Fréttablaðið - 14.06.2007, Page 10
Tveir karlmenn hafa
verið ákærðir fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir að hóta fólki
með sprautunálum. Um tvö aðskil-
in tilvik er að ræða.
Í fyrra tilvikinu, sem átti sér
stað snemma á sunnudagsmorgni
í september, veittist karlmaður
að öðrum manni á Ingólfstorgi og
krafði hann um peninga. Þegar sá
síðarnefndi sinnti því ekki tók
maðurinn fram sprautu, dró blóð
úr handlegg sínum, ógnaði hinum
með henni og ítrekaði kröfuna
um peninga. Því næst veittist
hann að manninum með brotinni
flösku og sló hann nokkur högg í
höfuðið með henni, þannig að þrír
skurðir í andlit hlutust af.
Sami árásarmaður réðst sama
morgun með brotinni flösku á
annan mann í Aðalstræti, heimtaði
af honum peninga, sló hann með
flöskunni og sparkaði í hann.
Síðara sprautunálamálið átti sér
stað á laugardagsmorgun í janúar,
þegar maður ógnaði leigubílstjóra
með sprautunál og hótaði að smita
hann af lifrarbólgu C. Ofbeldis-
maðurinn hótaði leigubílstjóranum
jafnframt barsmíðum og lífláti. Að
því búnu kastaði hann grjóthnull-
ungi í framrúðu leigubifreiðarinn-
ar þannig að hún brotnaði.
Sami maður er einnig ákærður
fyrir þjófnað í 11-11 verslun.
Íslenskt sjónvarps-
efni og kvikmyndir verða sýnd í
kínverskum bönkum á næstunni.
Sendiráð Íslands hefur gert
samning við fyrirtækið Focus
Media Development Co. Ltd. í
Kína sem sér um að birta
sjónvarpsefni í kínverskum
bönkum. Samkvæmt samningnum
mun sendiráðið láta fyrirtækinu í
té íslenskt myndefni.
Í Kína er talið að viðskiptavinir
banka þurfi að meðaltali að bíða í
um tuttugu mínútur eftir
afgreiðslu. Það er því trú
sendiráðsins að þessi aðferð veki
athygli Kínverja á Íslandi þar
sem áhorf verði mikið.
Sýnt í kínversk-
um bönkum
Nautarúllan frá SS er vafin inn í
netta rönd af svínaspekki,
taðreykt en þó með mildu en
sjarmerandi reykbragði sem
minnir dálítið á hangikjöt. Það er
því tilvalið að nota SS nautarúllu
á svipaðan hátt og hangiálegg
eða feta nýjar slóðir eins og t.d.
hér er sýnt. Nautarúllan hefur
fengið gullverðlaun í
fagkeppnum bæði hér heima og
erlendis.
Ilmandi
álegg frá SS
www.ss.isF
íto
n
eh
f.
/
S
ÍA
Nýtt félag
á First North
Century Aluminum Company
OMX Nordic Exchange á Íslandi býður
Century Aluminum Company velkomið
á First North Iceland.
Century Aluminum Company, móðurfélag
Norðuráls á Grundartanga, rekur álver í
Bandaríkjunum og á Íslandi. Auk þess á
félagið hlut í báxít og súrálsframleiðslu-
fyrirtækjum í Bandaríkjunum og á Jamaica.
Century Aluminum er skráð á Nasdaq og
verður skráð á First North Iceland 14. júní.
Félagið tilheyrir hráefnisgeira á markaðnum.
omxgroup.com/nordicexchange/firstnorth
Fjárfesting í félagi á markaði First North kann að fela
í sér meiri áhættu en fjárfesting í félagi á aðalmarkaði.
First North er hliðarmarkaður Nordic Exchange
og einn mest spennandi markaður fyrir fyrirtæki
í vexti í Evrópu. Þetta félag hér að ofan er
einungis nýjasta viðbótin á stöðugt vaxandi First
North markaðnum sem býður upp á áhugaverða
fjárfestingarkosti. Skoðaðu lista yfir öll félög á
First North markaðnum sem nú er mögulegt að
fjárfesta í á www.omxgroup.com/nordicexchange/
firstnorth. Þar eru einnig veittar nánari upplýsingar
um fjárfestingarkostina.
Bandarísk stjórn-
völd hafa „óhrekjanlegar“ sannanir
fyrir því að Íranar flytja vopn til
talibana í Afganistan með vitneskju
íranskra stjórnvalda að sögn hátt-
setts bandarísks erindreka sem
segir að Atlantshafsbandalagið
(NATÓ) hafi hindrað nokkra slíka
flutninga.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Nicholas Burns,
staðfesti þetta í samtali við AP
fréttastofuna og sagði að NATÓ
þyrfti að beita sér fyrir því að stöðva
þessa flutninga.
Burns sagði ekkert um umfang
vopnaflutninganna en gaf í skyn að
þeir hefðu ekki mikil áhrif á átökin í
Afganistan. „Ég tel ekki að þeir
skipti sköpum gagnvart okkur en
þeir skapa vanda, þetta er ólöglegt
samkvæmt alþjóðalögum ... og Íran-
ar verða að hætta þessu.“
Mikið hefur verið deilt um hvort
stjórnvöld í Íran séu að aðstoða upp-
reisnarmenn í Írak og í síðasta mán-
uði sökuðu stjórnvöld nokkurra
ríkja á Vesturlöndum og við Persa-
flóa Íran um leynilegan stuðning við
talibana í Afganistan. Írönsk stjórn-
völd neita því að þau styðji talibana
og segja slíkan málflutning hluta af
rógsherferð gegn sér.
Bandarískur hershöfðingi, Dan
McNeill, segir talibana hafa sýnt
merki um betri þjálfun í átökum
undanfarið og þeir noti bardaga-
tækni í líkingu við „háþróaðan vest-
rænan her.“