Fréttablaðið - 14.06.2007, Page 44

Fréttablaðið - 14.06.2007, Page 44
 14. JÚNÍ 2007 FIMMTUDAGUR12 fréttablaðið garðurinn Á vegum Garðyrkjufélags Íslands eru starfræktir fjórir klúbbar. Einn þeirra er sumarhúsaklúbb- urinn Bjarkir. Valborg Einars- dóttir er garðyrkjufræðingur og jafnframt eini starfsmaður Garð- yrkjufélagsins. Markmið allra klúbbanna er að safna þekkingu og reynslu og miðla á milli félaga í Garðyrkjufé- laginu. Sumarhúsaklúbburinn er sérstaklega hugsaður til þess að stuðla að fjölbreytilegri ræktun gróðurs í sumarhúsalöndum. „Svo stöndum við fyrir skoðun- arferðum og fórum einmitt í eina slíka um síðustu helgi. Við fórum og skoðuðum ræktun hjá tveimur félögum sem báðir eru með mjög stórar sumarhúsalóðir. Báðir aðil- ar eru með mjög fjölbreytta rækt- un,“ segir Valborg. Garðyrkjufélag Íslands er áhugamannafélag og allir sem koma að félaginu, utan Valborg- ar, vinna í sjálfboðavinnu. Sumar- húsaklúbburinn Bjarkir var stofn- aður innan félagsins í júní 2002 og er því orðinn fimm ára gamall. thorunn@frettabladid.is Sumarhúsaklúbburinn Bjarkir í skoðunarferð Randagrasið gefur fallegt litasamspil í náttúruna, en það getur orðið rúmur metri á hæð. MYND/VALBORG EINARSDÓTTIR Irma og Sigurður Blöndal tóku á móti félögum sínum í Bjarka og var þeim fært plómutré í þakklætisskyni fyrir móttökurnar. Kínverska húsgagnafyrirtækið Catic Furniture sérhæfir sig í há- tísku hægindahúsgögnum í garð- inn. Sófarnir eru einstaklega þægi- legir að sitja í og hönnunin veru- lega glæsileg og líkist gjarnan hefðbundnum stofuhúsgögnum. Grindin er úr áli og sessurnar með plastáklæði sem hægt er að fá í hinum ýmsu litum. Það væri ekki ónýtt að hafa sófasett á borð við þetta í garðveislum sumarsins. -sig Kínversk hátískuhönnun Hátískuhúsgögn frá Kína sem eru í senn stílhrein, falleg og þægileg. SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI. • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN. • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR. • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU. • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR. Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. Kryddjurtir haga sér eins og aðrar laufplöntur. Þær spíra á vorin, dafna yfir sumartím- ann, blómstra og framleiða fræ. Krydd- jurtir eins og garðablóðberg, minta og rós- marín eru fjöl- ærar og spretta upp af sömu rót- inni ár eftir ár. Til annarra þarf að sá á hverju ári, meðal þeirra eru basilíka, sumarkrydd og kór- íander. Nokkrar jurtir eru tvíærar og hafa tveggja ára vaxtarskeið. Steinselja er ein þeirra þótt betra sé að rækta hana sem einæra jurt vegna þess að lauf hennar eru bragðminni síðara árið. Kryddjurtir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.