Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 34
14. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið garðurinn
Margrét Frímannsdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður, er
mikill garðunnandi og hefur
ræktað upp garðinn sinn
í Kópavogi frá grunni eftir
að hún keypti hús þar fyrir
fimm árum.
„Ég ólst upp við garðrækt því
mamma var ein af þeim fáu sem
reyndu að hafa garð á Stokks-
eyri þegar ég var ung. Það var
alltaf sagt að það þýddi ekkert
að hafa garð við sjávarsíðuna og
þrátt fyrir að við byggjum alveg
niðri við sjóinn var hún alltaf með
blómagarð,“ segir Margrét sem
telur sig hafa smitast af blómaá-
huga móður sinnar í æsku. „Ég vil
alltaf hafa blóm í kringum mig og
garðræktin hefur verið mitt helsta
áhugamál um árin. Það veitir mér
mikla hugarró að fara út í garð til
dæmis eftir mikla fundasetu eða
annað og það má segja að garð-
ræktin sé mín líkamsrækt.“
Margrét flutti í Kópavoginn
ásamt eiginmanni sínum fyrir
fimm árum og var ánægð með að
garðurinn skyldi vera í algjörri
órækt. „Það var bara hekkið og
nokkur tré svo við gátum skipu-
lagt þetta sjálf alveg frá grunni.
Núna erum við að klára fram-
kvæmdir bak við húsið og reisa
lítið garðhús sem maðurinn minn
gaf mér í afmælisgjöf á dögunum.
Þar ætla ég að geyma verkfærin
mín og rækta upp plöntur því mér
finnst svo gaman að byrja snemma
á vorin að setja niður lauka,“ segir
Margrét.
Í garðinum hjá Margréti eru
nánast eingöngu fjölærar plönt-
ur og segist hún vera mun minna
fyrir sumarblómin. „Mér finnst
það mjög heillandi að fylgjast
með blómunum ár eftir ár og sjá
þau vaxa og dafna. Það gefur líf-
inu svo mikinn tilgang að sjá hvað
maður getur ræktað upp og ég
hugsa um hverja einustu plöntu
eins vel og ég get. Svo er það nátt-
úrulega alveg nauðsynlegur hluti
af sumrinu að hafa gróðurinn,“
segir Margrét sem þekkir nöfnin
á öllum plöntunum sínum.
„Í dag eru liljur af öllum teg-
undum uppáhaldsblómin mín. Ég
er með sextán eða sautján afbrigði
af liljum í garðinum hjá mér og
mér finnst þær ofsalega falleg-
ar,“ segir Margrét en í garðinum
má líka finna þrjú eplatré, plómu-
tré og kirsuberjatré sem eru farin
að blómstra. „Ég þarf bara að fá
fleiri hunangsflugur í garðinn hjá
mér en það er óvenjulítið um hun-
angsflugur og geitunga hér núna,“
segir Margrét sem er líklega einn
fárra Kópavogsbúa sem sakn-
ar hunangsflugnanna og geitung-
anna í sumar. sigridurh@frettabladid.is
Hugsar um hverja plöntu
Margrét hefur ásamt eiginmanni sínum náð að búa til gríðarlega fallegan garð í Kópavoginum á aðeins fimm árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Rauðvíðirinn dafnar vel í garðinum og er
Margrét afskaplega ánægð með hvað hann
hefur náð sér vel á strik. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Lítill og sætur gosbrunnur gægist upp á milli blómanna á sólpallinum og skapar
notalegan vatnsnið þegar hann seytlar ofan í litlu tjörnina. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Þessi fallegi engill sómir sér vel þar
sem hann stendur á steini og nýtur sín í
góðviðrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
BLÓMABOLLI
Gaman getur verið að brjóta upp hefðbundið
form eins og hönnuðurinn Gitta Gschwendtner
hefur gert með blómabollanum. Á mynd
lítur hann út fyrir að vera venjuleg-
ur kaffibolli með undirskál en í raun
er hann stór blómapottur sem Gitta
hefur nefnt Plant cup. Bollinn getur
bæði staðið innandyra og úti. Þessi skemmtilega hugmynd Gittu hefur
óneitanlega á sér dálítinn Lísu í Undralandi brag. Plant cup er til sölu á
vefsíðunni thorstenvanelten.com.
LÍFRÆN RÆKTUN er í örum vexti og ætti ekkert að vera því til
fyrirstöðu að fólk geri garðinn heima lífrænan. Til þess að garðurinn sé líf-
rænn þarf að fylgja nokkrum reglum. Til dæmis má ekki nota skordýra-
eitur eða tilbúinn áburð, nema áburðurinn sé lífrænn. Vefsíðan www.org-
anicgarden.com er óþrjótandi brunnur upplýsinga um lífræna garðrækt.
Upplýsingarnar henta vel íslenskum garðræktendum því þær taka mið af
því að sá sem nýtir sér þær getur verið staddur hvað sem er í heiminum.
Besta leiðin til að losna við
fíflana er að stinga þá upp að
vori þegar þeir eru vel sjáan-
legir og viðráðanlegri en þegar
líða tekur á sumarið. Hægt er að
nota kantskera eða svokallaðan
fíflabana til verksins en mestu
skiptir að ná upp rótinni. Verið
er að reyna að minnka eitur-
efnanotkun í görðum og þetta er
því einfaldasta og besta leiðin.
Ráðist á fíflana
Family
tekkborð með
sólhlíf og
Helena
stólar
frá
Royal Teak.
Fiskislóð 45 • 101 Reykjavík • S-565 3399 • www.signature.is