Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 24
[Hlutabréf]
Hagvöxtur á fyrsta fjórðungi árs-
ins var svo til enginn en lands-
framleiðsla dróst saman um 0,1
prósent á tímabilinu á milli ára að
raunvirði, samkvæmt nýjum tölum
sem Hagstofan birti í gær.
Mestu munar um samdrátt í
þjóðarútgjöldum upp á 9,6 prósent
á milli ára. Á móti jukust utanrík-
isviðskipti um 17 prósent á tíma-
bilinu á meðan innflutningur dróst
saman um 12 prósent.
Einkaneysla er stór liður í hag-
vaxtartölum Hagstofunnar en
neyslan dróst saman um 1,2 pró-
sent á milli ára. Munar miklu um
25 prósenta samdrátt í bílakaup-
um.
Einkaneyslan hefur vaxið sam-
fellt frá þriðja ársfjórðungi 2002
og segir Hagstofan að með töl-
unum nú sé ljóst að þessum sam-
fellda neysluvexti sé lokið.
Greiningardeild Kaupþings
segir samdráttinn talsvert undir
væntingum. Gefi það til kynna að
peningamálastefna Seðlabankans
sé farin að segja til sín og hafi það
komið niður á einkaneyslu. Bank-
inn gerði ekki ráð fyrir aukinni
einkaneyslu vegna samdráttar í
bílakaupum. „Þetta kemur svolít-
ið á óvart nú þegar væntingar eru
í hæstu hæðum og ýmsar vísbend-
ingar um kaupgleði,“ segir Þór-
hallur Ásbjörnsson, sérfræðing-
ur hjá greiningardeild Kaupþings,
og bætir við að nýjustu tölur um
kortaveltu séu vísbendingar um
aukna neyslu. Hann áréttar hins
vegar að horfur séu á áframhald-
andi samdrætti í bílakaupum og
geti það ýtt einkaneyslu niður á
næstu misserum.
Þórhallur segir horfur á að út-
flutningur muni aukast eftir því
sem líði á árið og muni aukinn ál-
útflutningur leiða vöxtinn. „Við
gerum ráð fyrir því að Fjarðarál
Alcoa á Reyðarfirði komi sterkt
inn á öðrum ársfjórðungi,“ segir
hann.
Hagstofa Íslands segir samfelldum neysluvexti heimilanna í tæp fimm ár lokið.
Félögum sem munu mynda Úrvals-
vísitöluna (OMXI15) á seinni helmingi
ársins fækkar úr fimmtán í fjórtán. Inn
koma Exista, Icelandair Group og Teymi
en út fara 365 hf., Alfesca, Atlantic
Petroleum og Marel. Þótt 365 uppfylli
skilyrði Kauphallar um veltu nær félagið
ekki nægjanlegri markaðsstærð.
Með nýrri skipan Úrvalsvísitölunnar
eykst vægi fjármálafyrirtækja enn
frekar. Fjármálafyrirtækin Kaup-
þing, Glitnir, Landsbankinn, Straumur-
Burðarás, Exista, FL Group og Atorka
Group vega um 83 prósent af Úrvals-
vísitölunni þegar markaðsvirði félag-
anna hefur verið flotleiðrétt.
Greiningardeild Kaupþings bendir á
að þegar síðast var valið í Úrvalsvísi-
töluna í lok nóvember á síðasta ári var
vægi fjármálafyrirtækja um 71 prósent.
Exista vegur þungt í þessari aukningu
en félagið hefur um sjö prósenta vægi í
vísitölunni.
Hugsanlegt er að aðeins tólf fyrirtæki
myndi vísitöluna á næstunni ef yfirtökur
á Actavis og Mosaic ganga eftir. Grein-
ing Glitnis reiknar með að detti þessi tvö
félög út muni vægi fjármálafyrirtækja
fara yfir 90 prósent af heildarvægi Úr-
valsvísitölunnar.
Skráning nýrra félaga í Kauphöllina
á næstu mánuðum kann hins vegar að
draga úr þunga fjármálafyrirtækjanna.
Fjármálafyrirtæki 83% af vísitölu
Exista, Icelandair og Teymi koma ný í Úrvalsvísitöluna en 365, Alfesca, Atlantic og Marel detta út.
Urð og grjót - Upp í mót ...
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC
„Einn sá allra besti“
Heil tunga og vandaður frágangur.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830g (stærð 42).
GTX vatnsvörn.
MFS fóður lagar sig að fætinum.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Sérlega góður stuðningur við ökklann.
Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir.
Verð24.990kr.
Meindl Vakuum GTX MF
NÝJUNG! MFS „passar betur“
Flokkun B
Nubuk leður.
Hár gúmmíkantur, meiri ending!
MFS fóður lagar sig að fætinum.
Gore Tex vatnsvörn.
Vibram sóli.
Verð22.990kr.
Meindl Colarado lady
Flokkun B
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð17.990
Verð áður 19.990 kr.
Meindl Air Revolution GTX
Flokkun B
Hönnun sem miðar að hámark öndun.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 630g (st.37).
Gore Tex vatnsvörn.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Fáanlegir í dömu- og herraútfærslum.
Verð22.990kr.
Við skiptum skónum hjá okkur í flokka eftir því til hvaða notkunar þeir eru hugsaðir. A: Fyrir auðvelda göngu og daglega notkun • AB: Fyrir göngu á slóðum og láglendi • B: Fyrir lengri göngur og bakpokaferða
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
06
2
06
/0
7