inn í hermannakirkjugarð.
„Ég tel að það sé 90 prósent
undir Rússum komið (að bæta
samskiptin). Við erum mjög opnir
fyrir lausnum,“ sagði Paet eftir
fundinn. Lavrov sagði að Rússar
reyndu að eiga vinsamleg
samskipti við allar grannþjóðir
sínar, en bætti við að „við eigum í
vandræðum með Eistland“.
Engin merki
um þíðu
Kona á fimmtugs-
aldri og karlmaður á fertugsaldri
voru í gær úrskurðuð í þrjátíu
daga fangelsi í Héraðsdómi
Suðurnesja fyrir að framvísa föls-
uðum vegabréfum við komuna til
Íslands á föstudag og laugardag.
Maðurinn, sem er frá Hvíta-
Rússlandi, kom til landsins frá
London og hugðist setjast hér að.
Hann framvísaði vegabréfi frá
Litháen. Konan kom frá París á
laugardag og ætlaði að halda
áfram vestur um haf. Hún er frá
Srí Lanka en framvísaði kanad-
ísku vegabréfi. Konan var í hjóla-
stól en meðan eftirlitsmenn voru
að skoða vegabréfið reis hún á
fætur og teygði úr sér þegar hún
hélt að enginn sæi til. Það stað-
festi grun manna um að ekki væri
allt með felldu.
Eyjólfur Ágúst Kristjánsson,
fulltrúi lögreglustjórans á Suður-
nesjum, segir að málum af þessu
tagi hafi fækkað verulega á
undanförnum árum eftir að farið
var að taka harðar á þeim. Hann
segir að í báðum þessum tilfellum
hafi verið um að ræða breytiföls-
un, það er stolin vegabréf sem
búið var að breyta.
Ákærur á hendur fólkinu voru
þingfestar í héraðsdómi í gær og
voru þau dæmd í þrjátíu daga
fangelsi hvort. Þau verða að lík-
indum send úr landi að lokinni
afplánun.
Reis úr hjólastól með falsað vegabréf
Stríðandi fylkingar Palestínumanna,
Hamas og Fatah, berjast hatrammri baráttu á
Gazaströndinni. „Þetta er brjálæði, það ríkir
brjálæði í Gazaborg,“ sagði forseti Palestínu,
Mahmoud Abbas, við blaðamenn í gær.
Ofbeldið magnast stöðugt og hafa yfir 50 manns
látist síðan á mánudag þegar ástandið komst á
suðupunkt. Að minnsta kosti fimmtán manns létust í
gær, þar á meðal maður sem var skotinn í höfuðið af
Hamas-liðum þegar hann tók þátt í friðsamlegum
mótmælum gegn ofbeldinu í Gazaborg. Götur
borgarinnar eru að mestu auðar, verslanir lokaðar
og íbúar halda sig skelfingu lostnir heima.
Abbas hefur sent ákall til Khaled Mashaal, útlægs
leiðtoga Hamas, um að endir verði bundinn á
ofbeldið. Hamas-liðar hafa þó haldið uppteknum
hætti við að kerfisbundið umkringja, yfirtaka og
eyðileggja bækistöðvar öryggissveita sem eru
hliðhollar Fatah. Hamas-liðar hafa náð á sitt vald
mikilvægum samgönguæðum í Gazaborg og herskár
hópur, hliðhollur Hamas, sagðist í gær hafa náð á
sitt vald landamærum Gaza og Egyptalands til að
koma í veg fyrir vopnasmygl og tryggja að íbúar
Gaza flýji ekki yfir landamærin. Talsmaður Hamas,
Sami Abu Zuhri, sagði að afstýra hefði mátt
átökunum ef Abbas hefði gefið ríkisstjórn Palestínu,
sem Hamas stýrir, stjórn yfir öryggissveitum.
„Forsetinn ber alla ábyrgð á átökunum.“