Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 34
hús&heimili
Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Auglýs-
ingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 517-5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. Forsíðumynd: Veggfóður frá Fromental. Sjá umfjöllun á bls. 4.
Fyrir ári síðan var nýr ritstjóri
ráðin til starfa á hinu rótgróna
tímariti Hús og híbýli. Sá heitir
Tinni Sveinsson og á að baki nokk-
ura ára feril í blaðamennsku, en
að skrifa um híbýli og hús var nýtt
fyrir honum þegar hann tók við
stjórninni.
„Ég hef þó alla tíð haft gaman
af því að spá í heimilinu og fal-
lega gerðum munum,“ segir hann
og nefnir í því samhengi „sófa-
listaverk“ sem hann keypti fyrir
skemmstu.
„Þetta er verk eftir ungan
listamann sem heitir Davíð Örn
Halldórsson, en hann gerir mjög
skrautlegar og skemmtilegar
myndir. Ég var svo heppinn að
ná í skottið á honum þar sem
ég var staddur í opnun á sýn-
ingu eftir hann og þar sömdum
við um kaupin. Myndina kall-
ar Davíð Smáralind og hún er
máluð á parketbút. Mér finnst
þetta alveg fullkomið sófaverk
ef svo mætti kalla,“ segir Tinni
ánægður og bætir því við að hann
og kona hans, Sigrún Edda Eð-
varðsdóttir, hafi sérlega gaman
af því að kaupa myndlist.
„Við hjónin skemmtum okkur
konunglega við að kaupa mynd-
ir en ég tel okkur samt ekki gera
mikið af því. Nú eigum við nokk-
ur verk, sem eru öll eftir unga og
efnilega listamenn, en ég tek þó
fram að maður verður að hrífast
af verkinu líka. Það má ekki bara
hugsa um ávöxtunina,“ segir þessi
listhneigði ritstjóri að lokum.
mhg@frettabladid.is
Ekki bara ávöxtun
Tinni Sveinsson, ritstjóri Húsa og híbýla, telur nauðsynlegt að hrífast af þeim lista-
verkum sem hann kaupir í stað þess að hugsa bara um þau sem fjárfestingu.
Tinni Sveinsson, ritstjóri Húsa og híbýla, hefur gaman af því að kaupa myndlist. „Sófaverkið“ hans heitir Smáralind og er eftir
Davíð Þór Halldórsson, en á þeim listamanni hefur Tinni töluvert dálæti.
LÍMMIÐAR Á GAML-
AR KRUKKUR Endur-
vinnsla einskorðast ekki bara
við gömul dagblöð og tómar
mjólkurfernur. Hægt er að
endurnýta gamla hluti á heim-
ilinu með því að breyta þeim
örlítið. Laura Normandin er
ein af hönnuðunum á tímarit-
inu Martha Stewart living. Hún
tekur gamlar krukkur og flösk-
ur og límir á þær límmyndir
sem hún hefur hannað sjálf.
hönnun
SIGTAÐ VATN Fyrsti sturtuhausinn hefur eflaust verið búinn
til úr eldhússigti. Ítalska hönnunarfyrirtækið Agape design leitar því
til fortíðar í hönnun sinni á sturtuhausnum Al dente. Nafnið vísar til
pasta sem á að vera soðið „al dente“ og er svo að sjálfsögðu sett í
sigti til að aðskilja það vatninu sem það er soðið í.
7. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR2