Fréttablaðið - 14.06.2007, Síða 47
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 15garðurinn fréttablaðið
Stílhrein garðhúsgögn
Húsgögnin eru stílhrein og tímalaus.Garðhúsgögnin eru úr gegnheilu tekki.
Stílhrein og tímalaus garðhúsgögn úr
gegnheilu tekki hafa verið til sölu hjá
húsgagnaversluninni Ego Dekor, Bæjar-
lind 12, undanfarin sumur. „Við erum með
stækkanleg borð, garðbekki og stóla í þessari línu sem
kemur frá Indónesíu,“ segir Stella Bogadóttir verslunar-
stjóri og telur húsgögnin bæði henta á svalir og stærri
garða. Hún segir garðhúsgögnin hafa átt miklum vinsæld-
um að fagna síðastliðin sumur og jafnvel séu sumir farnir
að safna húsgögnum úr línunni og bæti við á hverju sumri.
Ný sending af gjafavöru var einnig tekin upp í Ego
Dekor á dögunum, þar á meðal mikið af fallegum luktum
í nokkrum gerðum og litum. Fást þær frá 2.500 krónum
upp í 5.900 krónur.
Það er ýmislegt sem huga þarf að
þegar fjölærar plöntur eru gróður-
settar í görðum og því rétt að
kynna sér það fyrir fram hvernig
best sé að haga verkinu þegar
heim er komið með nýja plöntu.
Best er að gróðursetja jurtina
sem fyrst svo ræturnar nái ekki
að þorna og varast að sól skíni á
þær því þær geta eyðilagst á ótrú-
lega skömmum tíma. Holurnar
þurfa að vera nægilega stórar
til að hægt sé að koma rótunum
fyrir og greiða úr þeim án þess
að hnoða þeim saman en langar
tægjur má stytta. Í botni holunnar
þarf að losa um moldina og jafn-
vel blanda í hana áburði eða safn-
haugamold.
Eftir gróðursetningu skal vökva
vel og sé sólskin eða hvassviðri er
gott að hvolfa einhverju yfir jurt-
ina fyrstu dagana, til dæmis fötu,
kassa eða blómapotti, til hindra
útgufun. Það á sérstaklega við ef
jurtin er blaðmikil.
Jurtina skal setja álíka djúpt og
hún hefur staðið áður, eða örlítið
dýpra og ýta moldinni þétt að rót-
unum, einkum ef jarðvegurinn er
léttur og sendinn.
Svo er upplagt að stinga nafn-
spjaldi niður hjá jurtinni til að
byrja með á meðan nýir eigendur
hennar læra að þekkja hana.
Vandað til
verka
Sverðburkninn er nokkuð vinsæl fjölær
planta.
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is