Fréttablaðið - 14.06.2007, Side 12

Fréttablaðið - 14.06.2007, Side 12
 Niðurstöður liggja nú fyrir í 150 sýnum af 400 sem tekin voru úr farfuglum hér á landi í vor. Að sögn Halldórs Run- ólfssonar yfirdýralæknis reynd- ust öll sýnin neikvæð með tilliti til fuglaflensuveirunnar H5N1. „Auk þessarar sýnatöku hefur Náttúrufræðistofnun Íslands tekið um 400 sýni úr farfuglum fyrir Kanadamenn sem send hafa verið þangað,“ segir yfirdýralæknir. „Um er að ræða sýni úr margæs- um og rauðbrystingi sem fara héðan yfir til Norður-Ameríku. Þess vegna hafa þeir áhuga á að fá sýni úr þeim. Við getum að sumu leyti túlkað niðurstöður sem fást úr þeim sýnum fyrir okkur einnig.“ Yfirdýralæknir segir menn vera rólegri í ár en í fyrra gagnvart fuglaflensunni. Hin illræmda fuglaflensuveira hafi ekki fundist í farfuglum í Norður-Evrópu. Að vísu hefði greinst veira í Wales nú í maí, en hún hefði verið af allt öðrum og hættuminni stofni. Sú veira hefði ekki breiðst út þar og ekki verið tengd við farfugla. „Við munu engu að síður taka sýni í haust eins og gert var í fyrrahaust, þannig að við höldum okkar vöku,“ bætir yfirdýralæknir við. „Þá verður tekið úr villtum fuglum, svo og úr alifuglabúum. Þessar sýnatökur eru eins konar vöktun. Hafi komið hingað fugla- flensa í vor og breiðist út í sumar þá eru þessar sýnatökur eins konar öryggisventill til að fylgjast með stöðunni.“ Engin fuglaflensuveira fannst Ingibjörg Rafnar, umboðs- maður barna, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hafa í tvö ár unnið að því að setja takmörk við markaðssókn fyrirtækja sem bein- ist að börnum. „Síðast en ekki síst hafa þau ekki fjárráð til að vera sjálfstæðir neyt- endur. Það er verið að treysta á að börnin suði í foreldrunum. Það finnst mér vera á mörkum þess sið- lega.“ „Það er engin deila um hvort á að setja takmörk við markaðssókn gagnvart börnum, bara hvernig eigi að gera það og hvar mörkin eigi að liggja. Það ríkir mikil sátt um barnavernd í samfélaginu,“ segir Gísli Tryggvason. Gísli segir að þetta megi gera án beinnar lagasetningar. „Við viljum ná fram samkomulagi milli okkar og viðskiptalífsins, almannasam- taka og stjórnsýslusamtaka um þessi mörk.“ „Aðilar í viðskiptalífinu verða að geta gengið út frá því að til séu reglur sem allir virða og að aðrir búi við sömu reglur. Þannig verður til aðhald innan markaðarins,“ segir Ingibjörg. Markaðssetning gagnvart börn- um og unglingum hefur vaxið ört á undanförnum árum. „Það er tími til að staldra við,“ segir Ingibjörg. Í Svíþjóð og Noregi er óheimilt að auglýsa sitt hvorum megin við barnatíma í sjónvarpi. Á Bretlandi má ekki auglýsa óhollan mat fyrir klukkan níu á kvöldin. Slíkar lausnir koma til greina á Íslandi. „Við munum hitta skólayfirvöld og tala um hvar mörkin liggja. Ein leiðin er að ákveða að grunnskólinn skuli vera laus við markaðssetn- ingu. Önnur er að banna auglýsingar í framhaldsskólum án samráðs við skólameistara. Annað vandamál er hvað nemendafélög geta leyft sér,“ segir Gísli. Foreldrar og aðrir áhugasamir geta komið með ábendingar um verkefnið á heimasíðu talsmanns neytenda, www.tn.is. Treyst á að börnin suði í foreldrunum Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda vilja stemma stigu við markaðs- setningu sem beinist að börnum. Slík markaðssetning hefur aukist. Auglýsingar fyrir áfengi og óhollustu og kynferðislegar vísanir eiga ekki erindi til barna. Nýjung í ræstingum – þú nærð hærra með UniFlex afþurrkunarsettinu R V 62 33 UniFlex afþurrkunarsett og 2 örtrefjamoppur 1.398,- Henrietta Holz Jensen sölumaður í útibúi RV í Danmörku N ú á ti lb oð i! il i

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.