Fréttablaðið - 14.06.2007, Page 60
Kl. 12.00
Jón Bjarnason, organisti Selja-
kirkju í Reykjavík, leikur á há-
degistónleikum Alþjóðlegs orgels-
umars í Hallgrímskirkju. Á efnis-
skránni eru tvær prelúdíur eftir
Dietrich Buxtehude og konsert í a-
moll eftir Bach.
Norræna húsið í Vatns-
mýrinni kastar hamnum á
Menningarnótt 18. ágúst.
Næstu tvo mánuði verður
húsið lokað og þá fara fram
gagngerar breytingar á
anddyri hússins og lagna-
kerfi þess verður endurnýj-
að. Þessi menningarstofnun
mun ganga í nýja lífdaga að
viðgerðinni lokinni en húsið
verður fertugt á næsta ári.
Nýr forstöðumaður Norræna húss-
ins hefur kynnt áætlanir sínar um
nýjar og breyttar áherslur í starf-
seminni þá viðgerðum verður lokið.
Hann heitir Max Dager og segir að
þegar kom til álita að hann tæki að
sér stjórn á rekstri Norræna húss-
ins hafi ekki annað komið til greina
en gera veigamiklar breytingar á
starfseminni. Sér hafi blöskrað hvað
þessi perla í hönnunarverki Alvars
Aalto hafi verið lítið áberandi um
langt skeið í reykvísku menningar-
og félagslífi.
Max hefur fjölbreytta reynslu að
baki og þess gætir í þeim áherslum
sem kynntar voru á blaðamanna-
fundi á miðvikudag. Breytingar á
anddyri og veitingaaðstöðu húss-
ins verða gerðar í því augnamiði að
bæta þjónustu: þar verður sú nýja
norræna matargerðarlist sem nú
hefur rutt sér til rúms höfð í háveg-
um og fengu blaðamenn smjörþef-
inn af því á fundinum þar sem born-
ar voru fram glæsilegar veitingar
undir vakandi auga vertsins Mats
Holm.
Breytingar á húsinu, sem er
verndað höfundarverk frægasta
hönnuðar Norðurlanda, verða unnar
í samstarfi við stofnun sem kennd
er við Aalto í Finnlandi. Nýjan veit-
ingastað hannar Iilka Suppainen,
einn eftirsóttasti hönnuður Finna nú
um stundir. Í tengslum við veitinga-
sölu verður sölubás með norrænu
góðmeti og hönnunarhlutum.
Max vill brydda upp á nýjung-
um í sal hússins: þar verður breið-
tjald sem gerir stafrænar sýning-
ar á kvikmyndum, heimildarmynd-
um og beinum útsendingum um
gervihnött mögulegar. Hann lætur
loka sýningarsal í kjallara hússins
og breytir honum í alhliða rými til
margs konar nota: funda, fyrirlestra
og vinnustofuhalds.
Í bókasafni verður opnað
demotek. Safnið var í forystu lengi
um nýjungar: þangað sóttu menn í
fyrsta sinn hljómplötur á sinni tíð,
myndbönd og listaverk. Nú vill Max
að þar verði opnuð gátt fyrir til-
raunaverk ungra höfunda í mynd
og hljóði, þar geti höfundar komið
verkum á framfæri sem ekki eru
enn komin út.
Það er hugur í starfsmönnum
Norræna hússins með nýjum stjórn-
anda. Það er auðfundið: rekstur
hússins tekur kipp og hefst rekstur
á nýju og endurbættu Norræna húsi
með níu daga hátíð á Menningar-
nótt sem kölluð er Reyfið og vísar
til þess að í ævintýrum gengu menn
og dýr úr reyfi sínu −- nýtt upphaf
tók við.
Margt verður til skemmtunar á
hátíðinni og dugar húsið sjálft ekki
til nema að hluta: verður við hlið
þess reist 715 fermetra glerskáli
sem tekur mest þúsund gesti. Tvö
svið og sæti fyrir 500 manns eru
þar undir hjálmi. Eru hátíðahöldin
með fjölbreyttu sniði en ekki verð-
ur tilkynnt um aðvífandi krafta og
heimamenn sem þar koma fram
fyrr en í annari viku júlí. Þar verður
boðið upp á tónlist, list, dans, sirk-
us, hönnun, arkitektúr og panel-um-
ræður þar sem hið talaða orð fær að
njóta sín. Þar verður veislukostur
í boði og göfgandi drykkir. Hyggst
Norræna húsið bjóða upp á sérstök
kort sem gefa handhöfum ársáskrift
að bókasafninu, verulegan afslátt af
fjölbreyttri dagskrá Reyfisins og
máltíð í veislusal með drykk.
Það er kná norsk kona sem hefur
undirbúið Reyfið, Ellen Marie Fod-
stad. Í lok blaðamannafundarins
lýsti hún undrun sinni við blaða-
mann hvers vegna vegur Norræna
hússins hefði minnkað svo í menn-
ingarlandslaginu: nú skal verða
breyting á, reyfinu kastað svo fram
spretti nýtt hús iðandi af lífi og sál.
Hreinn Friðfinnson myndlist-
armaður verður með sýningu
í Serpentine-galleríinu fræga
í London í júlí og stendur hún
fram í septemberbyrjun. Þykir
mikill álitsauki að fá inni í þessu
virta galleríi sem er í garðinum
undan Royal Albert Hall. Verk
Hreins eru víða í hávegum höfð
hjá virtum erlendum söfnum.
Hreinn Friðfinnsson var á sínum
tíma einn af upphafsmönnum
poppsins hér á landi en sneri sér
strax á fyrstu sýningu SUM í átt
að konseft-listinni og hefur hald-
ið sig á þeirri slóð síðan. Hann er
gjarn á að setja kunnuglega hluti
í nýtt samhengi á ofureinfaldan
hátt. Hann vinnur í mörg efni:
ljósmyndir, teikningar, skúlpt-
úrar eru honum innan handar og
þá notar hann bæði hljóð og nýtir
innsetningar fyrir höfundarverk
sitt. Sýningin í Serpentine er
sett upp í samráði við i8 gallerí á
Klapparstíg í Reykjavík. Hreinn
er Dalamaður, fæddur 1943.
Hann fluttist til Hollands seint á
sjöunda áratugnum og hefur búið
þar síðan þótt hann hann hafi haft
annan fótinn hér á Íslandi og sótt
efni sín mikið hingað.
Sýningin er sett upp í sam-
starfi við Ólaf Elíasson sem er að
vinna nýjan sýningarskála fyrir
Serpentine í samstarfi við Kjetil
Thorsen.
Hreinn sýnir í Serpentine
Reykjavík brennur
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
MIKLABORG
F A S T E I G N A S A L A N
Síðumúla 13 - sími 569 7000 - miklaborg@miklaborg.is
Fr
um
Kjarrmóar 38 - Glæsilegt raðhús Stórglæsilegt tveggja
hæða 140 fm raðhús með innfelldum bílskúr að Kjarrmóum
38 í Garðabæ. Komið er inn á neðri hæð sem skiptist í
andyri með skáp, hol, herbergi, baðherbergi, bílskúr, þvotta-
og þurrkherbergi. Efri hæðin skiptist í tvö herbergi,
baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og 15 fm risloft sem er
ekki inni í uppgefnum fermetrafjölda. V. 38,9 m. 6678
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS FIMMTUDAGINN 14. JÚNÍ KL. 18-19.
Óskar R. Harðarson, hdl. og löggiltur fasteignasali
Opið hús í dag fimmtudag kl. 18-19
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is